Daði Freyr Pétursson og félagar hans í Gagnamagninu frumfluttu lagið Ten Years, sem fer fyrir Íslands hönd í Eurovision, á laugardagskvöld. Lagið fjallar um samband Daða Freys og eiginkonu hans, Árnýjar Fjólu Guðmundsdóttur sem einnig er liðsmaður Gagnamagnsins.
Fallegur ástaróður sem eldist eins og gott vín
Deban Aderemi og Suzanne Adams hjá Wiwibloggs tóku lagið til umfjöllunar á YouTube-rás Wiwibloggs í gær. Þau byrjuðu bæði að dilla sér um leið og strengjasveitin lauk upphafskafla lagsins og lýstu yfir ánægju með búninga Gagnamagnsins.
„Þetta eldist eins og vín, og ég ætla að gera ráð fyrir að það sé fínt vín. Ég myndi ekki breyta neinu. Alltaf þegar ég held að hjarta mitt sé fullt finn ég nýja staði til að kanna. Vel gert, Daði og félagar!“ sagði Adams.
Hún sagði lagið jafnframt fallegan ástaróð sem væri mjög einkennandi fyrir Daða. Hún kvaðst þó hafa verið hrifnari af framlagi Daða í fyrra, Think About Things.
„Líklega vegna þess að ég var þá að heyra í þeim í fyrsta sinn. Samt sem áður, eins og hann segir sjálfur um samband sitt, mun honum aldrei leiðast. Honum leiðist ekki og mér leiðist ekki framlag Íslands.“
Vinnum ekki Eurovision
Aderemi tók í sama streng og Suzanne. Think About Things hefði vissulega verið meira grípandi en nýja lagið. Ísland hefði vel getað unnið Eurovision í fyrra.
„Mun þetta, Ten Years, vinna Eurovision? Nei, ég efa það. En þeim tókst ætlunarverkið. Þetta er frábært lag, lag sem maður ætti ekki að skammast sín fyrir, lag sem Ísland ætti að vera stolt af,“ sagði Aderemi en kvaðst þó viss um að Ísland komist áfram á úrslitakvöldið 22. maí.
Þegar litið er yfir athugasemdir við 10 Years, sem hlaðið var upp á YouTube strax á laugardagskvöld, virðast margir sama sinnis og liðsmenn Wiwibloggs. Flestum þykir lagið fjörugt og skemmtilegt – en ef til vill ekki jafnsterkt og framlag okkar í fyrra.
Veðbankar endurspegla þetta viðhorf. Ísland var lengi vel spáð einu af efstu þremur sætunum á vef Eurovisionworld. Eftir að lagið var frumflutt á laugardag hefur Ísland hins vegar tekið væna dýfu og situr nú í áttunda sæti, á milli Litháen og Kýpur.