Innlent

Af­létta ó­vissu­stigi al­manna­varna vegna Log4j

Atli Ísleifsson skrifar
Ekkert atvik hefur verið tilkynnt þar sem brotist hefur verið inn í kerfi með log4j veikleikanum.
Ekkert atvik hefur verið tilkynnt þar sem brotist hefur verið inn í kerfi með log4j veikleikanum. Getty

Ríkislögreglustjóri í samráði við netöryggissveit CERT-IS og Fjarskiptastofu aflétt óvissustigi almannavarna vegna Log4j veikleikans.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir frá því í tilkynningu að allir ómissandi innviðir og þjónusta starfi eðlilega og séu ekki skert eða takmörkuð. 

„Rekstraraðilar kerfa hafa brugðist vel við undanfarnar vikur og náð tökum á veikleikanum.

Ekkert atvik hefur verið tilkynnt þar sem brotist hefur verið inn í kerfi með log4j veikleikanum. Fylgst verður áfram náið með kerfum og hegðun þeirra ásamt þróun veikleikans á heimsvísu og hvaða áhrif hún gæti haft. 

Rekstraraðilar eru hvattir til að vakta kerfi sín sérstaklega og fylgjast með óeðlilegri hegðun sem og nýjum uppfærslum á Log4j kóðasafni,“ segir í tilkynningunni.

Óvissustigi var lýst yfir 13. desember síðastliðinn, en viðskiptavinirfyrirtækja og stofnana voru þá varaðir við að ýmis kerfi gætu verið fyrirvaralaust tekin úr umferð tímabundið meðan unnið væru að nauðsynlegum uppfærslum.


Tengdar fréttir

Nýir veikleikar í Log4j uppgötvuðust

Um helgina uppgötvuðust nýir veikleikar í Log4j kóða safninu sem rekstraraðilar þurfa að bregðast við. Enn er mikið um tilraunir til árása sem byggja á veikleikanum. Í ljósi þessara upplýsinga ríkir áfram óvissustig almannavarna.

Engar netárásir enn verið gerðar sem nýtt hafa Log4j

Engar netárásir hafa enn verið gerðar hér á landi svo vitað sé sem nýtt hafa sér veikleikann Log4j. Áhyggjur eru uppi um að tölvuþrjótar muni nýta sér veikleikann til að koma fyrir vírusum á tölvukerfum. 

Mikill vöxtur er í til­raunum til tölvu­á­rása vegna Log4j

Netöryggissveitinni CERT-IS hefur ekki verið tilkynnt um atvik þar sem brotist hefur verið inn í kerfi með Log4j veikleikanum en mikill vöxtur er í tilraunum til árása. Óvissustig almannavarna er enn í gildi vegna veikleikans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×