Lífið

Þolandi stefnir Nicki Mina­j

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Þau Nici Minaj og Kenneth Petty hófu samband árið 2018. Í dag eru þau gift og eiga saman son.
Þau Nici Minaj og Kenneth Petty hófu samband árið 2018. Í dag eru þau gift og eiga saman son. Getty/Gotham

Tónlistarkonan Nicki Minaj og eiginmaður hennar Kenneth Petty hafa fengið á hendur sér lögsókn frá konu sem Petty var sakfelldur fyrir að hafa gert tilraun til að nauðga árið 1994. Hjónin eru nú sökuð um áreiti og ofsóknir.

Þolandinn er á fimmtugsaldri í dag en var táningur þegar atvikið átti sér stað. Petty játaði á sig sök og sat í fangelsi í fjögur og hálft ár. Á síðasta ári var hann handtekinn á ný fyrir það að hafa ekki skráð sig sem kynferðisafbrotamann eins og honum ber skylda til.

Konan stefnir nú hjónunum fyrir áreiti og tilraunir til þess að fá hana til að draga ásakanir sínar til baka. Konan segir Minaj meðal annars hafa boðið sér fjárhæð sem samsvarar tæpum 63 milljónum íslenskra króna fyrir það að draga ásakanirnar til baka.

Þá segist konan hafa fengið símtal frá Minaj á síðasta ári þar sem hún hafi boðist til þess að fljúga sér og fjölskyldu sinni til Los Angeles gegn því að hún myndi hjálpa henni. Konan hafnaði því.

Konan segist jafnframt hafa hafnað boði Minaj um að fá upplýsingafulltrúa sinn til þess að skrifa upp yfirlýsingu fyrir hönd konunnar.

„Þú þarft að vita, frá konu til konu, að þetta gerðist,“ á konan að hafa sagt við Minaj.

Hún segist hafa fengið mörg símtöl frá þeim hjónum og óvelkomnar heimsóknir. Hún segir að vegna þessa hafi hún þjáðst af þunglyndi og ofsahræðslu.

Minaj og Petty hófu samband árið 2018 og ári seinna tilkynntu þau að þau hefðu gengið í hjónaband. Í dag eiga þau tæplega ársgamlan son.

Tónlistarkonan hefur ekki tjáð sig um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.