Þrjár konur í Flokki fólksins stíga fram og lýsa óásættanlegri framkomu í sinn garð Jakob Bjarnar og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 13. september 2022 10:52 Forystufólk Flokks fólksins fyrir norðan. Tinna Guðmundsdóttir, Jón Hjaltason, Brynjólfur Ingvarsson, Málfríður Þórðardóttir, Hannesína Scheving sem voru í efstu fimm sætum Flokks fólksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Flokkur fólksins Þær Málfríður Þórðardóttir, Tinna Guðmundsdóttir og Hannesína Scheving Virgild Chester, sem allar hafa starfað í Flokki fólksins á Akureyri, hafa nú stigið fram og lýst lítilsvirðandi framkomu í sinn garð og í sumum tilfellum kynferðislegri áreitni. Vísir greindi frá yfirlýsingu Guðmundar Inga Kristinssonar, varaformanns Flokks fólksins í morgun, þar sem hann greinir frá því að hann vilji kalla saman stjórnarfund þar sem farið verður yfir alvarlegar ásakanir um ólíðandi framkomu í garð kvenleiðtoga flokksins á Akureyri. Konurnar sem um ræðir hafa nú stigið fram og lýst því hvað um ræðir og líðan – sinni sögu. En það gera þær að sögn í kjölfar orða varaformannsins. Þar tala þær um „ömurlega reynslu af samskiptum við þessa ónefndu karlaforystu og aðstoðarmanna þeirra á frá því snemma í vor.“ Sagðar geðveikar og vanhæfar Þær segja að efstu konur á lista flokksins hafi í sífellu verið lítilsvirtar og hunsaðar. „Á trúnaðarfundum flokksins vorum við sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar. Sumar okkar máttu sæta kynferðislegu áreiti og virkilega óviðeigandi framkomu til viðbótar við að vera ekki starfinu vaxnar og geðveikar.“ Þær lýsa því að oddviti flokksins á Akureyri, Brynjólfur Ingvarsson, hafi þann 10. september boðað þær á fund. Þar töldu þær að freista ætti þess að koma á ró og vinnufriði en þeim varð ekki að ósk sinni. „Á fundinum mætti okkur mikil andúð og kuldi og yfirgaf varabæjarfulltrúi hann grátandi eftir tíu mínútur.“ „Samstarfið“ olli ómældri vanlíðan og kvíða Þá segja þær Brynjólf hafa dregið fram bréf sem hann las upp og hótaði að birta. „Bréf sem var hlaðið rógburði rangfærslum og hótunum um að við misstum starfsleyfi okkar sem heilbrigðisstarfsmenn ef við létum ekki að stjórn. Alla daga síðan hafa þessar hótanir verið viðvarandi og umræddu hótunarbréfi dreift.“ Þær segja að þetta „samstarf“, orð sem þær setja innan gæsalappa, hafi verið einstaklega taugastrekkjandi og valdið þeim ómældri vanlíðan og kvíða. Inga Sæland, formaður flokksins, segist harmi slegin vegna þeirra ásakana sem um ræðir.vísir/vilhelm Brynjólfur oddviti, var nýkominn af hestbaki þegar fréttastofa náði stuttlega af honum tali. Hann hafði ekki séð yfirlýsinguna. Fréttamaður renndi yfir aðalatriði yfirlýsingarinnar og sagði Brynjólfur ekki alveg muna atburðarásina nákvæmlega svona. Hann væri upptekinn sem stæði en myndi ræða málið síðar í dag. Inga harmi slegin og miður sín Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist harmi slegin vegna framkomunnar sem lýst er og um ræðir. Hún segist gersamlega miður sín og hafi nú formlega kallað til fundar aðalstjórnar Flokks fólksins. „Þar sem við munum taka á málinu fumlaust og af þeirri festu sem við erum þekkt fyrir,“ segir Inga. Hún hefur ekki sett það fyrir sig að víkja frammámönnum úr flokknum ef svo ber undir sem til dæmis sýndi sig í tengslum við Klausturmálið svokallað; þegar þingmönnunum Ólafi Ísleifssyni og Karli Gauta Hjaltasyni var gert að víkja úr flokknum. Yfirlýsing þeirra er í heild sinni hér neðar. Yfirlýsing Málfríðar, Tinnu og Hannesínu: „Í kjölfar yfirlýsinga varaformanns Flokks fólksins í morgun höfum við sem erum þolendur alls þessa ofbeldis sem um er rætt, ákveðið að stíga fram og freista þess að útskýra líðan okkar og ömurlega reynslu af samskiptum við þessa ónefndu karlaforystu