Netöryggi

Fréttamynd

Níu­tíu milljóna tjón á nokkrum vikum

Frá því að ný netgátt fyrir netglæpi var opnuð um miðjan apríl hafa borist til hennar um 250 ábendingar um netbrot og á þriðja tug mála farið í rannsókn, flest hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fjárhagstjón þessara glæpa nemur um 91 milljón íslenskra króna.

Innlent
Fréttamynd

Net­varnir í gervi­greindum heimi

Því hefur verið spáð í nokkur ár að það sé einungis tímaspursmál hvenær nútíma gervigreindarmódel nái því þroskastigi að geta framkvæmt heildstæðar netárásir og nýtt sér alla árásárkeðjuna svokölluðu sem netglæpamenn hafa haft að leiðarljósi í áratugi.

Skoðun
Fréttamynd

Tölvuárás á Grund: Af­rituðu gögn um tugi þúsunda manns

Netþrjótar komust í upplýsingar um tugi þúsunda fyrrverandi og núverandi skjólstæðinga, starfsmanna og aðstandenda á Grundarheimilum þegar þeir réðust á netþjóna hjúkrunarheimilanna í desember. Interpol og Europol koma að rannsókn málsins ásamt lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Net­miðlar myndu flestir liggja niðri á Ís­landi

Flestir íslenskir netmiðlar myndu liggja niðri ef sambandið myndi rofna við útlönd, en þó ekki Vísir að sögn sérfræðings. Hann segir það koma mörgum á óvart hve bjargarlausir Íslendingar verða þegar netsamband rofnar með þessum hætti, málið snúist um stafrænt fullveldi.

Innlent
Fréttamynd

Þegar enginn lætur vita - ofbeiting laga og kerfisblinda

Þegar netsvik eru annars vegar er einn viðkvæmasti hópurinn eldra fólk og einstaklingar sem þarfnast umönnunar. Tölfræðin sýnir að einstaklingar 65 ára og eldri verða fyrir mun hærra meðaltjóni í slíkum svikum en aðrir aldurshópar, oft tvö- til þrefalt hærra, þar sem slíkar svikagreiðslur eru oft óafturkræfar.

Skoðun
Fréttamynd

Arion banki varar við svikaherferð

Arion banki varar við svikaherferð þar sem svikarar senda smáskilaboð sem virðast tengjast pakka eða sendingu. Slík skilaboð geta nú borist úr íslenskum símanúmerum.

Innlent
Fréttamynd

ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða

Eftirlitsstofnun Evrópusambandsins sektaði samfélagsmiðilinn X um 120 milljónir evra, jafnvirði tæpra átján milljarða króna, fyrir að brjóta lög um stafræna þjónustu. X er fyrsta fyrirtækið sem er sektað á grundvelli laganna en það er sakað um að vernda notendur sína ekki fyrir svikum og prettum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Bilunin hjá Cloudflare ó­venju­lega löng

Fjölmargar vefsíður lágu niður klukkutímum saman í dag vegna bilunar hjá einni vefþjónustu. Forstöðumaður netöryggissveitar CERT-IS segir mikilvægt að stofnanir séu með góðar varaleiðir, sem hægt sé að grípa í þegar bilun sem þessi kemur upp, svo nauðsynleg þjónusta liggi ekki niðri.

Innlent
Fréttamynd

Nóvember er tími netsvikara

Nú stendur yfir mesti netverslunarmánuður ársins, nóvember. Nóvember er ekki bara stærsti netverslunarmánuður ársins heldur sá langstærsti samkvæmt greiningum Rannsóknarseturs verslunarinnar.

Skoðun
Fréttamynd

Engir sér­fræðingar að verki og sá yngsti um tví­tugt

Mennirnir fimm sem eru grunaðir um að hafa stolið hundruðum milljóna króna af Landsbankanum gátu margfaldað upphæðir við millifærslur á eigin reikningum. Ekkert bendir til þess að þeir hafi búið yfir sérfræðiþekkingu. Reiknistofa bankanna segir að um misnotkun á veikleika í hugbúnaði sé að ræða og að mennirnir hafi ekki átt vitorðsmann innan Reiknistofunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir

Meðal þess sem lögregla hefur haldlagt vegna umfangsmikils fjársvikamáls þar sem hundruðum milljóna var stolið af íslenskum bönkum eru bílar og rafmyntir. Ekki er útilokað að upphæðirnar reynist hærri en talið var í fyrstu. Þetta er meðal þess sem kom fram í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar í kvöld.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stálu hundruðum milljóna hjá Lands­bankanum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar fjársvik upp á um fjögur hundruð milljónir af íslensku bönkunum. Einstaklingum tókst að millifæra háar upphæðum af eigin reikningum án þess að inneign væri til staðar vegna galla hjá Reiknistofu bankanna. Fimm sæta farbanni grunaðir um aðild að málinu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

764/O9A: Kannt þú að vernda barnið á netinu?

Undanfarið hafa bara verið slæmar fréttir um hin ýmsu mál á netinu. Nú seinast þessa ofbeldishópa á netinu. Nú munu koma alls konar sérfræðingar til að segja það sem hefur verið sagt oft áður. „Tala bara við börnin“. Ok, um hvað? Viti þið venjulega fólkið sem hrærist ekki í þessum tölvuleikjaheimi hverju þið eruð raunverulega að leita að? Viti þið hverju þið eruð að reyna að verjast? Hverjar hætturnar eru yfirhöfuð?

Skoðun