Skoðun

Sykur­púða snillingurinn hann Ragnar

Birna Guðný Björnsdóttir skrifar

VR birti loksins kröfugerð sína fyrir komandi kjarasamninga og nú er sko gaman að sitja og pæla hvað er framundan. Ætli að VR nái öllu fram sem þeir vilja og hvað í kröfugerðinni er mesta snilldin? Fyrir mitt leiti þá er ég ansi skotin í þeirri hugmynd að ná fram 30 daga sumarfríi handa öllum. RÍFF frí á Tene í sex fleiri daga hljómar bara mjög heillandi.

En hvernig ætlar snillingurinn hann Ragnar að ná þessu fram. Þetta er launhækkun upp á 2,87% í formi orlofs. Og þetta er krafa sem er aðskilin kröfu um almenna launahækkun. Svona auka bónus í vasa launþega.

Mig langar til að vera bjartsýn og allt það og ég vonast til að þetta náist í gegn, en kannski er ekki vitlaust að hafa smá varaáætlun. Eitthvað sem tryggir að þetta nái fram að ganga.

Það situr í mér og ég viðurkenni að ég varð frekar sár eftir kjarasamningsgerð 2016 þegar það var samþykkt af hendi verkalýðshreyfingarinnar að hækka mótframlag atvinnurekanda í lífeyrissjóð. Hækkunin var upp á heil 3,5%. Sem sagt útgjöld atvinnurekanda jukust en launþeginn fékk ekki neinn pening til sín. Vegna aukinna útgjalda fyrirtækja þá áttu launþegar erfiðar með að labba upp á skrifstofu og biðja um auka launahækkun. Sem er jú eitthvað sem launþegar gera stundum þegar þeir telja sig hafa unnið fyrir því eða þurfa á því að halda.

Hugsunin um þessa sátt skilur enn smá óbragð eftir í munninum hjá mér. Þarna voru hagsmunir lífeyrissjóða settir ofar hagsmunum launþega. Verkalýðshreyfingin samþykkti að veita lífeyrissjóðum auka lán á minn kostnað. Þeir sýndu mér þá forræðishyggju og leyfðu sér að taka þá ákvörðun að ég gæti ekki ávaxtað fé mitt betur en lífeyrissjóðirnir. Mér hefur líka verið hugsað til þess, hvað ef ég næ aldrei þeim aldri að verða 67 ára? Hvað verður um peninginn sem lífeyrissjóðurinn tók til sín sem lánsfé? Honum verður eflaust ekki skilað til barnanna minna. Mætti ekki segja það upphátt að í þeim aðstæðum hafi verkalýðshreyfingin gefið grænt ljós á stuld úr vasa launþega yfir í vasa lífeyrissjóða?

Hvernig hefur lífeyrissjóðurinn nýtt sér svo þennan stuld? Það er kannski kaldhæðnasta af öllu. Þeir hafa nýtt peninginn til að hækka verð fasteigna og standa nú í keppni við barnið mitt við kaup á húsnæði.

Væri ekki upplagt tækifæri nú að skila aftur þessum 3,5%. Taka þau bara frá lífeyrissjóðunum og færa inn á bankabók launþega í formi orlofs. Leiðrétti þyrfti reyndar kröfuna upp á 31 dag í orlof, en hver myndi kvarta yfir því? Atvinnurekendur ættu að geta samþykkt þetta og launþegar ættu að vera sömuleiðis sáttir.

Það var mjög sætt af Ragnari að læða þessu inn í kröfugerðina fyrir okkur. Vonandi nýtir hann tækifærið og leiðréttir líka tilbaka þann stuld sem átti sér stað árið 2016.

Fyrir mitt leyti þá þakka ég innilega fyrir.

Höfundur er launþegi. 




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×