Skoðun

Leyfum fjólunni að blómstra

Vilhjálmur Árnason skrifar

Flestir landsmenn þekkja til Garðyrkjuskóla Íslands að Reykjum í Ölfusi, þaðan birtast gjarnan myndir af forseta Íslands í heimsókn á sumardaginn fyrsta. Alltaf er gleði og spenna þann dag á Reykjum og ljóst að mikil gróska og kraftur býr í starfsfólki og nemendum sem vekur hjá manni von í brjósti um framtíð garðyrkju á Íslandi.

Áhugasamir og metnaðarfullir nemendur sem eru þar við nám undir handleiðslu fagfólks sem leggur líf og sál í starf sitt. Einnig er áberandi hversu mikil samheldni er meðal fagfélaga og atvinnulífsins í garðyrkjunni, sem styður þétt við bakið á skólanum samhliða gífurlegum metnaði til að þróa og byggja upp atvinnulífið í þessum mikilvægu starfsgreinum.

Allt frá heimaræktun upp í hátækni ylrækt þurfum við að gefa öllu því öfluga garðyrkjufólki sem hér starfar frelsi og tækifæri til að byggja upp grunnstoðir og rækta metnað sinn í faginu svo að garðyrkjan verði ein af undirstöðunum í atvinnuvegum þjóðarinnar.

Menntamálaráðherra verður því að leysa hratt og vel úr þeim hnút sem málefni Garðyrkjuskólans eru nú komin í og tryggja velferð þessa náms með skýrum hætti.

Það verður að mínu mati best gert með því að tryggja sjálfstæði skólans sem fagskóla í garðyrkjugreinum sem tekur á móti nemendum frá öllum landshlutum og tryggja áframhaldandi samstarf fagfélaga, atvinnulífs, starfsfólks og nemenda á Reykjum.

Einnig þarf að tryggja að höfuðstöðvar verði áfram þar sem ræturnar liggja og hjarta garðyrkju á Íslandi hefur slegið síðustu 82 ár, í Garðyrkjuskólanum að Reykjum í Ölfusi.

Fisktækniskóli Íslands í Grindavík hefur einmitt farið þessa leið, barist fyrir sjálfstæði sínu og þróað í samstarfi við atvinnulífið nám í sjávarútvegi á breiðum grundvelli. Það hefur gefið af sér óteljandi sprota og tækifæri til verðmætasköpunar í sjávarútvegi. Vægast sagt hefur það kostað stjórnendur mikla baráttu að koma Fisktækniskólanum úr þeim þrönga stakki sem iðn- eða fagnámi er sniðinn í menntamálaráðuneytinu. Sú barátta hefur blessunarlega skilað árangri.

Það verður því að gefa Garðyrkjuskólanum frelsi og sjálfstæði. Þannig mun skólinn vaxa og dafna, fólk mun fylkja sér að baki honum þannig að hann verði uppspretta þekkingar og hugvits landi og þjóð til heilla.

Höfundur er varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×