Yfirvöld þurfi að bregðast við svo þau verði ekki sanngirnisbótaskyld Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 3. október 2022 19:46 Alma Björk Ástþórsdóttir varaformaður Heimilis og skóla segir skorta úrræði í skólakerfinu þegar ofbeldismál koma þar upp. Bryndís Jónsdóttir sérfræðingur í forvörnum hjá samtökunum tekur undir það. Vísir/Arnar Talskonur Heimilis og skóla segja úrræðaleysi ríkja í málefnum barna sem verða fyrir ofbeldi í skólum. Varaformaðurinn vill fá opinbera stefnumótun í málaflokknum. Ella sé hætta á að það þurfi að greiða þolendum ofbeldis sanngirnisbætur í framtíðinni. Síðustu misseri hefur hvert málið á fætur öðru komið í kastljós fjölmiðla þar sem ung börn hafa verið beitt ofbeldi í skólakerfinu með einum eða öðrum hætti. Í síðustu viku heyrðum við af enn einu málinu þar sem leikskólakennari var ákærður fyrir að beita börn ofbeldi. Samtökin Heimili og skóli fá reglulega slík mál inn á borð til sín. Bryndís Jónsdóttir sérfræðingur í forvörnum hjá Heimili og skóla segir að á hverju ári komi upp tilvik þar sem grunnskólabörn eru beitt ofbeldi af hálfu starfsfólks. Því miður komi þó ekki öll slík mál inn á borð samtakanna því mörg hver komi aldrei upp á yfirborðið. „Málin snúast þá að einhvers konar andlegu ofbeldi eða niðrandi framkomu starfsmanna í garð barna í skólum. Það hafa jafnvel komið upp mál þar sem líkamsburðum hefur verið beitt til að taka á börnum með einhvers konar hegðunarvandamál. Það er jafnframt of algengt að skólar hafa ekki tekið nógu vel á eineltismálum. Þá eru t.d. börnin sem hafa orðið fyrir einelti komin út í horn og þau þurfa jafnvel að skipta um bekk eða skóla í stað þess að þolandinn sé færður til. Þá eru skólar oft meira með viðbragðsáætlanir í stað þess að einblína á forvarnir. Ég veit ekki hverju er um að kenna en þetta þarf að laga,“ segir Bryndís. Vill fá starfshóp um aðbúnað barna Alma Björk Ástþórsdóttir varaformaður Heimilis og skóla segir skorta úrræði í skólakerfinu þegar slík mál koma upp. „Okkur finnst ekki nógu vel tekið á þessu og okkur finnst ekki nógu vel hlustað á það sem er að koma upp.Við myndum vilja kalla eftir því að það yrði settur á fót óháðan starfshóp til að mynda á vegum dómstólasýslunnartil að skoða aðbúnað barna í skólakerfinu. Það vantar alla yfirsýn í málaflokknum,“ segir Alma. Alma segir að læra þurfi af fortíðinni. Hún vísar þar til rannsóknarnefnda um vistheimili sem voru stofnaðar í kringum 2007 eftir að Breiðavíkurmálið svokallaða kom upp. Ef eftirlit og opinber stefna hefði verið virkari á sínum tíma í málefnum vistheimila hefði mögulega mátt koma í veg fyrir það að svo mörg börn yrðu fyrir skaða. Það sama eigi við í dag. „Ef við höldum svona áfram er ég hrædd um að eftir tíu til tuttugu ár þurfum við að fara að greiða mörgum börnum sanngirnisbætur. Börn sem urðu fyrir ofbeldi, vanrækslu eða vanvirðingu og einelti í skólanum. Þá fyrir að hafa ekki tekist á við slík mál sem samfélag. Þá verða ráðamenn í framtíðinni afar hneykslaðir að þetta hafi fengið að viðgangast án þess að nokkur hafi gripið í taumanna. Þannig að ég bið ráðafólk núna að grípa inn í. Því þessi börn eru núna að verða fyrir þessu,“ segir Alma. Bryndís segir enn fremur að grunnskólar þurfi meiri stuðning til að fást við þessi mál. „Ef kennarnir og skólastjórnendur fá nægilegan stuðning í því sem þeir eru að gera ættum við að geta séð betri tíma framundan,“ segir Bryndís. Stöð 2 hefur ákveðið að gera þætti þar sem fjallað verður um vistheimili á Íslandi. Þáttagerðin er hafin, þegar er verið að skoða sögu Vöggustofanna við höldum svo áfram eftir því sem fram vindur. Þeir sem hafa sögu að segja og vilja koma upplýsingum á framfæri um vistheimili, vinsamlega sendið okkur á netfangið vistheimili@stod2.is. Ofbeldi gegn börnum Grunnskólar Leikskólar Skóla - og menntamál Tengdar fréttir Ákærð fyrir að refsa leikskólabörnum líkamlega Kona sem starfaði á leikskóla hefur verið ákærð fyrir að hafa beitt börn á leikskólanum andlegum og líkamlegum refsingum og ógnunum. 