Skoðun

Má ég vera ég?

Árdís Rut H. Einarsdóttir skrifar

Hér er ég ADHD stelpan 10-11 ára gömul ógreind, óþekk og hávær! Mjög hávær!

Ég fékk ekki greiningu fyrr en ég fór sjálf í greiningu 25 ára gömul tveggja barna móðir, í háskólanámi, komin í algjört þrot á líkama og sál

Ég skoraði mjög hátt á ADHD skalanum, bæði í ofvirkni og athyglisbresti. Nú segja margir sem þekktu mig sem barn, já við vissum það nú alltaf!

Árdís, tíu eða ellefu ára gömul.Aðsend

Skólaganga mín gekk lala fyrir sig, ég fór að mestu í gegnum grunnskólann á bröndurum og samkennd. Ég fékk að mestu að vera ÉG í grunnskóla. Hlægja hátt, trufla kennslu, segja brandara, teikna, syngja, íþróttir og annað misgáfulegt. Kannski var það vegna þess að grunnskólinn minn var lítill skóli út á landi, og ég meina hvert hefðu þau svo sem getað sent mig? Þegar það var ekkert ,,að” mér.

Tóninn fyrir minni stöðu sem ,,brandarinn” í vinahópnum, bekknum/skólanum var hinsvegar settur ansi snemma, u.þ.b. 8 ára myndi ég áætla. Þá varð mér það einnig ljóst að ég væri ekki krakkinn sem foreldrarnir vildu hafa í kringum börnin sín. Þau skilaboð voru skýr þegar allir krakkarnir í bekknum mínum, nema ég, fengu afmælisboð í afmæli bekkjarsystur okkar. Ástæðan var e.t.v. sú að bekkjarsystur minni þótti ég hávær, óþekk, leiðinleg, eða hvað? Og mamma hennar studdi ákvörðun dóttur sinnar og leyfði henni að bjóða öllum krökkunum í afmælið nema þessu eina. Þá upplifði ég höfnun, staðfestingu á heimsku minni og vonleysi. Þá hugsaði ég með mér að ég yrði bara að vera fyndin, enginn er ömurlegur sem fær aðra til að hlæja ! Þessi stimpill ásamt öðru sem ekki verður rætt að þessu sinni hélt mér í þunglyndisfangelsi fram til ársins 2014. Á þessu tímabili minnti ég sjálfa mig reglulega á hversu gölluð ég væri, enda var ekkert “að” mér sem gæti útskýrt hvað ég var heimsk og ömurleg!

Í dag líður mér alla jafna vel og án ADHD væri ég ekki á þeim stað sem ég er á í dag. Ég tek ADHD lyfin mín, stunda mína vinnu og reyni eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að nokkurt barn þurfi að upplifa minn veruleika. Sem er nú bara lítilvægur miðað við sögur margra barna/fullorðina á #saganokkar. Fræðum hvort annað! #ADHD #MÁÉGVERAÉG?

Höfundur er verkefnastjóri fræðslumála hjá ADHD samtökunum.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×