Erlent

Stefnir í enn eitt þráteflið í Ísrael

Kjartan Kjartansson skrifar
Mansour Abbas, leiðtogi Raam, flokksins gæti ráðið því hver verður næstu forsætisráðherra Ísraels. Hann hefur áður sagst tilbúinn að vinna með Netanjahú að málefnum árabískra Ísraela sem eru um fimmtungur þjóðarinnar.
Mansour Abbas, leiðtogi Raam, flokksins gæti ráðið því hver verður næstu forsætisráðherra Ísraels. Hann hefur áður sagst tilbúinn að vinna með Netanjahú að málefnum árabískra Ísraela sem eru um fimmtungur þjóðarinnar. AP/Mahmoud Illean

Horfur eru á því að fylking hægriflokka undir forystu Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra, nái ekki meirihluta þingsæta í kosningunum sem fóru fram í Ísrael í gær. Jafnvel gæti svo farið að lítill flokkur arabískra íslamista verði í oddastöðu þegar endanlegar niðurstöður liggja fyrir.

Þegar búið var að telja um 90% atkvæða vantaði Líkúdflokk Netanjahú og bandalagsflokka hans af hægrivængnum tvö þingsæti upp á meirihluta á þingi. Líkúd virðist hafa fengið rétt tæpan fjórðung atkvæða en sem ætti að skila honum þrjátíu þingsætum af 120.

Flokkar sem vilja Netanjahú frá völdum virðast ætla að fá 56 þingsæti. Yesh Atid, stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, hefur fengið 13,9% atkvæða til þessa og fengi þá sautján þingsæti.

Breska ríkisútvarpið BBC segir að öllum að óvörum virðist Raam, lítill arabískur flokkur, ætla að fá fimm þingsæti. Flokkurinn gæti þannig ráðið því í reynd hver fer með völdin á næsta kjörtímabili. Forysta flokksins hefur ekki tekið af skarið um hvora fylkinguna hún styður. Hann er sagður ólíklegur bandamaður Netanjahú en Mansour Abbas, leiðtogi hans, hefur þó ekki útilokað að vinna með forsætisráðherranum.

Ört hefur verið kosið í Ísrael undanfarin ár þar sem illa hefur gengið að mynda samsteypustjórnir. Náist ekki að klambra saman nýrri ríkisstjórn og boðað verður til annarra kosninga yrðu það þær fimmtu frá árinu 2019.

Yfir ísraelskum stjórnmálum vofir svo áframhaldandi réttarhöld yfir Netanjahú sem er ákærður fyrir spillingu í embættinu sem hann hefur gegnt sleitulaust frá 2009.


Tengdar fréttir

Líkur á hægrisinnuðustu ríkisstjórninni í sögu Ísrael

Samkvæmt útgönguspám verðu Likud-flokkur forsætisráðherrans Benjamin Netanyahu enn stærsti flokkur landsins eftir kosningarnar sem fram fóru í dag en hann mun þurfa að reiða sig á stuðning annarra flokka á hægri vængnum til að mynda meirihluta.

Fjórðu kosningarnar á tveimur árum

Þingkosningar fara fram í Ísrael í dag – þær fjórðu á tveimur árum. Almennt er litið á kosningar sem þjóðaratkvæðagreiðslu um forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×