Innlent

Bóluefni hjá heilsugæslunni nánast búið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fólk bíður þess að komast í bólusetningu hjá Vinnuvernd klukkan tíu í morgun.
Fólk bíður þess að komast í bólusetningu hjá Vinnuvernd klukkan tíu í morgun. Vísir/Vilhelm

Löng röð hefur myndast fyrir utan Smáratorg þar sem fólk bíður þess að verða bólusett fyrir inflúensu. Bóluefni virðist enn vera til hjá apótekum landsins en það er uppurið á flestum heilsugæslum á höfuðborgarsvæðinu.

„Bóluefni er til á stöðvum fyrir þá sem þegar eiga bókaðan tíma í bólusetningu. Einstaka stöðvar eiga eftir bóluefni sem verður notað fyrir forgangshópa,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Starfsmenn Vinnuverndar og þeir sem mæta í sprautu eru með grímu enda tekst ekki að viðhalda tveggja metra fjarlægð við bólusetningu.Vísir/Vilhelm

Myndin að ofan var tekin klukkan hálf níu í morgun en þá voru um fimmtíu manns í röð, í kulda og rigningu, eftir að komast í bólusetningu hjá Vinnuvernd. Um er að ræða starfsfólk einstakra fyrirtækja sem bjóða starfsmönnum upp á bólusetningu.

Apótekin bjóða sömuleiðis upp á bólusetningu á höfuðborgarsvæðinu, þeirra á meðal Lyfja bæði í Lágmúla og á Smáratorgi. Nokkur verðmunur er á bólusetningu hjá apótekunum og heilsugæslunni. 

Þannig kostar bólusetning hjá Lyfju sem dæmi 3490 krónur en 2290 krónur fyrir öryrkja og eldri borgara.

Fyrirtæki sem hafa keypt bólusetningu gegn inflúensu fyrir starfsfólk sitt senda það á Smáratorg 1. Þar myndaðist mjög löng röð strax þegar opnað var klukkan 8:15 í morgun.Vísir/HMP

Hjá heilsugæslunni greiðir fólk 700 krónur í komugjald en ókeypis er fyrir eldri borgara og öryrkja. 

Fram kom á heimasíðu Heilsugæslunnar í morgun að bóluefni væri uppurið. Þær upplýsingar hafa verið uppfærðar og segir þar nú: 

Bóluefni gegn inflúensu er á þrotum á heilsugæslustöðvunum okkar. Bóluefni er til fyrir þá sem nú þegar eiga bókaðan tíma í bólusetningu. Einstaka stöðvar eiga eftir bóluefni sem verður notað fyrir forgangshópa. Reynt verður að fá meira en ekki er víst að það takist.

Fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að eftirspurnin væri afar mikil í ár. Pantað hefði verið umtalsvert meira magn í ár en fyrri ár. Pöntunin hafi verið gerð áður en kórónuveirufaraldurinn skall þegar ómögulegt var að vita hversu mikil eftirspurnin yrði. Allt kapp sé lagt á að fá fleiri skammta eins fljótt og auðið sé.

Karlmaður bólusettur í morgun.Vísir/Vilhelm

Að sögn Sigríðar Dóru verða pantaðir fleiri skammtar á næsta ári. Hún velti því upp í fréttum Stöðvar 2 í gær hvort heilsugæslan gæti keypt bóluefnið af lyfjafyrirtækjunum til að tryggja að fólk í áhættuhópum fengi bólusetningu.

„Það er yfirleitt ungt og frískt fólk sem verið er að bólusetja til að halda fyrirtækjunum gangandi en við myndum gjarnan vilja sjá þetta bóluefni hjá okkur til að geta bólusett forgangshópana.“

Fréttin var uppfærð eftir að þær Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu áréttaði að þeir sem ættu pantaðan tíma fengu bólusetningar. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×