og aðstoðarmanna þeirra á frá því snemma í vor. Eftir síðustu bæjarstjórnakosningar þar sem flokkurinn okkar vann stórsigur var mikill hugur í okkur öllum, jákvæðni og þakklæti til allra þeirra sem gáfu okkur sitt dýrmæta atkvæði og um leið tækifæri til að koma kærleiksríkum góðum málstað Flokks fólksins á framfæri. Við ætluðum að vinna af krafti við að byggja upp félagstarf flokksins okkar hér heima. Einnig ætluðum við að hafa samráð varðandi öll bæjarráðsmál með því að styðja og styrkja hvert annað. En í ljósi reynslunnar af samskiptum við karlkynsforystu flokksins og aðstoðarmanna hefur þessi góði vilji okkar frekar litast af draumsýn en veruleika. Efstu konur á lista flokksins voru sífellt lítilsvirtar og hunsaðar. Á trúnaðarfundum flokksins vorum við sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar. Sumar okkar máttu sæta kynferðislegu áreiti og virkilega óviðeigandi framkomu til viðbótar við að vera ekki starfinu vaxnar og geðveikar. Þann 10. sept. sl. boðaði oddviti flokksins til fundar á heimili sínu þar sem við töldum að ætti að freista þess að koma á ró og vinnufriði á meðal okkar. Á fundinum mætti okkur mikil andúð og kuldi og yfirgaf varabæjarfulltrúi hann grátandi eftir tíu mínútur. Oddvitinn dró þá fram bréf sem hann las upp og hótaði að birta. Bréf sem var hlaðið rógburði rangfærlsum og hótunum um að við misstum starfsleyfi okkar sem heilbrigðisstarfsmenn ef við létum ekki að stjórn. Alla daga síðan hafa þessar hótanir verið viðvarandi og umræddu hótunarbréfi dreift. Eitt er víst að Þetta „samstarf“ hefur verið einstaklega taugatrekkjandi og valdið okkur öllum ómældri vanlíðan og kvíða. Að lokum viljum við segja þetta: Það er okkur sárara en tárum taki að þurfa að stíga fram og ræða opinberlega um þá erfiðleika og þau innanflokksátök sem við höfum verið að ganga í gegnum. Ástæðan að sjálfsögðu sú að við viljum ekki á neinum tímapunkti skaða flokkinn og allt það góða fólk innan Flokk fólksins sem er með hjartað á réttum stað. En nú þegar varaformaðurinn okkar hefur stígið fram og ætlar augljóslega að taka málið föstum tökum, finnst okkur ekkert annað koma til greina en að segja okkar sögu. Virðingarfyllst, Málfríður Þórðardóttir Tinna Guðmundsdóttir Hannesína Scheving Virgild Chester“ Fréttin hefur verið uppfærð. Flokkur fólksins Akureyri MeToo Deilur innan Flokks fólksins á Akureyri Tengdar fréttir Varaþingmaður hættur í Flokki fólksins vegna hrossamálsins Varaþingmaður Flokks fólksins er hættur í flokknum vegna tengsla við meint dýraníð í Borgarfirði. Formanni flokksins blöskraði að varaþingmaðurinn væri tengdur málinu. 6. september 2022 16:32 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira
Vísir greindi frá yfirlýsingu Guðmundar Inga Kristinssonar, varaformanns Flokks fólksins í morgun, þar sem hann greinir frá því að hann vilji kalla saman stjórnarfund þar sem farið verður yfir alvarlegar ásakanir um ólíðandi framkomu í garð kvenleiðtoga flokksins á Akureyri. Konurnar sem um ræðir hafa nú stigið fram og lýst því hvað um ræðir og líðan – sinni sögu. En það gera þær að sögn í kjölfar orða varaformannsins. Þar tala þær um „ömurlega reynslu af samskiptum við þessa ónefndu karlaforystu og aðstoðarmanna þeirra á frá því snemma í vor.“ Sagðar geðveikar og vanhæfar Þær segja að efstu konur á lista flokksins hafi í sífellu verið lítilsvirtar og hunsaðar. „Á trúnaðarfundum flokksins vorum við sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar. Sumar okkar máttu sæta kynferðislegu áreiti og virkilega óviðeigandi framkomu til viðbótar við að vera ekki starfinu vaxnar og geðveikar.“ Þær lýsa því að oddviti flokksins á Akureyri, Brynjólfur Ingvarsson, hafi þann 10. september boðað þær á fund. Þar töldu þær að freista ætti þess að koma á ró og vinnufriði en þeim varð ekki að ósk sinni. „Á fundinum mætti okkur mikil andúð og kuldi og yfirgaf varabæjarfulltrúi hann grátandi eftir tíu mínútur.