Genoa tapaði sínum fyrsta leik síðan í janúar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 4. apríl 2022 18:30 Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er á mála hjá Genoa. Alessandro Sabattini/Getty Images Albert gekk í raðir Genoa í janúar og á að hjálpa liðinu að halda sæti sínu í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það hefur gengið ágætlega að hala inn stig þó liðið hefði eflaust verið til í fleiri sigra eftir sjö jafntefli í röð. Fyrsti sigurinn kom svo 18. mars áður en farið var í landsleikjahlé. Liðið byrjar ekki lokakafla deildarinnar byrlega en Genoa tapaði 1-0 á útivelli fyrir Verona í kvöld. Albert spilaði fyrri hálfleikinn og nældi sér í gult spjald undir lok hans. Giovanni Simeone, sonur Diego – þjálfara Atlético Madríd, var enn á ný á skotskónum fyrir Verona en hann skoraði eina mark leiksins strax á fimmtu mínútu. Lokatölur 1-0 Verona í vil og Genoa því áfram í 19. sæti með 22 stig, þremur stigum frá öruggum sæti. Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Fótbolti Ítalski boltinn
Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti