Víkingar eru á toppi deildarinnar með 10 stig eftir að hafa lagt Breiðablik að velli í gærkvöld. Pablo Punyed skoraði fyrsta markið eftir laglega sókn og undirbúning Halldórs Jóns Sigurðar Þórðarsonar.
Undir lok leiks bætti Júlíus Magnússon við öðru marki, eftir hornspyrnu Pablos, og Kwame Quee smellti boltanum svo í netið í sínum fyrsta leik fyrir Víkinga í sumar.
Sævar Atli Magnússon skoraði tvö marka Leiknis gegn Fylki í Breiðholtinu í gær, þegar nýliðarnir unnu sinn fyrsta sigur í sumar.
Fyrra mark Sævars kom eftir afar laglega afgreiðslu og ekki síður góða sendingu Dags Austmanns Hilmarssonar. Fylkismenn vildu þó fá dæmda aukaspyrnu í aðdragandanum.
Sævar skoraði seinna mark sitt úr vítaspyrnu sem hann náði sjálfur í undir lokin, eftir að Gyrðir Hrafn Guðbrandsson hafði komið Leikni í 2-0 með marki eftir hornspyrnu.