Tískuorð stjórnmálanna Gísli Rafn Ólafsson skrifar 14. ágúst 2021 07:01 Eitt vinsælasta tískuhugtakið í orðabók stjórnmálamanna er nýsköpun. Stjórnmálamenn eru duglegir að tala um hvað nýsköpun sé frábær og mikilvægi þess að leggja áherslu á hana. Þeir tala um nýsköpun á þessu sviði og nýsköpun á hinu sviðinu. En þegar stjórnmálamenn eru spurðir um raunverulegar áherslur sínar í nýsköpun og þær aðgerðir sem þurfi að framkvæma, þá komast þeir sjaldan lengra en að endurtaka hugtakið nýsköpun nægilega oft þar til að fólk hættir að hlusta. Það er nefnilega stórt vandamál að mjög fáir stjórnmálamenn hafa raunverulegan skilning á því um hvað nýsköpun snýst og hvað þarf að gera til þess að hún blómstri. Hvar stöndum við þegar kemur að nýsköpun? Í skýrslum sínum um stöðu íslensks efnahagslífs sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) og Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) birtu nýlega, er lögð sérstök áhersla á það að auka til muna fjárfestingu og stuðning við nýsköpun. Ísland eigi enn langt í land að ná öðrum Norðurlanda- og Evrópuþjóðum eins og sjá má á þessari mynd úr skýrslu OECD. Í sinni skýrslu leggur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn áherslu á að Ísland þurfi dreifðari og sjálfbærari stefnu þegar kemur að því að auka hagvöxt í kjölfar heimsfaraldurs. Uppbyggingin þurfi að gera efnahagslífið fjölbreytt og betur í stakk búið til að takast á við mögulegar krísur í framtíðinni. Þetta feli í sér að byggja upp sjálfbærari ferðamannaiðnað, styðja þurfi kröftuglega við nýsköpun, leggja áherslu á menntun í takt við breytta heimsmynd, draga stórlega úr íþyngjandi regluverki fyrir frumkvöðlafyrirtæki og gera erlenda fjárfestingu aðgengilegri fyrir nýsköpunargeirann. Óbeisluð tækifæri Ísland hefur mörg tækifæri þegar kemur að nýsköpun, en mörg þeirra eru illa nýtt vegna ófullnægjandi stuðnings frá ríkinu. Þrátt fyrir að stuðningurinn hafi svo sannarlega aukist á síðasta kjörtímabili þá þarf að fjárfesta mun meira á þessu sviði. Einn reyndur frumkvöðull sagði í umræðum um þessi mál að það sem núverandi ríkisstjórn hefði framkvæmt undanfarið ár væri það sem nýsköpunarsamfélagið hefði verið að biðja um fyrir áratug síðan, en margt hafi breyst á þeim tíma. Fagleg nýsköpunarstefna Við Píratar höfum mótað, í samvinnu við nýsköpunarsamfélagið á Íslandi, metnaðarfulla nýsköpunarstefnu sem leggur áherslu á að fjárfesta í fólki og framtíðinni. Við teljum þessa stefnu geta verið lykilinn að hagsæld og atvinnuþróun á Íslandi næstu áratugina, enda stefna með vel skilgreindar aðgerðir sem byggja á reynslu annarra þjóða og ráðleggingum sérfræðinga á þessu sviði. Nýsköpun á breiðum grunni um allt land Píratar leggja til stóraukinn stuðning við uppbyggingu og rekstur þróunarsetra, sem tryggja vinnuaðstöðu og miðlun þekkingar fyrir nýsköpun á landsbyggðinni, í náinni samvinnu við sveitarfélög. Píratar leggja áherslu á nýsköpun á breiðari grunni og tryggja þar með fjölbreytta nýsköpun og samfélagsnýsköpun innan m.a. landbúnaðar, sjávarútvegs, ferðamennsku, velferðar, menntunar, heilbrigðis, umhverfis og græns iðnaðar, auk allra sviða skapandi greina og við uppbyggingu framtíðarinnviða. Sérstök