“ „Samstarfið“ olli ómældri vanlíðan og kvíða Þá segja þær Brynjólf hafa dregið fram bréf sem hann las upp og hótaði að birta. „Bréf sem var hlaðið rógburði rangfærslum og hótunum um að við misstum starfsleyfi okkar sem heilbrigðisstarfsmenn ef við létum ekki að stjórn. Alla daga síðan hafa þessar hótanir verið viðvarandi og umræddu hótunarbréfi dreift.“ Þær segja að þetta „samstarf“, orð sem þær setja innan gæsalappa, hafi verið einstaklega taugastrekkjandi og valdið þeim ómældri vanlíðan og kvíða. Inga Sæland, formaður flokksins, segist harmi slegin vegna þeirra ásakana sem um ræðir.vísir/vilhelm Brynjólfur oddviti, var nýkominn af hestbaki þegar fréttastofa náði stuttlega af honum tali. Hann hafði ekki séð yfirlýsinguna. Fréttamaður renndi yfir aðalatriði yfirlýsingarinnar og sagði Brynjólfur ekki alveg muna atburðarásina nákvæmlega svona. Hann væri upptekinn sem stæði en myndi ræða málið síðar í dag. Inga harmi slegin og miður sín Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist harmi slegin vegna framkomunnar sem lýst er og um ræðir. Hún segist gersamlega miður sín og hafi nú formlega kallað til fundar aðalstjórnar Flokks fólksins. „Þar sem við munum taka á málinu fumlaust og af þeirri festu sem við erum þekkt fyrir,“ segir Inga. Hún hefur ekki sett það fyrir sig að víkja frammámönnum úr flokknum ef svo ber undir sem til dæmis sýndi sig í tengslum við Klausturmálið svokallað; þegar þingmönnunum Ólafi Ísleifssyni og Karli Gauta Hjaltasyni var gert að víkja úr flokknum. Yfirlýsing þeirra er í heild sinni hér neðar. Yfirlýsing Málfríðar, Tinnu og Hannesínu: „Í kjölfar yfirlýsinga varaformanns Flokks fólksins í morgun höfum við sem erum þolendur alls þessa ofbeldis sem um er rætt, ákveðið að stíga fram og freista þess að útskýra líðan okkar og ömurlega reynslu af samskiptum við þessa ónefndu karlaforystu og aðstoðarmanna þeirra á frá því snemma í vor. Eftir síðustu bæjarstjórnakosningar þar sem flokkurinn okkar vann stórsigur var mikill hugur í okkur öllum, jákvæðni og þakklæti til allra þeirra sem gáfu okkur sitt dýrmæta atkvæði og um leið tækifæri til að koma kærleiksríkum góðum málstað Flokks fólksins á framfæri. Við ætluðum að vinna af krafti við að byggja upp félagstarf flokksins okkar hér heima. Einnig ætluðum við að hafa samráð varðandi öll bæjarráðsmál með því að styðja og styrkja hvert annað. En í ljósi reynslunnar af samskiptum við karlkynsforystu flokksins og aðstoðarmanna hefur þessi góði vilji okkar frekar litast af draumsýn en veruleika. Efstu konur á lista flokksins voru sífellt lítilsvirtar og hunsaðar. Á trúnaðarfundum flokksins vorum við sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar. Sumar okkar máttu sæta kynferðislegu áreiti og virkilega óviðeigandi framkomu til viðbótar við að vera ekki starfinu vaxnar og geðveikar. Þann 10. sept. sl. boðaði oddviti flokksins til fundar á heimili sínu þar sem við töldum að ætti að freista þess að koma á ró og vinnufriði á meðal okkar. Á fundinum mætti okkur mikil andúð og kuldi og yfirgaf varabæjarfulltrúi hann grátandi eftir tíu mínútur. Oddvitinn dró þá fram bréf sem hann las upp og hótaði að birta. Bréf sem var hlaðið rógburði rangfærlsum og hótunum um að við misstum starfsleyfi okkar sem heilbrigðisstarfsmenn ef við létum ekki að stjórn. Alla daga síðan hafa þessar hótanir verið viðvarandi og umræddu hótunarbréfi dreift. Eitt er víst að Þetta „samstarf“ hefur verið einstaklega taugatrekkjandi og valdið okkur öllum ómældri vanlíðan og kvíða. Að lokum viljum við segja þetta: Það er okkur sárara en tárum taki að þurfa að stíga fram og ræða opinberlega um þá erfiðleika og þau innanflokksátök sem við höfum verið að ganga í gegnum. Ástæðan að sjálfsögðu sú að við viljum ekki á neinum tímapunkti skaða flokkinn og allt það góða fólk innan Flokk fólksins sem er með hjartað á réttum stað. En nú þegar varaformaðurinn okkar hefur stígið fram og ætlar augljóslega að taka málið föstum tökum, finnst okkur ekkert annað koma til greina en að segja okkar sögu. Virðingarfyllst, Málfríður Þórðardóttir Tinna Guðmundsdóttir Hannesína Scheving Virgild Chester“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Yfirlýsing Málfríðar, Tinnu og Hannesínu: „Í kjölfar yfirlýsinga varaformanns Flokks fólksins í morgun höfum við sem erum þolendur alls þessa ofbeldis sem um er rætt, ákveðið að stíga fram og freista þess að útskýra líðan okkar og ömurlega reynslu af samskiptum við þessa ónefndu karlaforystu og aðstoðarmanna þeirra á frá því snemma í vor. Eftir síðustu bæjarstjórnakosningar þar sem flokkurinn okkar vann stórsigur var mikill hugur í okkur öllum, jákvæðni og þakklæti til allra þeirra sem gáfu okkur sitt dýrmæta atkvæði og um leið tækifæri til að koma kærleiksríkum góðum málstað Flokks fólksins á framfæri. Við ætluðum að vinna af krafti við að byggja upp félagstarf flokksins okkar hér heima. Einnig ætluðum við að hafa samráð varðandi öll bæjarráðsmál með því að styðja og styrkja hvert annað. En í ljósi reynslunnar af samskiptum við karlkynsforystu flokksins og aðstoðarmanna hefur þessi góði vilji okkar frekar litast af draumsýn en veruleika. Efstu konur á lista flokksins voru sífellt lítilsvirtar og hunsaðar. Á trúnaðarfundum flokksins vorum við sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar. Sumar okkar máttu sæta kynferðislegu áreiti og virkilega óviðeigandi framkomu til viðbótar við að vera ekki starfinu vaxnar og geðveikar. Þann 10. sept. sl. boðaði oddviti flokksins til fundar á heimili sínu þar sem við töldum að ætti að freista þess að koma á ró og vinnufriði á meðal okkar. Á fundinum mætti okkur mikil andúð og kuldi og yfirgaf varabæjarfulltrúi hann grátandi eftir tíu mínútur. Oddvitinn dró þá fram bréf sem hann las upp og hótaði að birta. Bréf sem var hlaðið rógburði rangfærlsum og hótunum um að við misstum starfsleyfi okkar sem heilbrigðisstarfsmenn ef við létum ekki að stjórn. Alla daga síðan hafa þessar hótanir verið viðvarandi og umræddu hótunarbréfi dreift. Eitt er víst að Þetta „samstarf“ hefur verið einstaklega taugatrekkjandi og valdið okkur öllum ómældri vanlíðan og kvíða. Að lokum viljum við segja þetta: Það er okkur sárara en tárum taki að þurfa að stíga fram og ræða opinberlega um þá erfiðleika og þau innanflokksátök sem við höfum verið að ganga í gegnum. Ástæðan að sjálfsögðu sú að við viljum ekki á neinum tímapunkti skaða flokkinn og allt það góða fólk innan Flokk fólksins sem er með hjartað á réttum stað. En nú þegar varaformaðurinn okkar hefur stígið fram og ætlar augljóslega að taka málið föstum tökum, finnst okkur ekkert annað koma til greina en að segja okkar sögu. Virðingarfyllst, Málfríður Þórðardóttir Tinna Guðmundsdóttir Hannesína Scheving Virgild Chester“
Flokkur fólksins Akureyri MeToo Deilur innan Flokks fólksins á Akureyri Tengdar fréttir Varaþingmaður hættur í Flokki fólksins vegna hrossamálsins Varaþingmaður Flokks fólksins er hættur í flokknum vegna tengsla við meint dýraníð í Borgarfirði. Formanni flokksins blöskraði að varaþingmaðurinn væri tengdur málinu. 6. september 2022 16:32 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira
Varaþingmaður hættur í Flokki fólksins vegna hrossamálsins Varaþingmaður Flokks fólksins er hættur í flokknum vegna tengsla við meint dýraníð í Borgarfirði. Formanni flokksins blöskraði að varaþingmaðurinn væri tengdur málinu. 6. september 2022 16:32