FH í úrslit Lengjubikarsins eftir sigur á Stjörnunni: Sjáðu mörkin Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. mars 2022 16:00 Matthías Vilhjálmsson og félagar eru komnir í úrslit Lengjubikarsins. Vísir/Hulda Margrét FH vann 3-1 sigur á Stjörnunni í undanúrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag. FH mætir Íslands- og bikarmeisturum Víkings í úrslitum.
Leikar voru jafnir framan af leik en eftir rúmlega hálftíma leik kom Eggert Gunnþór Jónsson FH yfir. Ástbjörn Þórðarson átti þá góða sendingu inn á teig og Eggert Gunnþór kom boltanum í netið. Staðan 1-0 FH í vil í hálfleik. Emil Atlason hefur raðað inn mörkum á árinu.Vísir/Hulda Margrét Emil Atlason hefur verið sjóðandi heitur það sem af er undirbúningstímabili fyrir Stjörnuna og hann jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks með góðum skalla eftir hornspyrnu Jóhanns Árna Gunnarssonar. Þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka kom Kristinn Freyr Sigurðsson FH yfir á nýjan leik eftir stoðsendingu Matthíasar Vilhjálmssonar. Það var svo Ólafur Guðmundsson sem gerði endanlega út um leikinn þegar fjórar mínútur voru til leiksloka, lokatölur 3-1 og FH komið í úrslit. Úrslitaleikur Lengjubikarsins fer fram laugardaginn 2. apríl og verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport. Klippa: Mörkin úr leik FH og Stjörnunnar
Fótbolti Íslenski boltinn FH Stjarnan Tengdar fréttir Ingvar vítabani heldur áfram að koma Víkingi nær titlum: Sjáðu atvikin Víkingur og KR áttust við í undanúrslitum Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld. Íslandsmeistarar Víkings höfðu betur 1-0, en KR-ingar fengu gullið tækifæri til að jafna leikinn um miðjan síðari hálfleik. 15. mars 2022 23:01 Pablo Punyed skaut Víkingum í úrslit Lengjubikarsins Pablo Punyed skoraði eina mark leiksins er Íslandsmeistarar Víkings unnu 1-0 sigur gegn KR í undanúrslitum Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld. 15. mars 2022 21:16 Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira
Ingvar vítabani heldur áfram að koma Víkingi nær titlum: Sjáðu atvikin Víkingur og KR áttust við í undanúrslitum Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld. Íslandsmeistarar Víkings höfðu betur 1-0, en KR-ingar fengu gullið tækifæri til að jafna leikinn um miðjan síðari hálfleik. 15. mars 2022 23:01
Pablo Punyed skaut Víkingum í úrslit Lengjubikarsins Pablo Punyed skoraði eina mark leiksins er Íslandsmeistarar Víkings unnu 1-0 sigur gegn KR í undanúrslitum Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld. 15. mars 2022 21:16