Gular viðvaranir í gildi víða í dag Eiður Þór Árnason skrifar 7. mars 2020 07:13 Reikna má með því að það verði vindasamt víða á landinu í dag. Vísir/vilhelm
Gul viðvörun vegna veðurs er í gildi í dag á Suðurlandi, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum, Suðausturlandi og Miðhálendi. Má sums staðar reikna með allt að 25 metrum á sekúndu og geta akstursskilyrði víða verið erfið. Nú með morgninum má búast við austan kalda 8 til 15 m/s eða strekkingi á landinu, en hvassara með suðurströndinni 18 til 23 m/s í vindstrengjum. Skýjað á landinu og gæti orðið vart við dálítil él sunnan- og austanlands, er kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofunni. Seint í dag snýst svo til norðaustanáttar 10 til 18 m/s og vindstyrkur eykst heilt yfir, strekkingur eða allhvass vindur verður algengur, en hvassari strengir undir Vatnajökli. Éljagangur austanlands og vestur eftir norðanverðu landinu. Úrkomulaust á Suðvestur- og Vesturlandi. Það var kalt á landinu í nótt og mest mældist 23 stiga frost við Mývatn. Í dag dregur úr frostinu og verður það yfirleitt á bilinu 0 til 5 stig seinnipartinn. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á sunnudag: Norðan 10-18 m/s og él eða snjókoma norðan- og austanlands, en úrkomulaust sunnan heiða. Frost 1 til 6 stig. Á mánudag: Norðaustan 8-15 m/s og dálítil él á norðanverðu landinu, frost 3 til 8 stig. Austlægari sunnanlands og snjókoma með köflum, frost 0 til 5 stig. Á þriðjudag og miðvikudag: Austan- og norðaustanátt og dálítil él, en yfirleitt þurrt á vestanverðu landinu. Frost 1 til 8 stig. Á fimmtudag: Austlæg átt og líkur á snjókomu í flestum landshlutum. Áfram kalt í veðri. Á föstudag: Norðlæg átt og lítilsháttar él með norður- og austurströndinni, en léttskýjað sunnan- og vestanlands. Herðir á frosti.
Veður Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira