Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður Flokks fólksins spurðu heilbrigðisráðherra út í biðlista eftir ýmsum aðgerðum sem þýddi að fólk þyrfti að leita sér aðstoðar á eigin kostnað í útlöndum.

Þorgerður vísaði til ummæla nýsetts forstjóra Landspítalans í fjölmiðlum um að það væri ekki sjálfgefið að spítalinn sinnti öllum þeim verkefnum sem hann gerði í dag. Það hafi hins vegar verið stefna stjórnvalda frá tíð síðustu ríkisstjórnar að safna allri heilbrigðisþjónustu landsins undir Landspítalann og biðlistar væru langir.
„Sjúkratryggingar mega ekki endurgreiða konu upp á tólf hundruð þúsund krónur fyrir þjónustu sem hún leitaði í Klíníkinni. En vesgú, það má borga þetta ef þetta fer á einkaklíník í útlöndum. Hvers konar della er þetta. Þetta er pólitísk ákvörðun fyrst og fremst,“ sagði Þorgerður Katrín.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra sagði þessi mál öll til endurskoðunar. Mikilvægt væri að nýta alla þá þekkingu sem til væri í kerfinu hér á landi.
„Háttvirtur þingmaður kemur hér inn á liðskiptaaðgerðir. Þá er það markmið okkar allra að sjúklingar geti farið í aðgerðir hér á landi. Það á alveg að ganga upp. Til þess þurfum við að horfa á þetta allt í heild sinni. Þessi vinna er farin af stað og þetta samtal er hafið,“ segir Willum.

Guðmundur Ingi vísaði til fréttar á Stöð 2 í gærkvöldi þar sem sagt var frá ungri konu sem búin var að bíða í tvö ár eftir aðgerð og hefði nú leitað til Póllands til að fá lausn meina sinna. Hún þyrfti hins vegar að greiða um eina og hálfa milljón úr eigin vasa þar sem aðgerðin væri framkvæmd á einkastofu í Póllandi.
„Á sama tíma og við höfum verið að semja til dæmis við Klíníkina um að fá starfsfólk þaðan yfir á Landspítalann til að vinna erum við ekki að semja um að að sjá til þess að við þurfum ekki að senda fólk til útlanda í aðgerðir með tvöfalt til þrefalt meiri kostnaði,“ sagði Guðmundur Ingi.
Heilbrigðisráðhera sagði unnið að því að koma upp miðlægum grunni fyrir biðlista svo hægt væri að átta sig á stöðunni.
„Ég er tiltölulega óþreyjufullur þegar kemur að þessu verkefni. Ég hef ýtt verulega á það bæði í ráðuneytinu og í samtölum við þá aðila sem þurfa að koma að þessu verkefni,“ sagði Willum Þór Þórsson.