Lið KA/Þórs getur í dag orðið það tólfta í sögunni til að fagna Íslandsmeistaratitli Sindri Sverrisson skrifar 6. júní 2021 10:31 Það má búast við að hart verði tekist á að Hlíðarenda í dag og Íslandsmeistarabikarinn gæti farið á loft. vísir/Hulda Margrét Deildarmeistarar KA/Þórs geta í dag orðið tólfta félagið frá upphafi til að fagna Íslandsmeistaratitli í handbolta kvenna, með sigri á Val. Fyrir þremur árum vann KA/Þór sér sæti í efstu deild á ný með því að vinna Grill 66-deildina. Nú er liðið einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum eftir 24-21 sigur gegn Val í frábærri stemningu í KA-heimilinu á miðvikudag. Liðin mætast að nýju á Hlíðarenda kl. 15.45, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, en með sigri geta Valskonur knúið fram oddaleik sem yrði í KA-heimilinu næsta miðvikudagskvöld. Vinni KA/Þór er einvíginu lokið og liðið Íslandmeistari í fyrsta sinn. Valur er næstsigursælasta félagið í handbolta kvenna með 17 Íslandsmeistaratitla. Fram, sem Valur sló út í undanúrslitum, á flesta eða 22 talsins. Ármann vann sína 12 titla á árunum 1940-1963, en auk þeirra hafa Haukar (7), Stjarnan (7), ÍBV (4), FH (3), Víkingur (3), Grótta (2), KR (2) og Þróttur (1) unnið til Íslandsmeistaratitils. KA/Þór getur í kvöld orðið fyrsta liðið utan höfuðborgarsvæðisins til að verða Íslandsmeistari í handbolta kvenna frá því að ÍBV varð meistari árið 2006. ÍBV er eina liðið utan höfuðborgarsvæðisins sem unnið hefur titilinn. Takist Valskonum að vinna í dag er enn möguleiki á að Íslandsmeistarabikarinn verði áfram á Hlíðarenda en Valur er enn ríkjandi meistari eftir að hafa unnið árið 2019, þar sem að ekki tókst að leika úrslitakeppni í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins. Leikur Vals og KA/Þórs er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 15.45 en upphitun Seinni bylgjunnar hefst rúmum hálftíma fyrr og leikurinn verður svo gerður rækilega upp af sérfræðingum þáttarins strax og leiknum lýkur. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Olís-deild kvenna KA Þór Akureyri Valur Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira
Fyrir þremur árum vann KA/Þór sér sæti í efstu deild á ný með því að vinna Grill 66-deildina. Nú er liðið einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum eftir 24-21 sigur gegn Val í frábærri stemningu í KA-heimilinu á miðvikudag. Liðin mætast að nýju á Hlíðarenda kl. 15.45, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, en með sigri geta Valskonur knúið fram oddaleik sem yrði í KA-heimilinu næsta miðvikudagskvöld. Vinni KA/Þór er einvíginu lokið og liðið Íslandmeistari í fyrsta sinn. Valur er næstsigursælasta félagið í handbolta kvenna með 17 Íslandsmeistaratitla. Fram, sem Valur sló út í undanúrslitum, á flesta eða 22 talsins. Ármann vann sína 12 titla á árunum 1940-1963, en auk þeirra hafa Haukar (7), Stjarnan (7), ÍBV (4), FH (3), Víkingur (3), Grótta (2), KR (2) og Þróttur (1) unnið til Íslandsmeistaratitils. KA/Þór getur í kvöld orðið fyrsta liðið utan höfuðborgarsvæðisins til að verða Íslandsmeistari í handbolta kvenna frá því að ÍBV varð meistari árið 2006. ÍBV er eina liðið utan höfuðborgarsvæðisins sem unnið hefur titilinn. Takist Valskonum að vinna í dag er enn möguleiki á að Íslandsmeistarabikarinn verði áfram á Hlíðarenda en Valur er enn ríkjandi meistari eftir að hafa unnið árið 2019, þar sem að ekki tókst að leika úrslitakeppni í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins. Leikur Vals og KA/Þórs er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 15.45 en upphitun Seinni bylgjunnar hefst rúmum hálftíma fyrr og leikurinn verður svo gerður rækilega upp af sérfræðingum þáttarins strax og leiknum lýkur. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild kvenna KA Þór Akureyri Valur Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira