Hundruð jarðskjálfta mældust við Grindavík í liðinni viku Birgir Olgeirsson skrifar 16. febrúar 2020 13:39 Grindavík með fjallið Þorbjörn í baksýn. Vísir/Arnar
Um fjögur hundruð jarðskjálftar mældust norðan við Grindavík í síðustu viku. Fjöldinn er svipaður og hefur verið en virknin er þó minni en þegar hún var hvað mest í lok janúar. Landið heldur áfram að rísa og stendur risið í fimm sentímetrum. Í gær mældust um þrjátíu skjálftar í kringum Þorbjörn, norðan við Grindavík. Það sem af er degi hafa þeir verið fimmtán talsins. Sigþrúður Ármannsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að skjálfti upp á 3,6 hafi mælst á þriðjudag og að íbúar í Grindavík finni fyrir slíkum skjálftum. Stærsti skjálftinn við Grindavík í gær var upp á 2,3 en Sigrúður segir að stærri skjálftar hafi mælst utan við Reykjanestána, allt að 2,8 til 2,9 að stærð. Landrisið við Þorbjörn heldur áfram og segir Sigþrúður það nú ná fimm sentímetrum. Það hefur lítið breyst að undanförnu. „Þetta er svona á svipuðu róli. Þetta fer ekkert vaxandi en heldur ekkert sjáanlegt minnkandi,“ segir hún. Búið er að bæta við tveimur nýjum jarðskjálftamælum á svæðið, gasmælingar verða gerðar reglulega og telja vísindamenn að vakta þurfi svæðið áfram vegna jarðvirkninnar.
Eldgos og jarðhræringar Grindavík Jarðhræringar á Reykjanesi Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Sjá meira