Hæ, [verðbólgu]bálið brennur, bjarma á kinnar slær Tómas Ellert Tómasson skrifar 31. júlí 2022 09:00 Fáir njóta eldanna sem fyrstir kveikja þá. Um helgina munu samt sem áður margir landsmenn fá að njóta þeirra forréttinda að ylja sér fyrir framan hina ýmsu elda, sem kveiktir verða til skemmtunar. Og nú síðsumars og fram eftir hausti mun forréttindafólkið sem skipar ríkisstjórn Íslands fá að njóta þess að takast á við afleiðingar sinna sjálfsíkveikjuelda. Elda sem ekki eru ætlaðir til skemmtunar. Elda sem voru kveiktir þegar landinn var í kófi og sá ekki fyrir móðu hve aðgerðalítil ríkisstjórnin var við að verja hag landsmanna. Elda sem brenna upp kaupmátt og eignir almennings og litlu fyrirtækja landsins. Elda sem brenna sig inn að beini öryrkja. Elda sem brenna undir öldruðu fólki sem byggði upp landið okkar, jafnvel með höndunum einum saman. Verðbólgubálið brennur nú sem aldrei fyrr svo bjarma á kinnar slær. Kveikjum eld, kveikjum eld, kátt hann brennur Á meðan almenningur og litlu fyrirtæki landsins horfa upp á matarmiða sína og eignir brenna upp á verðbólgubálinu hafa ráðamenn þjóðarinnar látið hafa það eftir sér að þau séu hæstánægð með stöðuna. Þau leystu að sögn verkefnið fyrir einhverjum mánuðum og árum síðan. Og segja að nú eigi bara allir að standa saman. Standa saman og horfa á verðbólgubálið brenna upp eigur og sjálfsögð réttindi okkar til mannsæmandi lífs, norður í ballarhafi. Það sýnir sig nú, að löngu liðnar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru ekki að virka fyrir almenning. Þær eru að virka fyrir fáa útvalda og bankakerfið sem er að skila ofurhagnaði þessa daganna. Ofurhagnaður bankanna verður til meðal annars vegna þess að höfuðstóll verðtryggðu fasteignalánanna eru að hækka upp úr öllu valdi á kostnað eignarhluta íbúðaeigenda í húsnæði sínu. Á sama tíma hækka afborganir lána sem veldur því að kaupmáttur rýrnar og matvaran kostar orðið sífellt fleiri matarmiða. Matarmiða sem almenningur hefur stritað fyrir. Matarmiða sem brátt munu heyra sögunni til ef ekkert verður að gert og nefið tekið við hlutverki miðanna. Hleypum á skeið! Verðbólga hefur sýnt sig í sögulegu samhengi á Íslandi að vera skaðvaldur. Óværa sem valdið hefur ómældum fjárhagslegum og félagslegum skaða. Í dag mælist verðbólgan 9,9% á ársgrundvelli og við erum aftur stödd í bankahruninu 2008. Þökk sé fjármálasnilli ráðherrans og hinna sem skipa ríkisstjórn Íslands. Hinir í ríkisstjórninni skilja vanda landans frá barnæsku til grafar í orði eins og svo fjölmörg samúðarviðtöl þeirra vitna til um. Á borði er lítið sem vitnar um þann meinta skilning annað en vanefndir, burt flogin hænsni og teiknaðar kartöflur. Gögnin eru fengin frá Hagstofunni.Hagstofan Nei, myndritið er ekki af Hrauni í Öxnadal. Myndritið sýnir þróun vísitölu neysluverðs frá þjóðarsáttarsamningunum árið 1990. Á myndritinu sést glöggt hve staðan er orðin alvarleg í dag. Verðbólgan á hraðleið lóðbeint uppá við. Þegar slík staða er uppi í efnahagskerfinu er þörf á því að ráðamenn bregði hnakki á folann sinn og hleypi á skeið. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er sestur í hnakkinn og hefur hleypt á skeið. Hann benti á það fyrir stuttu síðan að mikil verðbólga eins og nú geisar sé til þess fallin að skemma hagkerfið og draga úr lífsgæðum, sérstaklega hjá þeim tekjulægri og ungu fólki sem er að reyna að koma undir sig fótunum. Hann nefndi í sömu andrá nokkrar nauðsynlegar neyðaraðgerðir í efnahagsmálum sem ráðast þarf í og hann mun berjast fyrir er Alþingi kemur saman á nýjan leik. Aðgerðir sem kalla ekki á skipun nefnda heldur aðgerðir sem ráðast þarf í strax þar sem þjóðin stendur nú frammi fyrir augljósri hættu á neikvæðri keðjuverkun sem getur valdið ómældu tjóni á efnahag landsins og lífsgæðum allra Íslendinga til framtíðar. Aðgerðir sem geta haft áhrif fljótt og sett af stað jákvæða keðjuverkun. Aðgerðirnar snúa að því að lækka skatta á matvæli, lækka skatta og gjöld á eldsneyti og lagfæra strax flest allt sem viðkemur skipulags- og byggingarmálum, húsnæðismál þar með talin. Kæru landsmenn, þegar þið sitjið og syngjið við varðeldana um helgina sem kveiktir eru ykkur til skemmtunar, minnist þá eigna ykkar og kaupmáttar sem brenna nú upp á heimatilbúnu verðbólgubáli ríkisstjórnarinnar. Höfundur er byggingarverkfræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tómas Ellert Tómasson Miðflokkurinn Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Verðlag Efnahagsmál Mest lesið Halldór 29.08.26 Halldór Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Skoðun Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar