Bíó og sjónvarp

Staðfesta endurkomu „Vina“ í sérþætti á HBO

Kjartan Kjartansson skrifar
Leikaralið Vina í kynningarefni fyrir sjöttu þáttaröðina sem var sýnd árið 2000.
Leikaralið Vina í kynningarefni fyrir sjöttu þáttaröðina sem var sýnd árið 2000. Vísir/Getty

Bandaríska sjónvarpsveitan HBO hefur staðfest að framleiddur verði sérþáttur af „Vinum“, gamanþáttaröðinni vinsælu sem gekk í tíu ár. Allir leikararnir sex úr upphaflegu þáttunum hafa staðfest að þeir taki þátt.

Vangaveltur hafa lengi verið uppi um að upprunalegt leikaralið úr „Vinum“ [e. Friends] gæti komið aftur saman á ný. Kevin Reilly, yfirmaður framleiðslu deildar HBO Max, nýrrar streymisveitu sem á að hleypa af stokkunum í maí, staðfesti í dag að draumur aðdáenda þáttanna verði brátt að veruleika.

Leikararnir sex, þau Jennifer Aniston, Courteney Cox, Lisa Kudrow, Matt LeBlanc, Matthew Perry og David Schwimmer eru sögð fá 2,5 milljónir dollara, jafnvirði um 320 milljóna íslenskra króna, hvert fyrir að leika í sérþættinum.

„Vinir“ hófu göngu sína árið 1994 og gengur í tíu þáttaraðir til ársins 2014. Nýi þátturinn verður tekinn upp í sama myndveri og upphaflegu þættirnir. Að sögn tímaritsins Variety verður sérþátturinn aðgengilegur þegar HBO Max fer í loftið ásamt öllum tíu þáttaröðunum.

Aniston kynti undir aðdáendum þáttanna í kvöld þegar hún birti gamla mynd af henni og samleikurunum úr „Vinum“ án frekari skýringar á Instagram síðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.