Fimm handteknir vegna brunans í Moria Atli Ísleifsson skrifar 15. september 2020 14:56 Búið er að koma upp tímabundnum búðum í Kara Tepe, norður af Mytilene á Lesbos. AP
Lögregla í Grikklandi hefur handtekið fimm flóttamenn sem grunaðir eru um að hafa átt þátt í því að kveikja í flóttamannabúðunum Moria á eynni Lesbos. Gríski ráðherrann Michalis Chrisohoidis, sem fer með málefna borgaralegra réttinda, segir að eins manns til viðbótar sé enn leitað. Rannsókn á brunanum stendur enn yfir, en eldurinn blossaði upp þann 9. september og varð stærstur hluti búðanna eldinum að bráð. Ríkisstjórn Grikklands hefur kennt flóttamönnum sem höfðust við í búðunum um brunann. „Flóttamenn og farandfólk kveikti í búðunum til að þrýsta á ríkisstjórnina þannig að þeir kæmust fyrr frá eyjunni,“ sagði Stelios Petsas, talsmaður ríkisstjórnarinnar, við fjölmiðla um daginn. Búið er að koma upp tímabundnum búðum í Kara Tepe, norður af Mytilene á Lesbos. Er það búið að koma upp rúmum fyrir um fimm þúsund manns, en í Moria voru pláss fyrir um 12 þúsund. Enn sem komið er hafa einungis um þúsund manns komið sér fyrir í Kara Tepe. Hafa margir flóttamannanna kosið að sofa frekar undir berum himni í þeirri von að fá að yfirgefa eyjuna á næstunni.
Grikkland Flóttamenn Tengdar fréttir Lögreglan á Lesbos beitir farendur táragasi Lögreglan á grísku eyjunni Lesbos beitti farendur úr Moria-flóttamannabúðunum sem voru við mótmæli táragasi í dag. 12. september 2020 14:06 Eldsvoði í stærstu flóttamannabúðum Lesbos Eldur kom upp í stærstu flóttamannabúðum grísku eyjunnar Lesbos í nótt. 9. september 2020 07:04 Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Sjá meira
Lögreglan á Lesbos beitir farendur táragasi Lögreglan á grísku eyjunni Lesbos beitti farendur úr Moria-flóttamannabúðunum sem voru við mótmæli táragasi í dag. 12. september 2020 14:06
Eldsvoði í stærstu flóttamannabúðum Lesbos Eldur kom upp í stærstu flóttamannabúðum grísku eyjunnar Lesbos í nótt. 9. september 2020 07:04