29. september 2022 14:18 Segist hafa horft á starfsmann skólans snúa dóttur sína niður Móðir níu ára stúlku, sem hefur kært starfsmann Gerðaskóla til lögreglu, segist hafa horft á hann snúa dóttur sína niður fyrir það eitt að klóra út í loftið í áttina að honum. Það sé viðtekin venja í skólanum að læsa börn með raskanir eða sem starfsfólkið ræður illa við inni í litlu gluggalausu herbergi. 8. nóvember 2021 19:34 Skólastjórnendur og bæjaryfirvöld neita að tjá sig um kærurnar Hvorki kjörnir fulltrúar né starfsmenn Suðurnesjabæjar vilja tjá sig um lögreglurannsókn sem nú stendur yfir og beinist að fjórum starfsmönnum Gerðaskóla. Móðir stúlku með ADHD kærði starfsmennina fyrir vonda meðferð á dóttur sinni en hún segist hafa horft á einn þeirra snúa hana niður í gólfið fyrir að hafa klórað út í loftið í átt að sér og segir skólann oft hafa lokað dóttur hennar inni í því sem skólinn kallar „hvíldarherbergi". 17. nóvember 2021 07:00 Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira
Síðustu misseri hefur hvert málið á fætur öðru komið í kastljós fjölmiðla þar sem ung börn hafa verið beitt ofbeldi í skólakerfinu með einum eða öðrum hætti. Í síðustu viku heyrðum við af enn einu málinu þar sem leikskólakennari var ákærður fyrir að beita börn ofbeldi. Samtökin Heimili og skóli fá reglulega slík mál inn á borð til sín. Bryndís Jónsdóttir sérfræðingur í forvörnum hjá Heimili og skóla segir að á hverju ári komi upp tilvik þar sem grunnskólabörn eru beitt ofbeldi af hálfu starfsfólks. Því miður komi þó ekki öll slík mál inn á borð samtakanna því mörg hver komi aldrei upp á yfirborðið. „Málin snúast þá að einhvers konar andlegu ofbeldi eða niðrandi framkomu starfsmanna í garð barna í skólum. Það hafa jafnvel komið upp mál þar sem líkamsburðum hefur verið beitt til að taka á börnum með einhvers konar hegðunarvandamál. Það er jafnframt of algengt að skólar hafa ekki tekið nógu vel á eineltismálum. Þá eru t.d. börnin sem hafa orðið fyrir einelti komin út í horn og þau þurfa jafnvel að skipta um bekk eða skóla í stað þess að þolandinn sé færður til. Þá eru skólar oft meira með viðbragðsáætlanir í stað þess að einblína á forvarnir. Ég veit ekki hverju er um að kenna en þetta þarf að laga,“ segir Bryndís. Vill fá starfshóp um aðbúnað barna Alma Björk Ástþórsdóttir varaformaður Heimilis og skóla segir skorta úrræði í skólakerfinu þegar slík mál koma upp. „Okkur finnst ekki nógu vel tekið á þessu og okkur finnst ekki nógu vel hlustað á það sem er að koma upp.Við myndum vilja kalla eftir því að það yrði settur á fót óháðan starfshóp til að mynda á vegum dómstólasýslunnartil að skoða aðbúnað barna í skólakerfinu. Það vantar alla yfirsýn í málaflokknum,“ segir Alma. Alma segir að læra þurfi af fortíðinni. Hún vísar þar til rannsóknarnefnda um vistheimili sem voru stofnaðar í kringum 2007 eftir að Breiðavíkurmálið svokallaða kom upp. Ef eftirlit og opinber stefna hefði verið virkari á sínum tíma í málefnum vistheimila hefði mögulega mátt koma í veg fyrir það að svo mörg börn yrðu fyrir skaða. Það sama eigi við í dag. „Ef við höldum svona áfram er ég hrædd um að eftir tíu til tuttugu ár þurfum við að fara að greiða mörgum börnum sanngirnisbætur. Börn sem urðu fyrir ofbeldi, vanrækslu eða vanvirðingu og einelti í skólanum. Þá fyrir að hafa ekki tekist á við slík mál sem samfélag. Þá verða ráðamenn í framtíðinni afar hneykslaðir að þetta hafi fengið að viðgangast án þess að nokkur hafi gripið í taumanna. Þannig að ég bið ráðafólk núna að grípa inn í. Því þessi börn eru núna að verða fyrir þessu,“ segir Alma. Bryndís segir enn fremur að grunnskólar þurfi meiri stuðning til að fást við þessi mál. „Ef kennarnir og skólastjórnendur fá nægilegan stuðning í því sem þeir eru að gera ættum við að geta séð betri tíma framundan,“ segir Bryndís. Stöð 2 hefur ákveðið að gera þætti þar sem fjallað verður um vistheimili á Íslandi. Þáttagerðin er hafin, þegar er verið að skoða sögu Vöggustofanna við höldum svo áfram eftir því sem fram vindur. Þeir sem hafa sögu að segja og vilja koma upplýsingum á framfæri um vistheimili, vinsamlega sendið okkur á netfangið vistheimili@stod2.is.
Stöð 2 hefur ákveðið að gera þætti þar sem fjallað verður um vistheimili á Íslandi. Þáttagerðin er hafin, þegar er verið að skoða sögu Vöggustofanna við höldum svo áfram eftir því sem fram vindur. Þeir sem hafa sögu að segja og vilja koma upplýsingum á framfæri um vistheimili, vinsamlega sendið okkur á netfangið vistheimili@stod2.is.
Ofbeldi gegn börnum Grunnskólar Leikskólar Skóla - og menntamál Tengdar fréttir Ákærð fyrir að refsa leikskólabörnum líkamlega Kona sem starfaði á leikskóla hefur verið ákærð fyrir að hafa beitt börn á leikskólanum andlegum og líkamlegum refsingum og ógnunum. 29. september 2022 14:18 Segist hafa horft á starfsmann skólans snúa dóttur sína niður Móðir níu ára stúlku, sem hefur kært starfsmann Gerðaskóla til lögreglu, segist hafa horft á hann snúa dóttur sína niður fyrir það eitt að klóra út í loftið í áttina að honum. Það sé viðtekin venja í skólanum að læsa börn með raskanir eða sem starfsfólkið ræður illa við inni í litlu gluggalausu herbergi. 8. nóvember 2021 19:34 Skólastjórnendur og bæjaryfirvöld neita að tjá sig um kærurnar Hvorki kjörnir fulltrúar né starfsmenn Suðurnesjabæjar vilja tjá sig um lögreglurannsókn sem nú stendur yfir og beinist að fjórum starfsmönnum Gerðaskóla. Móðir stúlku með ADHD kærði starfsmennina fyrir vonda meðferð á dóttur sinni en hún segist hafa horft á einn þeirra snúa hana niður í gólfið fyrir að hafa klórað út í loftið í átt að sér og segir skólann oft hafa lokað dóttur hennar inni í því sem skólinn kallar „hvíldarherbergi". 17. nóvember 2021 07:00 Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira
Ákærð fyrir að refsa leikskólabörnum líkamlega Kona sem starfaði á leikskóla hefur verið ákærð fyrir að hafa beitt börn á leikskólanum andlegum og líkamlegum refsingum og ógnunum. 29. september 2022 14:18
Segist hafa horft á starfsmann skólans snúa dóttur sína niður Móðir níu ára stúlku, sem hefur kært starfsmann Gerðaskóla til lögreglu, segist hafa horft á hann snúa dóttur sína niður fyrir það eitt að klóra út í loftið í áttina að honum. Það sé viðtekin venja í skólanum að læsa börn með raskanir eða sem starfsfólkið ræður illa við inni í litlu gluggalausu herbergi. 8. nóvember 2021 19:34
Skólastjórnendur og bæjaryfirvöld neita að tjá sig um kærurnar Hvorki kjörnir fulltrúar né starfsmenn Suðurnesjabæjar vilja tjá sig um lögreglurannsókn sem nú stendur yfir og beinist að fjórum starfsmönnum Gerðaskóla. Móðir stúlku með ADHD kærði starfsmennina fyrir vonda meðferð á dóttur sinni en hún segist hafa horft á einn þeirra snúa hana niður í gólfið fyrir að hafa klórað út í loftið í átt að sér og segir skólann oft hafa lokað dóttur hennar inni í því sem skólinn kallar „hvíldarherbergi". 17. nóvember 2021 07:00