Maðurinn sem opnaði dyrnar fyrir NBA leikmenn inn á Ólympíuleikana er látinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2020 14:30 Borislav Stankovic hafði gríðarlega áhrif á þróun körfuboltans á sinni ævi. Getty/Rafa Rivas
Borislav Stankovic, fyrrum yfirmaður Alþjóða körfuboltasambandsins í marga áratugi og risastór goðsögn í körfubolta, er allur. Borislav Stankovic lést á heimili sínu í Serbíu í dag en hann var 94 ára gamall. Stankovic fæddist 9. júlí 1925. It is with profound sadness that FIBA confirmed the passing of FIBA Secretary General Emeritus Borislav Stankovic. He was 94 years old.https://t.co/IHyMkORYcX— FIBA media (@FIBA_media) March 20, 2020 Stankovic var yfirmaður FIBA frá 1976 þar til 1. janúar 2003 og hafði verið heiðurformaður sambandsins síðan þá. Hann hafðu áður verið farsæll leikmaður og spilaði meðal annars á fyrsta heimsmeistaramótinu árið 1950. Borislav Stankovic afrekaði mikið á þeim 26 árum sem hann var yfirmaður körfuboltans í heiminum en verður líklega mest minnst fyrir það hafa opnað dyrnar fyrir NBA-leikmenn inn á Ólympíuleikanna í lok níunda áratugsins. Stankovic og David Stern unnu saman að því að tengja FIBA og NBA deildina og samvinna þeirra skilaði því að NBA leikmenn fengu í fyrsta sinn að keppa á Ólympíuleikunum í Barcelona 1992. Draumalið Bandaríkjamanna sló í gegn á leikunum í Barcelona 1992 og körfuboltinn tók í framhaldinu risastökk á heimsvísu. Nú hafa þeir Borislav Stankovic og David Stern báðir hvatt heiminn á stuttum tíma því David Stern lést 1. janúar síðastliðinn. Borislav Stankovic var tekinn inn í heiðurshöll körfuboltans árið 1991 og inn í heiðurshöll FIBA árið 2007. Hann hafði líka verið meðlimur í Alþjóðaólympíunefndinni.
Körfubolti Bandaríkin Andlát Mest lesið Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Fótbolti Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Enski boltinn Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Fótbolti Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Íslenski boltinn Sjóðheit Ída Marín kveður FH Íslenski boltinn Þingkonan hlaut EM-brons eftir mikla spennu Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Enski boltinn „Allur heimurinn gæti hlegið að mér“ Sport Sveindís missti af prinsessuleiknum Fótbolti Fleiri fréttir Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sjá meira