Náttúruspjöll við Geldingadali Snæbjörn Guðmundsson skrifar 19. maí 2021 16:32 Eldgos eru einhverjar alstórfenglegustu náttúruhamfarir sem verða á jörðinni. Íslendingar hafa frá upphafi byggðar þurft að takast á við þessi öfl náttúrunnar, og oft á tíðum orðið fyrir miklum búsifjum af völdum jarðelda. Síðari ár höfum við þó einnig notið fegurðar þeirra og margbreytileika. Í mars síðastliðnum hófst eldgos í Geldingadölum á Reykjanesskaga. Komið hefur í ljós að gosið er jafnvel einstakt meðal eldgosa. Jarðfræðingar telja flestir að það marki upphaf nýrrar eldgosahrinu á Reykjanesskaga, þar sem ekki hefur gosið á landi í um 800 ár. Síðustu misseri hefur mikið verk verið unnið við að kortleggja náttúruvá vegna jarðelda á Suðvesturhorninu. Sú vinna kemur sér vel, nú þegar eldgosahrina er hafin. Þó er allsendis ómögulegt að spá nokkru um framhaldið, hvenær næst muni gjósa eða hvar. Allar hugmyndir um varnir gegn hraunrennsli þurfa að skoðast í því ljósi. Í skjóli nætur Aðfaranótt föstudagsins 14. maí hófst að ráði verkfræðinga vinna við varnargarða við suðurenda svokallaðs Nafnlausadals ofan Nátthaga. Almannavarnir og ríkisstjórnin tilkynntu um þetta síðdegis á föstudag. Görðunum er ætlað að koma í veg fyrir að hraun renni niður í Nátthaga þar sem ljósleiðari liggur grafinn. Enn neðar liggur Suðurstrandarvegur. Lagalegur grundvöllur varnargarðanna virðist mjög veikur, svo ekki sé meira sagt. Grindavíkurbær hefur engum veitt framkvæmdaleyfi og engra umsagna virðist hafa verið aflað frá stofnunum eins og Náttúrufræðistofnun Íslands eða Umhverfisstofnun. Skipulagsstofnun virðist ekki hafa verið innt eftir því hvort stofnunin eða sveitarfélagið þurfi að taka ákvörðun um nauðsyn umhverfismats fyrir svo mikið inngrip. Samtök almennings hafa ekki verið höfð með í ráðum. Varnargarðarnir fela þó í sér efnisflutninga upp á 28 þúsund rúmmetra og við blasir á meðfylgjandi ljósmynd tekinni þriðjudaginn 18. maí hvers konar umfang og rask hér er á ferðinni. Á hinn bóginn hefur Grindavíkurbær veitt nauðsynleg leyfi fyrir göngustígum og Umhverfisstofnun veitt undanþágu til utanvegaaksturs fjölmiðlamanna, allt mun minni inngrip en varnargarðarnir. Frá því á mánudag hefur verið óskað eftir gögnum málsins og grundvelli ákvarðana frá Almannavörnum og ríkisstjórn. Treglega hefur gengið að fá gögn. Þó hefur verið upplýst að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra óskaði heimildar ríkisstjórnar til að ráðast í gerð varnargarðanna. Ekki hefur komið fram hver hinn eiginlegi framkvæmdaraðili er eða hverjar eru hinar eiginlegu ákvarðanir. Af fjölmiðlaumfjöllun verður ekki ráðið að þeirri spurningu hafi verið velt upp hvort yfir höfuð teljist eðlilegt að stöðva framgöngu hraunsins og raska umgjörð þess á svo afgerandi hátt. Spurningar um náttúruna sjálfa, vernd hraunsins og inngrip í náttúruleg ferli virðast ekki hafa verið settar fram í aðdraganda framkvæmdanna. Þrátt fyrir allt þetta hefur framkvæmdin verið í undirbúningi frá því gos hófst og voru garðarnir fullhannaðir fyrir tveimur og hálfri viku. Tilraunarinnar virði? Forsætisráðherra og verkhönnuðir hafa í fjölmiðlum vísað til gildis framkvæmdarinnar sem tilraunar. Gildi varnargarðanna sem tilraunar til að verjast hraunstraumnum er hins vegar afar vafasamt. Tilraunir erlendis benda til þess að næsta vonlaust sé að verjast hraunflæði nema með gríðarlega miklum og langvarandi aðgerðum (sjá t.d. pistil á vef Jarðfræðistofnunar Bandaríkjanna). Hér um bil eina velheppnaða aðgerðin af þeim toga á jörðinni var líklegast í Heimaeyjargosinu 1973, en þar var mörgum milljónum tonna af sjó dælt á hraunið yfir um fimm mánaða tímabil. Aðrar tilraunir, svo sem á Hawaii og Ítalíu, hafa ekki sýnt fram á mikinn raunverulegan árangur, heldur í besta falli tímabundinn eða óljósan ávinning. Svo virðist því sem spurningin „af hverju ekki?