Sjáðu neglu Daníels og örvfættu reynsluboltana galdra fram sigurmark Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. maí 2022 09:31 Þórarinn Ingi Valdimarsson átti stóran þátt í sigurmarkið með geggjaðri sendingu úr öftustu línu. Hér fagnar hann sigri Stjörnunnar í leikslok. Visir/Hulda Margrét Stjarnan varð fyrsta liðið til að vinna Valsmenn í gær en eina mark leiksins kom ekki fyrr en í uppbótartíma. FH og KA unnu einnig góða sigra þegar sjötta umferð Bestu deildarinnar fór af stað en hér má ská öll mörkin frá því í gær.
Varamaðurinn Oliver Haurits tryggði Stjörnunni 1-0 sigur á Val með marki á annarri mínútu uppbótatímans aðeins sjö mínútum eftir að hann kom inn á fyrir markahæsta leikmann Bestu deildarinnar. Haurits átti ekki í miklum vandræðum með að renna boltanum í markið en áður höfðu örvfættu reynsluboltarnir Þórarinn Ingi Valdimarsson og Óskar Örn Hauksson opnað vörn Valsmanna með frábærri samvinnu. Þórarinn Ingi þræddi boltanum úr öftustu línu inn í frábært hlaup Óskars Arnar inn í teiginn og Óskar Örn gerði mjög vel að finna Haurits galopinn fyrir framan markið. Klippa: Stúkan: Markasyrpa frá sunnudeginum 15. maí 2022 Matthías Vilhjálmsson kom FH í 1-0 á móti ÍBV og Davíð Snær Jóhannsson opnaði síðan markareikning sinn hjá Hafnarfjarðarliðinu í þessum 2-0 sigri. Daníel Hafsteinsson, Elfar Árni Aðalsteinsson og Jakob Snær Árnason skoruðu mörk KA í 3-0 á ÍA upp á Skaga en mark Daníels var sérstaklega glæsilegt þrumuskot fyrir utan teig sem endaði upp í bláhorninu á marki Skagamanna. Hér fyrir ofan og neðan má sjá öll mörkin sem voru skoruð í Bestu deildinni í gær og fyrir neðan lengri útgáfu af hinum glæsilega undirbúningi Þórarins Inga og Óskars Arnar. Klippa: Sigurmark Stjörnunnar á móti Val 15. maí 2022
Besta deild karla Stjarnan KA FH Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira