Erlent

Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í eðlis­fræði?

Atli Ísleifsson skrifar
Fundur sænsku vísindaakademíunnar hefst klukkan 9:45.
Fundur sænsku vísindaakademíunnar hefst klukkan 9:45. Getty

Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár. Tilkynnt verður um verðlaunahafa á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:45 að íslenskum tíma.

Þrír vísindamenn deildu Nóbelsverðlaunum í eðlisfræði á síðasta ári fyrir tvær ólíkar uppgötvanir. James Peeble hlaut annars vegar verðlaunin fyrir kennilegar uppgötvanir á eðli alheimsins og þeir Michel Mayor og Didier Queloz hins vegar fyrir uppgötvun á fyrstu fjarreikistjörnunni.

Greint var frá því í gær að Bandaríkjamennirnir Harvey J. Alter, Michael Houghton og Charles M. Rice hafi fengið Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði fyrir uppgötvanir sínar um lifrarbólgu C veiruna.

Hægt er að fylgjast með blaðamannafundinum að neðan. Útsendingin hefst klukkan 9:30 og fundurinn fimmtán mínútum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×