“ sé grunnur að gerð varnargarðanna nú. Að þeir séu þá að minnsta kosti „tilraunarinnar virði“. Það er hins vegar óskýrt hvernig niðurstöður þessarar „tilraunar“ eigi að leiða af sér nýtileg gögn sem hægt væri að yfirfæra á allt aðrar aðstæður síðar. Hæðarmunur á yfirborði hraunsins í minni Geldingadala og haftinu ofan Nátthaga, mörg hundruð metrum sunnar, er um 20 metrar. Hraunstraumurinn leitar undan halla og það er ekki nokkur leið að stöðva hraunrennslið úr Geldingadölum til suðurs í átt að Nátthaga, ef hraunið „kýs“ á annað borð að renna þá leið í nægilegu magni. Hraunið fyllir einfaldlega upp í lægðina bakvið garðana og flæðir svo yfir þá. Þetta stjórnast af aðstæðum hundruðum metra ofan við varnargarðana. Sem tilraun hafa garðarnir ekkert gildi því halli landsins stýrir flæðinu. Ef eldgos kæmi upp ofan byggðar við Hafnarfjörð eða Grindavík er augljóst að leita yrði leiða til að verja híbýli fólks og innviði þéttbýlisins. Reynsla af varnargörðunum ofan Nátthaga mun vart nýtast við þær aðgerðir. Sjálft Geldingadalagosið ógnar hins vegar engu nema einum ljósleiðara og örfárra kílómetra löngum vegspotta sem mætti auðveldlega lagfæra síðar ef hann færi undir hraun. Einu híbýlin á svæðinu, Ísólfsskála, mætti verja ef þyrfti með tíð og tíma. Varnargarðatilraunin er sóun á fjármunum opinberra aðila, sem hefði miklu betur verið varið í að byggja upp innviði fyrir gesti svæðisins sem sækja gosstöðvarnar til að upplifa ógnarkraftinn í gosinu, ekki groddaleg ummerki vinnuvéla. Alvarleg náttúruspjöll Fjárhagslegur fórnarkostnaður er þó sáralítill miðað við náttúruspjöllin sem framkvæmdin hefur í för með sér. Geldingadalagosið hefur ómetanlegt gildi á öllum mælikvörðum náttúru og mannlegrar tilveru. Að stöðva hraunrennsli í eldgosi er ekki eins og að stífla bæjarlæk. Aðgerðir við hraunið eru ekki sambærilegar við byggingu varnargarða vegna jökulhlaupa eða sjávarágangs. Eldgos eru fágæti, einstök fyrirbrigði sem okkur ber að vernda og umgangast af virðingu. Náttúruverndarlög kveða á um sérstaka vernd hrauna, og verndargildi þeirra eykst eftir því sem hraunin eru yngri og ósnortnari. Hraunið sem runnið hefur frá eldstöðinni í Geldingadölum gæti augljóslega ekki verið ósnortnara, og því ber okkur að umgangast það af ýtrustu varúð og virðingu. Þetta svæði verður eitt af krúnudjásnum landsins um ókomnar aldir. Það vakna því bæði lagalegar, siðferðilegar og samfélagslegar spurningar um svona inngrip, auk þeirra efnahagslegu og pólitísku. Þessum spurningum svara hönnuðir garðanna og framkvæmdaraðilar ekki. Vísindalegt gildi eldgossins í Geldingadölum er á heimsmælikvarða. Þróun þess og framgangur, uppruni kvikunnar, rennsli hraunsins og mótun landsins eru afar merkileg ferli sem alls ekki má raska eða meðhöndla af virðingarleysi eða án skýrs og gagnreynds tilgangs. Eldstöðin og hraunið sem rennur frá henni eru um þessar mundir ein merkilegasta jarðmyndun Jarðar. Ferlið er nú þegar rannsóknarefni fjölmargra innlendra og alþjóðlegra vísindahópa, uppspretta ómældra gagna, skilnings og uppgötvana tengt jarðrænum ferlum. Gosið og hraunið verða rannsóknarefni um ófyrirsjáanlega framtíð. En atburðurinn hefur ekki einungis vísindalegt gildi heldur einnig mikið gildi fyrir almenning, bæði þá gesti sem heimsækja gosstöðvarnar sem og þau sem fylgjast með því hvaðanæva að úr