Skoðun

Ögrandi, rót­tæk og skrefi á undan

Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar

Samfylkingin var stofnuð í kringum það markmið að sameina vinstrisinnað fólk í baráttunni fyrir kerfislægum breytingum á íslensku samfélagi. Á 20. afmælisári sínu heldur hún áfram að vera raunhæfasti farkosturinn til að sigla því markmiði í höfn.

Við Ungir jafnaðarmenn höfum átt okkar björtustu stundir þegar við höfum beitt okkur sem siðferðislegum áttavita í þessari vegferð, veitt flokknum okkar aðhald og hugmyndafræðilega leiðsögn í stórum málaflokkum sem smáum. Þetta er það hlutverk UJ sem ég tel að trúverðugleiki okkar byggist á. Og þannig ýtum við líka undir trúverðugleika flokksins.

Hlutverk forseta UJ er að tryggja að þeirri miklu hugmyndadeiglu sem á sér stað innan hreyfingarinnar sé komið á framfæri. Hann er jafnframt í aðstöðu til að halda að fulltrúum Samfylkingarinnar, hjá ríki og sveitarfélögum, baráttumálum og sjónarmiðum UJ. Einnig málum sem of oft fá að falla í gleymsku í amstri dagsins: baráttuna gegn hversdagslegri spillingu og óeðlilegri meðferð valds. Þetta getur ungliðahreyfing – umfram aðra – gert.

Það er þetta hlutverk sem forseti hreyfingarinnar þarf að vera óhræddur við að sinna af krafti og það er einmitt það sem ég býð mig fram til að gera fyrir hönd okkar frábæru hreyfingar.

Enda hef ég aldrei verið hræddur við að taka slaginn, hvorki innan flokks né utan. Á mínum fyrsta landsfundi hjá Samfylkingunni tókum við og unnum hugmyndafræðilegan slag við forystu flokksins um aðskilnað ríkis og kirkju, afglæpavæðingu fíkniefna, “húsnæði fyrst” fyrir heimilislaust fólk og bann við olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Þá skrifuðu fjölmiðlar að Samfylkingin væri komin á „jaðar íslenskra stjórnmála“. Í dag er stefnan um húsnæði fyrst komin í framkvæmd hjá Reykjavíkurborg og hin málin orðin svo gott sem sjálfsögð í stjórnmálaumræðunni. Það er þessi hreyfing sem ég vil veita forystu: hreyfing sem þorir að vera ögrandi, róttæk og skrefi á undan.

Auðvitað eru líka önnur, mikilvæg verkefni framundan: að skipuleggja kosningabaráttu, bjóða nýtt fólk velkomið í hreyfinguna og skapa umræðuvettvang fyrir þau. Um þetta geta Ungir jafnaðarmenn sannarlega sameinast og unnið að.

En þessi kosning – kosning til forseta – snýst um það hver getur best stutt við hreyfingu jafnaðarfólks eftir þeim góðu leiðarljósum sem Ungir jafnaðarmenn þekkja og standa fyrir. Ekki er vanþörf á eftir þrjár íhaldsstjórnir í röð.

Landsþing Ungra jafnaðarmanna fer fram næstkomandi laugardag. Þátttöku- og kosningarétt eiga allir félagar í Samfylkingunni á aldrinum 16-35 ára. Skráningu á þingið má nálgast hér.

Höfundur er frambjóðandi til forseta Ungra jafnaðarmanna.




Skoðun

Sjá meira


×