áhersla verði lögð á að styrkja sjálfbærni og samfélagslegar lausnir. Einföldun regluverks og skattaumhverfis Mikilvægt er að auðvelda frumkvöðlum að hefja rekstur nýsköpunarfyrirtækja og að opna á möguleika við að einfalda skattaumhverfi og rekstur þeirra. Við leggjum til að búið verði til nýtt fyrirtækjaform fyrir frumkvöðlafyrirtæki sem hafi einfaldara regluverk, hagkvæmari gjöld og skattalegar ívilnanir, svo sem endurgreiðslu þróunarkostnaðar, sem hvetji til nýsköpunar. Einfalda fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja Mikilvægt er að einfalda fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja með auknum efnahagslegum hvötum og tilslökunum til fjárfesta, til að mynda með því að byggja upp regluverk í kringum hópfjárfestingar. Mikilvægt er að stórauka fjármagn til hinna ýmsu styrktar- og nýsköpunarsjóða, ásamt því að gera styrkja- og fjármögnunarumhverfið heildrænna, aðgengilegra og sveigjanlegra. Þær upphæðir sem núverandi ríkisstjórn hefur verið að leggja í nýsköpun blikna í samanburði við þær erlendu fjárfestingar sem frumkvöðlafyrirtæki hafa verið að sækja erlendis frá síðustu ár. Stuðningur við samfélag og vistkerfi nýsköpunar á Íslandi Tryggja þarf stuðning við nýsköpunarfyrirtæki og samfélagsleg verkefni á öllum stigum vaxtar með því að styðja við rekstur m.a. nýsköpunarhraðla og lausnamóta á sem flestum sviðum, ásamt stuðningi við ráðstefnur og viðburði innan nýsköpunarvistkerfisins. Hugað verði sérstaklega að fjármögnun fjölbreyttra verkefna á vaxtarstigi og uppbyggingu alþjóðlegra tenginga, ásamt því að gera vistkerfi nýsköpunar á Íslandi aðlaðandi fyrir alþjóðlega frumkvöðla til að stofna nýsköpunarfyrirtæki og þróa sínar vörur/þjónustu hérlendis. Fræðsla um nýsköpun Mikilvægt er að tryggja samfellda fræðslu og þátttöku í nýsköpun á öllum stigum menntakerfisins. Leggja þarf aukna áherslu á hagnýtingu grunnrannsókna með stuðningi við verkmenntalínur í menntakerfinu og virkri samvinnu milli opinberra stofnanna, atvinnulífs, háskóla-, frumkvöðla- og alþjóðasamfélagsins. Koma upp hvatningu til atvinnulausra einstaklinga til að taka þátt í nýsköpun, með gjaldfrjálsum námskeiðum í frumkvöðlamálum, tryggja grunnframfærslu fyrir atvinnulausa sem stofna nýsköpunarfyrirtæki og möguleika fyrir nýsköpunarfyrirtæki til að ráða fólk beint af atvinnuleysisskrá. Fjárfesting til framtíðar Við viljum sjálfbært samfélag sem getur tekist á við sjálfvirknivæðingu og fjórðu iðnbyltinguna. Þess vegna leggjum við höfuðáherslu á nýsköpunarlandið Ísland þar sem tækifærin er að finna hjá fólki út um allt land. Við viljum ná markmiðum um fleiri tækifæri fyrir framtíðarkynslóðir og sjálfbærni landsins með nýsköpun í opinberri starfsemi, með samstarfi við atvinnulífið og með því að gera Ísland að þekkingarmiðstöð fyrir framtíðarsamfélagið. Fjárfesting í nýsköpun er fjárfesting sem skilar sér hundrað- ef ekki þúsundfalt aftur inn í samfélagið. Slíkum fjárfestingum er mikilvægt að forgangsraða. Höfundur er frambjóðandi Pírata í Suðvesturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Píratar Alþingiskosningar 2021 Skoðun: Kosningar 2021 Gísli Rafn Ólafsson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun