Martröð Eyjamanna eftir Þjóðhátíðina sem aldrei var haldin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. september 2020 11:01 Jonathan Ricardo Glenn og félagar í ÍBV verða ekki í Pepsi Max deildinni næsta sumar. Vísir/Daníel Þór Eyjamenn hafa aðeins unnið tvo af síðustu ellefu leikjum sínum í Lengjudeild karla í fótbolta. Sumarið 2020 hefur verið Eyjamönnum erfitt í fótboltanum og það batnaði ekkert eftir heimsókn þeirra til Keflavíkur í gær. Keflavík vann leikinn 3-1 og veruleikinn blasir nú blákaldur við fótboltamönnunum úr Vestmannaeyjum. ÍBV liðið er níu stigum frá sæti í Pepsi Max deildinni þegar aðeins níu stig eru eftir í pottinum. Það er því orðið ljóst að Eyjamenn spila áfram í Lengjudeildinni á næsta ári. Liðið sem átti að vinna Lengjudeildina með yfirburðum hefur kolfallið á prófinu og situr nú bara í fimmta sæti deildarinnar með sjö sigra í nítján leikjum. ÍBV hefur aðeins unnið 2 af síðustu 11 leikjum sínum í Lengjudeildinni og ef við berum það saman við restina af deildinni þá er aðeins eitt lið sem hefur unnið færri leiki á þessum tíma. Botnlið Leiknis Fáskrúðsfjarðar hefur aðeins unnið einn leik frá 1. ágúst en ÍBV og Víkingur frá Ólafsvík hafa tvo sigurleikir hvort lið. Hin níu lið Lengjudeildarinnar hafa unnið fleiri leiki. Eyjamenn hafa náð í tólf stig út úr þessum ellefu leikjum þökk sé sex jafnteflum en það þýðir að sex af tólf liðum Lengjudeildarinnar hafa safnað fleiri stigum en ÍBV frá júlílokum.
Eyjamenn hafa aðeins unnið tvo af síðustu ellefu leikjum sínum í Lengjudeild karla í fótbolta. Sumarið 2020 hefur verið Eyjamönnum erfitt í fótboltanum og það batnaði ekkert eftir heimsókn þeirra til Keflavíkur í gær. Keflavík vann leikinn 3-1 og veruleikinn blasir nú blákaldur við fótboltamönnunum úr Vestmannaeyjum. ÍBV liðið er níu stigum frá sæti í Pepsi Max deildinni þegar aðeins níu stig eru eftir í pottinum. Það er því orðið ljóst að Eyjamenn spila áfram í Lengjudeildinni á næsta ári. Liðið sem átti að vinna Lengjudeildina með yfirburðum hefur kolfallið á prófinu og situr nú bara í fimmta sæti deildarinnar með sjö sigra í nítján leikjum. ÍBV hefur aðeins unnið 2 af síðustu 11 leikjum sínum í Lengjudeildinni og ef við berum það saman við restina af deildinni þá er aðeins eitt lið sem hefur unnið færri leiki á þessum tíma. Botnlið Leiknis Fáskrúðsfjarðar hefur aðeins unnið einn leik frá 1. ágúst en ÍBV og Víkingur frá Ólafsvík hafa tvo sigurleikir hvort lið. Hin níu lið Lengjudeildarinnar hafa unnið fleiri leiki. Eyjamenn hafa náð í tólf stig út úr þessum ellefu leikjum þökk sé sex jafnteflum en það þýðir að sex af tólf liðum Lengjudeildarinnar hafa safnað fleiri stigum en ÍBV frá júlílokum. Flestir sigurleikir í Lengjudeild karla frá 1. ágúst 2020: 1. Keflavík - 7 sigurleikir 2. Fram - 6 sigurleikir 2. Grindavík - 6 sigurleikir 2. Leiknir R. - 6 sigurleikir 5. Vestri - 4 sigurleikir 5. Þór - 4 sigurleikir 7. Afturelding - 3 sigurleikir 7. Magni - 3 sigurleikir 7. Þróttur R. - 3 sigurleikir 10. Víkingur Ó. - 2 sigurleikir 10. ÍBV - 2 sigurleikir 12. Leiknir F. - 1 sigurleikur Flestir stig í Lengjudeild karla frá 1. ágúst 2020: 1. Keflavík - 23 stig 2. Fram - 22 stig 3. Grindavík - 21 stig 4. Leiknir R. - 20 stig 5. Vestri - 15 stig 5. Þór - 15 stig 7. Afturelding - 12 stig 7. ÍBV - 12 stig 9. Magni - 11 stig 9. Þróttur R. - 11 stig 11. Víkingur Ó. - 10 stig 12. Leiknir F. - 5 stig
Flestir sigurleikir í Lengjudeild karla frá 1. ágúst 2020: 1. Keflavík - 7 sigurleikir 2. Fram - 6 sigurleikir 2. Grindavík - 6 sigurleikir 2. Leiknir R. - 6 sigurleikir 5. Vestri - 4 sigurleikir 5. Þór - 4 sigurleikir 7. Afturelding - 3 sigurleikir 7. Magni - 3 sigurleikir 7. Þróttur R. - 3 sigurleikir 10. Víkingur Ó. - 2 sigurleikir 10. ÍBV - 2 sigurleikir 12. Leiknir F. - 1 sigurleikur Flestir stig í Lengjudeild karla frá 1. ágúst 2020: 1. Keflavík - 23 stig 2. Fram - 22 stig 3. Grindavík - 21 stig 4. Leiknir R. - 20 stig 5. Vestri - 15 stig 5. Þór - 15 stig 7. Afturelding - 12 stig 7. ÍBV - 12 stig 9. Magni - 11 stig 9. Þróttur R. - 11 stig 11. Víkingur Ó. - 10 stig 12. Leiknir F. - 5 stig
Lengjudeildin ÍBV Þjóðhátíð í Eyjum Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Gylfi valinn besti leikmaður ársins Íslenski boltinn Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn „Madrid með Mourinho vinnur titla“ Sport Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Sport Fleiri fréttir Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“