Átta unglingsstúlkur ákærðar fyrir morð á heimilislausum manni Kjartan Kjartansson skrifar 21. desember 2022 11:27 Stúlkurnar hittust í miðborg Toronto og réðust á heimlislausan mann. Vísir/Getty Lögregla í Kanada hefur ákært átta unglingsstúlkur fyrir morð á tæplega sextugum heimilislausum manni í Toronto um helgina. Þær eru sakaðar um að hafa stungið manninn til bana.
Vegfarendur fundu manninn í blóði sínu skömmu eftir miðnætti á sunnudag. Hann hafði verið stunginn ítrekað. Maðurinn lést síðar á sjúkrahúsi. Hann hafði verið búsettur í neyðarskýli fyrir heimilislaust fólk. Stúlkurnar, sem eru sagðar á aldrinum þrettán til sextán ára, voru handteknar nærri vettvangi og lagði lögregla hald á fjölda vopna, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Þær höfðu kynnst á samfélagsmiðlum en þrjár þeirra höfðu áður komist í kast við lögin. Terry Browne, rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni í Toronto, segir ekki liggja fyrir hvers vegna stúlkurnar hittust í miðborg Toronto. Talið er að þær hafi lent í átökum fyrr um kvöldið. Kona sem býr í neyðarskýli hélt því fram í kanadískum fjölmiðlum að stúlkurnar hefðu stungið manninn í magann þegar hann reyndi að verja hana fyrir þeim. Stúlkurnar hafi reynt að neyða hana til að láta þær fá áfengi. John Tory, borgarstjóri Toronto, segist sleginn yfir atburðinum, sérstaklega vegna þess hversu ungar stúlkurnar eru og hversu margar þeirra tóku þátt í atlögunni.
Kanada Erlend sakamál Málefni heimilislausra Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Sjá meira