Dregur úr vilja til ferðalaga til Íslands Heimir Már Pétursson skrifar 16. september 2021 20:15 Bandaríkjamenn hafa verið um helmingur þeirra farþega sem komið hafa til landsins á þessu ári. Stöð 2/Egill Dregið hefur úr áhuga á ferðalögum til Íslands eftir að allir farþegar voru skyldaðir í lok júlí til að framvísa neikvæðu PCR eða hraðprófi á brottfararstað, hvort sem þeir eru bólusettir eða ekki. Mest munar um Bandaríkjamenn í fjölgun farþega í sumar sem leið.
Fyrstu átta mánuði ársins hafa 445 þúsund farþegar komið til Íslands samanborið við 558 þúsund í fyrra og 1,8 milljónir fyrstu átta mánuðina 2019. Hér sést hvað farþegafjöldinn var lítill fyrstu átta mánuði ársins í ár og fyrra í samanburði við árið 2019.Grafík/Helgi Þegar samdrátturinn varð hvað mestur á Keflavíkurflugvelli fóru daglegar flughreyfingar frá niður í eina til þrjár. Í dag fara fimmtíu flugvélar frá flugvellinum og annar eins fjöldi lendir. Það er því greinilegt að ferðamennskan er að taka við sér. Það var ys og þys á Keflavíkurflugvelli þegar flugvélarnar frá Bandaríkjunum komu inn snemma í morgun. Meðal farþega voru vinkonurnar Susan Campel frá Philadelphia og Sue Dugan frá Pittsburg sem höfðu beðið lengi eftir því að komast í ferðalög á ný. „Ertu að grínast í mér,“ sagði Susan glöð í bragði. Þetta væri önnur ferð hennar á þessu ári og hún stefndi á þá þriðju í nóvember. Susan Campel frá Philadelphia er lengst til hægri á þessari mynd og Sue Dugan frá Pittsburg er lengst til vinstri.Stöð 2/Egill „Við þurftum að fresta ferð okkar til Íslands um eitt ár,“ segir Sue. Þær hefðu heyrt vel látið af landinu. „Margir hafa sagt mér að ég yrði að sjá Ísland. Það væri fallegt og öðruvísi. Þannig að það hefur verið á forgangslista hjá mér,“ segir Sue Dugan. Mikil bjartsýni ríkti um vöxt ferðaþjónustunnar árið 2019 þegar rúmlega 7,2 milljónir farþega fóru um Keflavíkurflugvöll. Síðan skall áfallið vegna kórónuveirufaraldursins á með vaxandi þunga í byrjun árs 2020. Guðmundur Daði Rúnarsson framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia segir lokun Bandaríkjanna í fyrra vor hafa gert útslagið. Guðmundur Daði Rúnarsson framkvæmdastjóri hjá Isavia segir að eftir að þess var krafist í lok júlí að allir farþegar til Íslands þyrftu að framvísa neikvæðu PCR eða hraðprófi á brottfararstað hafi dregið úr ferðavilja til Íslands.Stöð 2/Egill „Þá náttúrlega hrundi umferðin hérna mjög hratt. Það var byrjað að hægja aðeins á í byrjun mars 2020 þegar covid faraldurinn var að byrja að herja á heiminn. En þegar lokanir gerðust um miðjan mánuðinn og svo þegar gripið var til lokana á okkar landamærum í lok mars varð umferðin nánast ekki að neinu mjög snögglega,“ segir Guðmundur Daði. Hér sést hvernig farþegum fækkaði snögglega þegar komið var fram í mars 2020. Eftir að þeim fjölgaði lítillega í júní og júlí fækkaði þeim síðan mjög mikið á haustmánuðunum. Þeir heldust mjög fáir þar til þeim fór að fjölga aftur í júní á þessu ári (rauði liturinn).Grafík/Helgi Hér sjáum við heildarfarþegafjöldann um Keflavík eftir mánuðum meðan allt lék í lyndi árið 2019 og svo stöðuna 2020 í samanburðinum. Farþegum fjölgaði duglega um tíma í fyrra sumar eftir að öllum aðgerðum var aflétt um mánaðamótin júní júlí. Síðan tók við annað samdráttarskeið eftir að gripið var til aðgerða á ný í september fram í júní á þessu ári. Og Bandaríkin halda áfram að vera örlagavaldur því það eru aðallega farþegar frá þaðan sem eru helst að bjarga málum. „Þeir eru búnir að vera um eða yfir fimmtíu prósent af ferðamönnum til Íslands. Þeir eru mjög góðir ferðamenn fyrir okkur. Þeir eru verðmætir. Það skiptir öllu máli fyrir flugvöllinn og flugfélögin að það sé opið hér fyrir bandaríkjamarkað enda hefur hann verið okkar mikilvægasti markaður í áratugi,“ segir Guðmundur Daði. Ísland er eina ríkið innan Schengen og Evrópska efnahagssvæðisins sem krefst PCR- eða hraðprófa af öllum farþegum. „Við vorum á góðri siglingu. En við sáum það strax og farið var að herða á landamærunum og gera ríkari kröfur þá minnkaði ferðaviljinn. Þannig að við höfum verið að sjá að það er farið að draga úr ferðaviljanum til Íslands á síðustu fjórum vikum. Og við teljum að það muni halda áfram inn í veturinn,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson.
Keflavíkurflugvöllur Ferðamennska á Íslandi Fréttir af flugi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Hefjast handa við að stækka flugvöllinn um tuttugu þúsund fermetra Um tuttugu þúsund fermetra stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hófst formlega í gær. Um er að ræða ríflega tuttugu milljarða króna framkvæmd, sem er sú stærsta sem Isavia hefur ráðist í. 17. ágúst 2021 19:38 Flugfélögin ekki skyldug til að synja íslenskum ríkisborgurum um heimför skorti þá gögn Íslendingar geta frá og með morgundeginum ferðast til útlanda án þess að eiga hættu á að festast þar skorti þá vottorð við heimför til Íslands. Nýjar leiðbeiningar Samgöngustofu skylda ekki flugfélög til að synja Íslendingum um heimför séu þeir ekki með öll gögn. 31. ágúst 2021 18:38 Mest lesið Selenskí kíkti á klakann Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira
Hefjast handa við að stækka flugvöllinn um tuttugu þúsund fermetra Um tuttugu þúsund fermetra stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hófst formlega í gær. Um er að ræða ríflega tuttugu milljarða króna framkvæmd, sem er sú stærsta sem Isavia hefur ráðist í. 17. ágúst 2021 19:38
Flugfélögin ekki skyldug til að synja íslenskum ríkisborgurum um heimför skorti þá gögn Íslendingar geta frá og með morgundeginum ferðast til útlanda án þess að eiga hættu á að festast þar skorti þá vottorð við heimför til Íslands. Nýjar leiðbeiningar Samgöngustofu skylda ekki flugfélög til að synja Íslendingum um heimför séu þeir ekki með öll gögn. 31. ágúst 2021 18:38