Skoðun

Gefum fjöl­skyldunni tíma

Oddný G. Harðardóttir skrifar

Því fer fjarri að barnafjölskyldur á Íslandi fái jafn mikinn og góðan stuðning og tíðkast á öðrum Norðurlöndum. Í samtölum mínum við ungar konur með meðallaun, segja þær undantekningarlaust að þær fái engar barnabætur, barnabæturnar séu ekki fyrir þeirra börn. Þó þær velti við hverri krónu og aldrei sé afgangur um mánaðarmót sama hve margir yfirvinnutímar séu unnir. Um leið og foreldrarnir vinni meira til að geta veitt börnum sínum þokkalegt húsnæði, klæði, fæði og tómstundir, fái börnin lítinn tíma með foreldrum sínum og streitan við að skutla og sækja inn á milli vinnutarna taki sinn toll.

Hér á landi fá aðeins þær fjölskyldur sem eru með tekjur undir lágmarkstekjutryggingu, óskertar barnabætur. Barnabæturnar hér á landi byrja að skerðast um leið og launin hafa náð 351.000 kr á mánuði. Þegar mánaðarlaunin eru rétt rúmlega 600.000 kr á mánuði koma engar barnabætur og hafa minnkað verulega að því marki vegna grimmra tekjuskerðinga sem eru afleiðing af stefnu núverandi ríkisstjórnar.

Óskertar mánaðarlegar greiðslur

Barnabætur eru greiddar út fjórum sinnum á ári. Fyrsta breytingin sem augljóslega þarf að gera er að greiða barnabætur út mánaðarlega til að lágmarka kostnað vegna yfirdráttar á bankareikningum og tryggja þar með að greiðslurnar verði eðlilegur partur af mánaðarlegum rekstri heimilisins.

Ef barnabætur yrðu greiddar út mánaðarlega þá næmu þær óskertar 31.000 kr á mánuði með einu barni undir 7 ára hjá sambúðarfólki en 44.000 kr til einstæðra foreldra. Ef börnin eru tvö og annað undir 7 ára er greiðslan 55.000 kr á mánuði hjá sambúðarfólki en 78.000 kr hjá einstæðum foreldrum.

Barnvænt samfélag

Ef Ísland á að vera barnvænt samfélag líkt og við jafnaðarmenn ætlum okkur eftir næstu kosningar, verður að styðja við fleiri barnafjölskyldur. Í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi eru barnabætur ekki tekjutengdar en í Danmörku hefjast skerðingar við háar tekjur. Tekjutengingin er í hinum norrænu ríkjunum í gegnum tekjuskattskerfið. Hugsunin er sú að með barnabótum séu kjör þeirra sem eru með börn á framfæri jöfnuð við kjör þeirra sem eru ekki með börn á framfæri. En tekjuhæstu einstaklingarnir greiða hins vegar hærri tekjuskatta en hinir.

Við í Samfylkingunni jafnaðarmannaflokki Íslands viljum taka örugg skref að barnvænu samfélagi. Fyrsta skrefið við fjárhagslegan stuðning við barnafjölskyldur á næsta kjörtímabili yrði að barnafjölskyldur með meðallaun fái óskertar barnabætur.

Betri líðan og hagsæld barna

Sumir segja að stuðningur við barnafjölskyldur sé svo dýr. Það kosti milljarða að gera jafn vel og hin norrænu ríkin. Við í Samfylkingunni erum sannfærð um að sá kostnaður skili sér margfalt til baka með betri líðan barna og hagsæld. Og við bendum á að það sé líka dýrt að lækka skatta á fjármagnseigendur líkt og ríkisstjórnin hefur gert á þessu kjörtímabili. Að ekki sé talað um lækkun veiðigjalda. Okkar forgangsröðun er önnur.

Ég skora á stjórnmálamenn að gefa umræðu um barnafjölskyldur tíma í kosningabaráttunni sem framundan er. Sýnum að alvara og þungi sé í slagorðinu „Barnvænt Ísland“.

Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingarinnar. 




Skoðun

Sjá meira


×