heiminum í gegnum netið. Hér skyggnumst við inn í uppruna Íslands, hvernig gígar kvikna og slokkna, fyllumst lotningu frammi fyrir hinum gríðarháu kvikustrókum. Sjáum hraunið vella fram, mótast, storkna og gleypa landslagið sem verður fyrir hraunelfinni. Fullkomlega óþarft rask utan í þessu merkilega náttúrufyrirbrigði er virðingarleysi gagnvart náttúrunni, upplifun almennings, framgangi náttúrufræða og skilningi til framtíðar. Þótt hraunið muni mögulega hylja garðana að einhverju leyti með tíð og tíma er mjög líklegt að rask af völdum vinnuvéla og þeir hlutar garðanna sem ekki fara undir hraun verði sjáanlegir um alla framtíð. Það eitt og sér gerir varnargarðatilraunina óverjandi. Hér er verið að umturna varanlega umhverfi hrauns sem náttúruverndarlög eiga að standa vörð um. Náttúrudrottnun Íslendinga Aðgerðirnar síðustu daga við hraunið benda því miður til þess að við hér á landi höfum ekki dregið mikinn lærdóm af reynslu mannkyns síðustu ár og áratugi. Gerð varnargarða með miklu raski utan í einum almerkilegustu jarðmyndunum seinni ára bendir sterklega til þess að við séum enn á braut náttúrudrottnunar, þar sem umhverfi okkar og aðrir hlutar náttúrunnar eru leikvöllur mannsins eða einskis vert viðfang. Í augum margra kann að virðast saklaust að prófa sisona að stöðva hraunstraum, jafnvel þótt hann ógni í raun alls ekki neinu nema einum ljósleiðara og vegarspotta. Þetta er hins vegar sama viðhorf og hugarfar og leitt hefur mannkynið og allt lífríki jarðar á afar dökkan og ískyggilegan stað í tilverunni. Hraunið sem nú rennur í Geldingadölum er einstakt á heimsvísu og sú hugmynd að við megum ganga um svæðið hvernig sem við viljum, líkt og það væri sandkassi, er yfirgengileg. Ljóst er af ofangreindu að íslensk yfirvöld, ríkisstjórnin, Almannavarnir og sveitarstjórn Grindavíkur hafa orðið sér til háborinnar skammar með skeytingar-, virðingar- og skilningsleysi á náttúruöflunum og framgangi þeirra. Rétt er að krefjast þess að öllum framkvæmdum við byggingu varnargarðanna verði samstundis hætt, jarðvinnuvélar fjarlægðar og rask lagfært eins og mögulegt er. Vonandi hverfa garðarnir eða hyljast af hrauni þegar fram í sækir, en annars munu þeir standa um ókomna tíð sem hryggilegur minnisvarði um hirðuleysi Íslendinga gagnvart náttúru landsins. Höfundur er jarðfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldgos í Fagradalsfjalli Umhverfismál Grindavík Snæbjörn Guðmundsson Mest lesið Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarki Fjalar Guðjónsson Skoðun Lengjum opnunartíma leikskóla Aron Ólafsson Skoðun Þau sem hafna framförum Birkir Ingibjartsson Skoðun Daglegt líf eldri borgara í Reykjavík: Afhverju ekki eins og í Regínu? Andrea Edda Guðlaugsdóttir Skoðun Hvernig líður Mosfellsbæ? Anna Sigríður Guðnadóttir Skoðun Frábær árangur í bólusetningum gegn mislingum á Íslandi Ingileif Jónsdóttir Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun Stöndum með unga fólkinu í Kópavogi Elvar Bjarki Helgason Skoðun Þegar jafnréttissjónarmið stjórnmálaflokka bitna á fjárhagsstöðu barnafjölskyldna Kristín Þóra Reynisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Eru huldufólk enn til eða höfum við hætt að sjá það? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Öruggt húsnæði eru mannréttindi - líka í Hafnarfirði Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samgöngusáttmáli er ekki heilagur. Ekkert er slegið í stein Símon Þorkell Símonarson Olsen skrifar Skoðun Hvernig get ég aðstoðað? Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið í fyrsta sæti Daði Pálsson skrifar Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarki Fjalar Guðjónsson skrifar Skoðun Þau sem hafna framförum Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Stöndum með unga fólkinu í Kópavogi Elvar Bjarki Helgason skrifar Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Lengjum opnunartíma leikskóla Aron Ólafsson skrifar Skoðun Hvernig líður Mosfellsbæ? Anna Sigríður Guðnadóttir skrifar Skoðun Daglegt líf eldri borgara í Reykjavík: Afhverju ekki eins og í Regínu? Andrea Edda Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Frábær árangur í bólusetningum gegn mislingum á Íslandi Ingileif Jónsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnréttissjónarmið stjórnmálaflokka bitna á fjárhagsstöðu barnafjölskyldna Kristín Þóra Reynisdóttir skrifar Skoðun Stöðnun? Tölum um staðreyndir Bjarni Halldór Janusson skrifar Skoðun Loforðin sjö – Ofbeldi, hvað svo? – Ég lofa Sigrún Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver má búa í Garðabæ? Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Verðlagseftirlit Viðreisnar – Gamall draugur í fylgd skattalækkunar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Framsækið skipulag á landsvísu Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Diplómanámið í HÍ: Menntun sem breytir lífi Nemendur í starfstengdu diplómanámi HÍ skrifar Skoðun Frá Jens Mustermann til CR7: hugvekja um vörumerki knattspyrnumanna Jóhann Skúli Jónsson skrifar Skoðun Hvað veist þú? Hugsum áður en við sendum Björk Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvernig kveikjum við neistann? Ólína Laxdal,Sólveig Nikulásdóttir skrifar Skoðun Fangelsismál - hættum þessu rugli Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar Skoðun HK á skilið meiri metnað Gunnar Gylfason skrifar Skoðun Frumbyggjar og frumkvöðlar í jarðhita Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Íþróttabærinn Kópavogur Beitir Ólafsson skrifar Skoðun Handrit ofbeldismannsins. Gulldrengir og dómstóll götunnar Hulda Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttir,Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Daglegt líf eldri borgara í Reykjavík: Afhverju ekki eins og í Regínu? Andrea Edda Guðlaugsdóttir Skoðun
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Þegar jafnréttissjónarmið stjórnmálaflokka bitna á fjárhagsstöðu barnafjölskyldna Kristín Þóra Reynisdóttir Skoðun
Skoðun Samgöngusáttmáli er ekki heilagur. Ekkert er slegið í stein Símon Þorkell Símonarson Olsen skrifar
Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar
Skoðun Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar
Skoðun Daglegt líf eldri borgara í Reykjavík: Afhverju ekki eins og í Regínu? Andrea Edda Guðlaugsdóttir skrifar
Skoðun Þegar jafnréttissjónarmið stjórnmálaflokka bitna á fjárhagsstöðu barnafjölskyldna Kristín Þóra Reynisdóttir skrifar
Skoðun Verðlagseftirlit Viðreisnar – Gamall draugur í fylgd skattalækkunar Bergþór Ólason skrifar
Skoðun Frá Jens Mustermann til CR7: hugvekja um vörumerki knattspyrnumanna Jóhann Skúli Jónsson skrifar
Skoðun Frumbyggjar og frumkvöðlar í jarðhita Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Handrit ofbeldismannsins. Gulldrengir og dómstóll götunnar Hulda Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttir,Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir skrifar
Daglegt líf eldri borgara í Reykjavík: Afhverju ekki eins og í Regínu? Andrea Edda Guðlaugsdóttir Skoðun
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Þegar jafnréttissjónarmið stjórnmálaflokka bitna á fjárhagsstöðu barnafjölskyldna Kristín Þóra Reynisdóttir Skoðun