Svakalegar myndir þegar Oakland Hills brann: Hefur hýst risamót og Ryderinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2022 15:01 Hér má sjá húsið hjá Oakland Hills golfklúbbnum brenna. AP/Daniel Mears Sögulegt klúbbhús Oakland Hills golfvallarins fuðraði nánast upp í miklum bruna í gær. Þetta er einn af virtustu golfvöllum Bandaríkjanna.
Eldurinn er mikið áfall fyrir marg. Klúbbhúsið í Oakland Hills er hundrað ára gamalt og hefur sérsakan sess í huga margra af bestu kylfingum heims. Images from the current fire at Oakland Hills CC are chilling. Building dates back to 1922. Awful. Video submitted from an individual on the ground: pic.twitter.com/UdiP8G0D7i— Brendan Quinn (@BFQuinn) February 17, 2022 Oakland Hills golfvöllurinn er nefnilega af hinum þekktari í Bandaríkjunum og hann hefur haldið fjórtán stórmót. Byggingin var frá árinu 1922 en golfvöllurinn er staðsettur fyrir utan Detroit borg. Á þessum golfvelli hafa farið fram níu risamót og þá var Ryder-bikarinn haldinn þarna árið 2004. Opna bandaríska mótið fór fram í sjötta og síðasta sinn á vellinum árið 1996 en PGA-meistaramótið var haldið þar árið 2008, þá í þriðja sinn. Fólk í húsinu hringdi í lögregluna klukkan 9.17 um morguninn að staðartíma eftir að hafa fundið reykjarlykt. Það var hins vegar ekki auðvelt fyrir slökkviliðsmenn að finna upptök reykjarins í svo stórri byggingu. Þegar eldurinn blossaði svo upp þá réð enginn við neitt. „Þetta er mjög erfiður dagur. Þessi dagur er reiðarslag fyrir Oakland Hills, fyrir golfsamfélagið, fyrir klúbbmeðlimina og fyrir starfsfólkið okkar,“ sagði Rick Palmer, forseti Oakland Hills golfklúbbsins. „Það er svo mikil saga hér. Blessunarlega þá meiddist enginn og allir komust út úr byggingunni,“ sagði Palmer. Að hans mati er byggingin ónýt og verður ekki bjargað. A devastating fire has torn through Oakland Hills Country Club in Michigan, inflicting "extensive damage" to the clubhouse at the course famed for hosting the 2004 Ryder Cup. pic.twitter.com/Zsid1l5IHB— Sky Sports News (@SkySportsNews) February 17, 2022
Golf Bandaríkin Ryder-bikarinn Mest lesið Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Fótbolti Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Handbolti Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Enski boltinn Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Enski boltinn Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Enski boltinn Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Körfubolti Fleiri fréttir Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Ástand í Noregi: Hátt upp í fimm þúsund kylfingar án klúbbs Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira