Gat litlu svarað um fjármál Zuism og ráðstöfun fjármuna Kjartan Kjartansson skrifar 25. febrúar 2022 13:24 Ágúst Arnar Ágústsson, forstöðumaður Zuism, (f.m), í dómsal í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. vísir/vilhelm Fátt var um svör og skýringar þegar Ágúst Arnar Ágústsson, forstöðumaður Zuism, var spurður út í fjármál félagsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ágúst og bróðir hans Einar eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti.
Auk bræðranna er trúfélagið Zuism sjálft, einkahlutafélagið EAF sem Einar er í forsvari fyrir og bandaríska skúffufélagið Threescore LLC í Delaware ákært í málinu. Bræðurnir millifærðu meðal annars stóran hluta fjármuna Zuism á félagið EAF sem þeir létu Zuism síðar kaupa af öðru félagi Einars. Í ákæru héraðssaksóknara eru bræðurnir sakaðir um að hafa valdið íslenska ríkinu verulegri fjártjónshættu og fjártóni í reynd með því að styrkja og hagnýta sér ranga hugmynd embættismanna að trúfélagið Zuism uppfyllti skilyrði fyrir skráningu trúfélags. Á þeim forsendum hafi félagið fengið rúmlega 84,7 milljónir króna í sóknargjöld frá ríkinu. Bræðurnir eru sakaðir um að hafa nýtt fjármunina að miklu leyti í eigin þágu og félaga í þeirra eigu. Blekkingar bræðranna eru sagðar hafa snúist um að innan Zuism væri lögð stund á trú í virkri og stöðugri starfsemi og að í því væri kjarni félagsmanna sem tæki þátt í starfsemi og styddi lífsgildi þess. Zuism var um tíma eitt fjölmennasta trúfélag landsins með yfir þrjú þúsund félaga vegna loforðs um endurgreiðslur sóknargjalda til félagsmanna sem hópur ótengdur bræðrunum gaf opinberlega árið 2015. Þegar Finnur Þór Vilhjálmsson, saksóknari, spurði Ágúst Arnar út í fjármál Zuism og hvernig þeir Einar hefðu ráðstafað fjármunum þess var jafnan fátt um svör. Finnur lagði fyrir ítarlegt skjal um hvernig þeir hefðu ýmist millifært fé af reikningum Zuism yfir á önnur félög eða tekið út fé með debitkortum eða úttektum og spurði forstöðumanninn í hvað þeir hefðu notað féð. „Ég þarf að rifja það upp. Ég held að ég sleppi því að svara núna,“ sagði Ágúst Arnar eftir langa umhugsun. Vísaði hann í skýrslu sem hann gaf héraðssaksóknara á sínum tíma á endanum. Hafði „rosalega litlar útskýringar“ Mikil leynd hefur ríkt yfir fjármálum Zuism en skýrslur sem félaginu bar að skila til sýslumannsins á Norðurlandi eystra, sem hefur eftirlit með starfsemi trúfélaga, gáfu ruglingslega mynd af útgjöldum þess og tekjum. Ágúst Arnar gat ekki skýrt hvers vegna rekstrarkostnaður jókst um tíu milljónir á milli ára né hvers vegna hann tilgreindi 35,7 milljónir króna í óvenjulega útgjaldaliði í einni ársskýrslunni fyrir dómi í morgun. „Ég hef rosalega litlar útskýringar um af hverju hún er svona enda var hún svo leiðrétt,“ sagði Ágúst Arnar um skýrslu um starfsemi Zuism árið 2017. Lagði hann áherslu á að félagið hefði síðar leiðrétt skýrsluna að eigin frumkvæði. Eignir upp á fimmta tug milljóna króna sem Zuism greindi frá í ársskýrslu fyrir árið 2017 sem Ágúst Arnar uppfærði árið 2019 sagði hann að hefði mest megnis verið í formi lána, lánalína og peninga. Óformlegir fundir og fólk boðað á samkomur í síma Svör Ágústs Arnars um margt annað varðandi stofnun, starfsemi og fundi Zuism voru á svipaða leið. Hann sagðist ýmist ekki vita, muna eða vilja svara spurningum saksóknara. Það síðastanefnd átti sérstaklega við þegar saksóknari innti hann eftir hverjir hefðu tekið þátt í samkomum á vegum Zuism sem umdeilt er hvort að hafi raunverulega farið fram. Vísaði Ágúst Arnar til þess að viðstaddir samkomurnar nytu trúfrelsis. Í ársskýrslum sínum hélt Zuism því fram að tugir samkoma hefðu verið haldnir á vegum þess á hverju ári. Engar auglýsingar um tímasetta viðburði hafa þó fundist á vefsíðu félagsins eða annars staðar. Ágúst Arnar hélt því fram að hann hefði meðal annars boðað til samkoma með því að hringja í fólk og að auglýsing hafi hangið á töflu á skrifstofu þeirra bræðra í Borgartúni. Zuism virðist þó ekki hafa haft neina starfsemi í því húsnæði og skrifstofan var aðeins eitt herbergi sem þeir leigðu af Flugvirkjafélagi Íslands. Ágúst Arnar bar því meðal annars við að hann hefði legið undir líflátshótunum um tíma hann því ekki verið í „rosalega góðu skapi“ til að auglýsa hvar hann yrði staddur. Skjal sem fannst á heimili Ágústs Arnars benti til að viðstaddir á samkomum Zuism hafi að jafnaði verið innan við tíu, jafnvel eftir að þúsundir manna voru félagar í því. Þeir einu sem Ágúst Arnar gat staðfest að hefðu verið viðstaddir stjórnarfundi eða samkomur Zuism í gegnum árin voru Einar bróðir hans og kona hans. Fundir stjórnar Zuism virðast hafa verið afar óformlegir ef marka má lýsingar Ágústs Arnars. Þeir hafi oft aðeins verið þeir bræðurnir auk konu Einars. Náin tengsl þeirra útskýrðu hvers vegna fundargerðir voru oftar en ekki óundirritaðar. Efni funda og samkoma hafi oft verið að „ræða“ hlutina og fræðast um trúna. Sakaði saksóknara um að hafa skemmt mannorð sitt Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur haldið eftir sóknargjöldum Zuism í að verða þrjú ár vegna verulegrar óvissu um að raunveruleg starfsemi fari fram á vegum félagsins og að það uppfylli skilyrði laga um trúfélög. Mikla gremju mátti greina í svörum Ágústs Arnars í garð Halldórs Þormars Halldórssonar, lögfræðings hjá sýslumanni sem sér um málefni trúfélaga, og Finns saksóknara. Verjendur þeirra Einars lögðu fram frávísunarkröfu á síðustu stundu í gær þar sem þeir töldu sig hafa fundið skjal sem sýndi fram á einhvers konar samkrull þeirra Finns og Halldórs Þormars sem sýndi að rannsókn á þeim hefði í raun hafist mun fyrr en segir í ákæru. Það sýndi ennfremur fram á að Finnur væri hlutdrægur gegn þeim. Dómari hafnaði kröfunni. Sagði Ágúst Arnar að honum væri ofboðið að þurfa að vera í réttarsal í dag í ljósi þeirra gagna. „Þessi maður er búinn að skemma mannorð mitt. Ég er svo reiður að þurfa að vera hérna og þurfa að tala við þennan mann,“ sagði Ágúst Arnar. Þungur hugur hans til Finns fór ekki á milli mála. Ágúst Arnar bað Finn ítrekað um að endurtaka spurningar sínar eða svaraði honum með þjósti.
Zuism Trúmál Dómsmál Tengdar fréttir Kröfu zúista um frávísun á fjársvikamáli hafnað Lögmenn tveggja bræðra sem eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við trúfélagið Zuism kröfðust þess í morgun að málinu gegn þeim yrði vísað frá vegna meints vanhæfis saksóknara. Dómari ákvað eftir að hafa velt málinu fyrir sér í um klukkustund að vísa kröfunni frá. 25. febrúar 2022 10:29 Zuism nýtti sér þekkta veikleika á lögum um trúfélög Ríkislögreglustjóri varaði við því að ófullnægjandi lög um trú- og lífsskoðunarfélög sköpuðu hættu á að þau væru misnotuð í þágu brotastarfsemi meira en ári áður en stjórnendur Zuism voru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. 21. desember 2020 09:01 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Fagna „heimkomu“ Baldurs eftir margra vikna fjarveru Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira
Kröfu zúista um frávísun á fjársvikamáli hafnað Lögmenn tveggja bræðra sem eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við trúfélagið Zuism kröfðust þess í morgun að málinu gegn þeim yrði vísað frá vegna meints vanhæfis saksóknara. Dómari ákvað eftir að hafa velt málinu fyrir sér í um klukkustund að vísa kröfunni frá. 25. febrúar 2022 10:29
Zuism nýtti sér þekkta veikleika á lögum um trúfélög Ríkislögreglustjóri varaði við því að ófullnægjandi lög um trú- og lífsskoðunarfélög sköpuðu hættu á að þau væru misnotuð í þágu brotastarfsemi meira en ári áður en stjórnendur Zuism voru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. 21. desember 2020 09:01