Landlækni berast kvartanir vegna sálfræðings sem sagður er starfa án starfsleyfis Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 24. september 2022 18:35 Alma Möller er landlæknir. vilhelm gunnarsson Embætti landlæknis hefur fengið ábendingar um að karlmaður sinni störfum sálfræðings þrátt fyrir að hafa ekki til þess starfsleyfi. Fjölmargir kvarta undan því að hafa greitt honum fyrir ADHD greiningar sem hvergi séu teknar gildar.
Sálfræðingurinn sem um ræðir er Jón Sigurður Karlsson og hefur starfað sem klínískur sálfræðingur í áraraðir. Hann hefur ekki lengur starfsleyfi en nafn hans er ekki að finna í starfsleyfaskrá Embættis landlæknis. Tilkynningar berast ADHD samtökunum Fréttastofa hefur rætt við fjölmarga skjólstæðinga Jóns sem segjast hafa greitt honum fyrir ADHD greiningar sem síðan hafi ekki verið teknar gildar af geðlæknum. Þá hafa ADHD samtökunum borist tilkynningar um að greiningar frá sálfræðingnum standist ekki skoðun. Í hvaða stöðu er þá fólk sem er með greiningu frá þessum manni? „Það er ekki með greiningu. Það er ekki flóknara en það. Hann fer ekki eftir neinum leiðbeiningum í dag. Það getur vel verið að hann hafi gert það áður fyrr, en af þeim dæmum sem ég hef heyrt beint af undanfarna mánuði og jafnvel ár þá er þetta bara texti af blaði sem fer ekki eftir neinum klínískum aðferðum eða annað,“ sagði Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna. Tengir skjólstæðinga við geðlækna erlendis Sálfræðingar geta sinnt ADHD greiningum en ákvörðun um lyfjameðferð og veitingu lyfja er í höndum geðlækna. Jón hefur boðið skjólstæðingum sínum upp á að hitta danska og portúgalska geðlækna sem skrifað geta upp á lyf sem aðeins er hægt er að leysa út þar ytra. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að Jón hafi ferðast sjálfur út til að sækja lyf fyrir skjólstæðing. Segist aðstoða skjólstæðinga Jón segist í samtali við fréttastofu tengja skjólstæðinga við geðlækna erlendis vegna læknaskorts hér á landi. Með þessu sé hann að eigin sögn að hjálpa skjólstæðingum sínum og telur íslensk lög ekki standa í vegi fyrir því, þá segist hann hafa kært ýmsar ákvarðanir embættis landlæknis til heilbrigðisráðuneytisins. Fólk látið borga fyrir þjónustu sem nýtist ekki Vilhjálmur segir að það sé ekki venjan að sálfræðingar tengi skjólstæðinga við lækna erlendis í leit að lyfjum. „Nei, það er eitt að vera búsettur erlendis og koma hingað með greiningu að utan. Það er til ferli um það sem hefur hingað til ekki verið skýrt. En þetta er ekki viðurkennt beint nema það sé farið eftir ákveðnum reglum.“ Vilhjálmur Hjálmarsson er formaður ADHD samtakanna.Vísir/Arnar Greiningarferlið sé nokkuð strangt. „Ef að þessir aðilar eru ekki að gera þetta samkvæmt klínískum leiðbeiningum. Ef þetta er bara texti á blaði sem byggir ekki á neinum viðurkenndum aðferðum. Eða þá að geðlæknir er ekki viðurkenndur eða er ekki innan viðurkennda tryggingakerfisins, ekki einu sinni í sínu landi, þá er ekki hægt að taka mark á því. Þannig þarna er fólk bara í raun og veru látið borga fyrir eitthvað sem er bara út um gluggann.“ Sagður starfa þrátt fyrir að vera ekki með starfsleyfi Embætti landlæknis hefur fengið ábendingar um að Jón sinni enn störfum þrátt fyrir að vera ekki með starfsleyfi. Í samtali við fréttastofu segist Jón þurfa að fylgja eftir málum skjólstæðinga og að ekkert banni honum að veita þeim ráðgjöf. Það geri hann sem markþjálfi en ekki sem sálfræðingur. Jón segist ekki lengur framkvæma greiningar. Í skriflegu svari frá embætti landlæknis segir að embættinu sé ekki heimilt að veita upplýsingar um einstök mál en að þeir sem ekki hafi starfsleyfi heyri ekki undir eftirlit embættisins. Möguleg brot á heilbrigðislöggjöf heyri undir lögreglu og myndi embættið vísa slíkum málum þangað. Embættið segist ekki geta gefið upp hvort það hafi vísað málinu til lögreglu og lögregla segist ekki geta veitt upplýsingar. Birtingarmynd alvarlegs ástands Vilhjálmur segir málið birtingarmynd á erfiðri stöðu ADHD sjúklinga og gríðarlegs skorts á geðlæknum. „Það eru tíu, tuttugu ár síðan menn vissu að það yrði skortur á geðlæknum. Í slíku ástandi þá gerast svona hlutir. Þetta ákveðna tilfelli er bara sorglegt dæmi um einn einstakling sem fer lengra en hann átti að gera.“
Heilbrigðismál Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Erlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Innlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Fleiri fréttir Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Horfði á gamla fundi til að undirbúa sig „Góður dagur fyrir nýja tíma í Reykjavík“ Fyrsti fundur borgarstjórnar, ný rannsóknarnefnd og bein Jónasar Sjá meira