Guðmundi dæmdar 5,6 milljónir í bætur Kristín Ólafsdóttir skrifar 8. október 2020 19:34 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Guðmundi bæturnar í júní. Vísir/vilhelm
Íslenska ríkið var í sumar dæmt til að greiða Guðmundi R. Guðlaugssyni 5,6 milljónir króna í skaðabætur vegna tekjutaps sem hann varð fyrir eftir gæsluvarðhaldsvistun árið 2010. Ríkisútvarpið greinir frá. Árið 2017 voru Guðmundi dæmdar tvær milljónir í miskabætur vegna málsins, annars vegar vegna þvingunarráðstafana sem beindust að honum vegna afbrota sem sonur hans var grunaður um. Guðmundur og sonur hans voru handteknir árið 2010 grunaðir um aðild að innflutningi á kókaíni til landsins. Guðmundur sat í gæsluvarðhaldi í tíu daga en var sleppt og rannsókn á hendur honum látin niður falla. Sonur hans hlaut að endingu fangelsisdóm fyrir peningaþvætti. Guðmundur hefur ítrekað lýst því síðustu ár hversu erfið vistunin hafi reynst honum. Þá kveðst hann hafa verið meira og minna óvinnufær síðan en honum var sagt upp störfum nokkrum dögum eftir að hann losnaði úr gæsluvarðhaldinu árið 2010. Fram kemur í frétt Ríkisútvarpsins að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi fallist á það með Guðmundi að hann hefði verið óvinnufær í tvö ár. Guðmundur fékk fyrir þetta 5,6 milljónir í bætur, að því er segir í frétt Ríkisútvarpsins. Enn er rekið stærra dómsmál Guðmundar gegn ríkinu. Þar krefur Guðmundur ríkið um rúmar fimmtíu milljónir í skaðabætur fyrir tekjutap til allrar framtíðar.
Dómsmál Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Sjá meira