Lífið

Búa sig undir fyrstu æfinguna í al­gerum Co­vid-hliðar­veru­leika

Snorri Másson skrifar
Daði og félagar fá að fara út á svalir á hótelinu við og við, en þurfa að öðru leyti að sæta mjög ströngum reglum í aðdraganda Eurovision, sem hefst í næstu viku.
Daði og félagar fá að fara út á svalir á hótelinu við og við, en þurfa að öðru leyti að sæta mjög ströngum reglum í aðdraganda Eurovision, sem hefst í næstu viku. RÚV

Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður hefur heimild til þess að vera á tveimur stöðum í Rotterdam í Hollandi, þangað sem hann kom í gær ásamt íslenska Eurovision-hópnum.

Gísli má vera á hótelinu og hann má vera í Eurovision-höllinni. Annars staðar ekki, ekki á kaffihúsi, ekki á veitingastað og ekki í partíum. Hann má ekki einu sinni taka með sér kaffi út um lúgu.

Gísli Marteinn hefur verið þulur í Eurovision árum saman.@gislimarteinn

„Þetta er mjög stíft en við megum fara út að skokka og í göngutúr. Við reynum að gera það og erum ekkert að kvarta, við erum með hollenskar hjálparhellur sem fara út í búð fyrir okkur. Þau fóru í stóra verslunarferð í gær,“ segir Gísli kátur í spjalli við Vísi.

Daði og Gagnamagnið eru á sinni fyrstu æfingu í höllinni í dag, sem er nokkuð mikilvægt augnablik í ferlinu fram undan. Veðbankar fylgjast með frammistöðunni. Sveitin keppir í síðari umferð undankeppninnar fimmtudaginn 20. maí.

Gísli segir ljóst að Eurovision í ár sé langt frá því að vera sama hátíð fyrir aðstandendur keppninnar og allt starfslið, en að það eigi ekki að koma niður á gæðum sjálfrar útsendingarinnar. Hún verði jafnflott og endranær.

Það er hlýtt og sumarlegt í Rotterdam en hópurinn getur í mesta lagi notið þess á svölunum á hótelinu. Partí á vegum Norðurlandanna og borgarstjóra, sem eru í venjulegu árferði mikilvægt atriði fyrir þátttakendur, eru auðvitað á bak og burt í bili.

Á sama hátt væri Daði í fjölda fjölmiðlaviðtala á dag en annar háttur er hafður á slíku þetta árið. Blaðamannafundur er haldinn á eftir með tugum blaðamanna og enn fleiri sem skrá sig inn rafrænt.


Tengdar fréttir

Fulltrúar Íslands flognir af stað

Fulltrúar Íslands í Eurovision í ár héldu af stað út á flugvöll úr útvarpshúsinu í Efstaleiti snemma í morgun, þaðan sem þeir flugu af stað til Rotterdam.

Stigin kynnt af Jaja ding dong-að­dáandanum

Olaf Yohansson mun kynna stigin fyrir Íslands hönd í úrslitum Eurovision söngvakeppninnar í ár. Úrslitin fara fram í Rotterdam þann 22. maí næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.