Lífið

Fyrsta lagið frá Rihönnu í sex ár

Elísabet Hanna skrifar
Rihanna var glæsileg á frumsýingu myndarinnar.
Rihanna var glæsileg á frumsýingu myndarinnar. Getty/Axelle/Bauer-Griffin

Fyrsta lag söngkonunnar Rihönnu síðan árið 2016 heiðrar leikarann Chadwick Boseman, sem lést árið 2020 úr ristilkrabbameini. Lagið ber heitið Lift Me Up og er það fyrsta sem hún gefur sjálf út í sex ár. 

Lagið er hluti af Black Panther: Wakanda Forever hljóðheiminum en Chadwick fór með hlutverk ofurhetjunnar Black Panther áður en hann lést.

Leikarinn Chadwick Boseman fór með hlutverk Black Panther.Getty/Matt Winkelmeyer

„Eftir að hafa talað við Ryan, og heyrt hans sýn fyrir myndina og lagið, langaði mig að skrifa eitthvað sem líkist hlýlegu faðmlagi frá öllu fólkinu sem ég hef misst á lífsleiðinni,“ segir Tems. Hann samdi lagið ásamt Rihönnu, Ludwig Göransson og leikstjóra myndarinnar Ryan Coogler.

Hér má heyra lagið:

„Ég reyndi að ímynda mér hvernig tilfinningin það væri að geta sungið fyrir þau núna og sagt þeim hversu mikið ég sakna þeirra, Rihanna hefur verið mér innblástur svo það er mikill heiður að heyra hana flytja þetta lag," segir hann einnig.

Rihanna og A$AP Rocky á frumsýningu myndarinnar Black Panther: Wakanda Forever.Getty/Amy Sussman

Rihanna fór ásamt kærasta sínum og barnsföður A$AP Rocky á frumsýningu myndarinnar á miðvikudaginn. Það var í fyrsta skipti sem þau sáust á rauða dreglinum eftir að þau tóku á móti fyrsta barninu sínu í maí. Það var tilkynnt á dögunum að söngkonan mun stíga á stokk í hálf­leiks­sýningu Ofur­skálarinnar þann 12. febrúar á næsta ári.


Tengdar fréttir

Black Panther-stjarnan látin

Chadwick Boseman, leikarinn sem lék aðalhlutverkið í Marvel-myndinni Black Panther, er látinn. Boseman var aðeins 43 ára gamall.

Nýr Svartur pardus og neðan­sjávar þjóðir

Ný stikla vegna nýrrar Black Panther kvikmyndar, „Black Panther 2: Wakanda Forever“ var birt í gær. Stiklan gefur meiri innsýn inn í komandi kvikmynd sem verður frumsýnd þann 11. nóvember næstkomandi.

Rihanna og A$AP Rocky eiga von á barni

Söngkonan og milljarðamæringurinn Rihanna á von á sínu fyrsta barni. Hún sýndi kúluna í fyrsta skipti um helgina í Harlem ásamt kærasta sínum A$AP Rocky.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.