Reyndi að smygla kílói af kókaíni innvortis Atli Ísleifsson skrifar 11. janúar 2023 12:22 Manninum var jafnframt gert að greiða 1,8 milljónir króna í sakarkostnað, þar með talið þóknun til skipaðs verjanda. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt ganverskan karlmann í sautján mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla rúmu kílói af kókaíni til landsins.
Maðurinn var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa í byrjun nóvember staðið að innflutningi á rétt rúmu kílói af kókaíni sem hann var með innvortis þegar hann kom með flugi frá Frankfurt í Þýskalandi til Keflavíkurflugvallar. Maðurinn játaði brot sín, en hann hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi hér á landi. Við rannsókn málsins kom í ljós að ekki yrði séð að maðurinn hafi verið eigandi fíkniefnanna en að hann hafi samþykkt að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Í dómi segir að ekki verði fram hjá því litið að maðurinn hafi flutt talsvert magn af sterku kókaíni til landsins sem hafi verið ætlað til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Þótti hæfileg refsins í málinu vera sautján mánaða fangelsi. Til frádráttar fangelsisvistinni kemur gæsluvarðhald sem maðurinn sætti frá komunni til landsins. Manninum var jafnframt gert að greiða 1,8 milljónir króna í sakarkostnað, þar með talið þóknun til skipaðs verjanda.
Smygl Fíkniefnabrot Dómsmál Tollgæslan Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira