Erlent

Bein út­sending: Hver fær Nóbels­verð­launin í læknis­fræði?

Atli Ísleifsson skrifar
Næstu daga verður tilmynnt um nýja handhafa Nóbelsverðlaunanna.
Næstu daga verður tilmynnt um nýja handhafa Nóbelsverðlaunanna. Getty/picture alliance

Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði.

Fréttamannafundurinn fer fram í Stokkhólmi og verður í beinni útsendingu sem fylgjast má með í spilaranum hér fyrir neðan. Hefst fundurinn klukkan 9:30 að íslenskum tíma.

Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði hafa verið afhent frá árinu 1901, en það voru Bandaríkjamennirnir Harvey J. Alter, Michael Houghton og Charles M. Rice sem fengu Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði á síðasta ári fyrir uppgötvanir sínar um lifrarbólgu C veiruna.

Greint verður frá því hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í hinum ýmsu flokkum nú í vikunni.

Tilkynnt um handhafa Nóbelsverðlauna 2021

  • Mánudagur 4. október: Lífefna- og læknisfræði
  • Þriðjudagur 5. okótber: Eðlisfræði
  • Miðvikudagur 6. október: Efnafræði
  • Fimmtudagur 7. október: Bókmenntir
  • Föstudagur 8. október: Friðarverðlaun Nóbels
  • Mánudagur 11. október: Hagfræðiverðlaun Seðlabanka Svíþjóðar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×