Náði góðum myndum af rauða spjaldi Guðmundar Andra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júlí 2022 14:30 Hér má sjá góða mynd af atvikinu þegar Guðmundur Andri Tryggvason slær hendinni í andlit Kristijan Jajalo. Akureyri.net/Skapti Valsmenn misstu mann af velli í stöðunni 1-0 á móti KA í Bestu deildinni í gær og enduðu á því að fara bara með eitt stig suður til Reykjavíkur.
Lykilatriði fyrir Valsmenn var því þegar þeir misstu mann af velli á 68. mínútu en þá hafði Tryggvi Hrafn Haraldsson komið Valsliðinu yfir fjórum mínútum fyrr. Hér í fréttinni má sjá bæði myndband af atvikinu sem og flottar myndir á akureyri.net. KA-menn tóku völdin manni fleiri og tókst síðan að jafna metin á 82. mínútu með marki Nökkvi Þeys Þórissonar. Það voru aftur á móti ekki skoruð fleiri mörk og liðin sættust því á 1-1 jafntefli. Stærsta atvikið í leiknum var þetta rauða spjald sem Guðmundur Andri Tryggvason fékk fyrir að slá til Kristijan Jajalo, markvarðar KA. Erlendur Eiríksson var ekki í vafa og lyfti strax rauða spjaldinu. Klippa: Rauða spjaldið hjá Guðmundi Tryggva Jajalo var búinn að taka boltann og Guðmundur Andri átti aldrei möguleika í hann. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum ákvað hann hins vegar að slá til Jajalo. Það má sjá þetta atvik hér fyrir ofan. Skapti Hallgrímsson hefur mætt á ófáa leikina í gegnum tíðina, bæði sem blaðamaður og ljósmyndari (og stundum bæði) og hann var vel á verði í gær þegar umrætt brot átti sér stað. Skapti sem gefur út netmiðilinn akureyri.net við góðan orðstír náði góðum myndum af þessu atviki. Þar sést vel þegar Guðmundur Andri setur höndina í andlit Jajalo. Það má finna tvær af myndum hans hér í þessari frétt en einnig má finna myndasyrpuna hans með því að smella hér. Erlendur Eiríksson var ekki í vafa og lyfti strax rauða spjaldinu eftir atvikið sem má sjá hér fyrir ofan.Akureyri.net/Skapti
Besta deild karla Valur KA Mest lesið „Það hjálpar ekki neitt“ Handbolti Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Enski boltinn „Haukur og Einar ekki komnir til að vera í stúkunni“ Handbolti Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fótbolti Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Enski boltinn Setti Íslandsmet í klassískri bekkpressu í gær Sport Króatísk goðsögn segir Dag og Cindric hafa lent í rifrildi Handbolti Strákarnir okkar gætu verið ofar og neðar en Slóvenar á sama tíma Handbolti Elliði skipti út rauðu skónum eftir rauðu spjöldin Handbolti Segir Ísland verða að vinna Slóveníu Handbolti Fleiri fréttir Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Víkingar fá mikinn liðsstyrk Valur semur við norskan miðvörð Víkingar með ólöglegan leikmann á móti KR Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Kári segir Atla geta orðið „unplayable“ Atli á leið til Víkings Láki sækir leikmann sem hann þekkir vel Eyþór sóttur í Fylki: „Loksins einhver að koma að leika við þig“ Nýju þjálfararnir byrjuðu á 8-0 sigri á KR Fengu Gumma Ben til að lýsa og stjörnur til að spila í styrktarleik fyrir vin sinn Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Stórsigur hjá KR-ingum Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings Sjá meira