Meistaradeildarsæti Leicester í hættu eftir afhroð gegn Newcastle Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 7. maí 2021 20:55 Callum WIlson skoraði tvö af fjórum mörkum Newcastle í kvöld. EPA-EFE/Michael Regan Newcastle United vann ótrúlegan 4-2 útisigur á Leicester City í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Leicester City hefur átt Meistaradeildarsætið víst nær allt tímabilið en allt í einu virðist það í hættu. Lánsmaðurinn Joseph Willock kom gestunum yfir á 22. mínútu og tólf mínútum síðar tvöfaldaði varnarmaðurinn Paul Dummett forsytu Newcastle. Staðan orðin 2-0 og þannig var hún í hálfleik. Callum Wilson skoraði tvívegis í síðari hálfleik og staðan því orðin 4-0 þegar Marc Albrighton kom Leicester City loks á blað. Kelechi Iheanacho minnkaði muninn í 4-2 áður en leiktíminn rann út en nær komust heimamenn ekki. Newcastle United því allt í einu komið upp í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 39 stig að loknum 35 leikjum. 4 - @NUFC have scored four goals in an away Premier League game against a side starting the day in the top-three for the first time since December 2001 against Leeds United, a 4-3 win. Rout.— OptaJoe (@OptaJoe) May 7, 2021 Leicester City er enn í 3. sæti en aðeins með tveimur stigum meira en Chelsea sem á leik til góða. Liðin þar fyrir neðan: West Ham United, Tottenham Hotspur og Liverpool eiga öll leiki til góða. Gætu þau því sett mikla pressu á lærisveina Brendan Rodgers sem mætir Manchester United á Old Trafford á þriðjudag. Enski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti