Hetjan í Bítlaborgarslagnum: Þreytandi að sitja á bekknum Arnar Geir Halldórsson skrifar 5. janúar 2020 18:45 Curtis Jones í baráttunni í dag.
Átján ára Englendingur stal senunni á Anfield í dag þegar Liverpool lagði erkifjendur sína í Everton að velli í 3.umferð enska bikarsins. Leikmaðurinn sem um ræðir heitir Curtis Jones og hefur verið í aðalliðshóp Liverpool í allan vetur án þess að fá ýkja mörg tækifæri enda liðið firnasterkt. Hann telur sig þó eiga fullt erindi í liðið. „Ég fór bara út og reyndi að spila minn leik. Það hefur verið þreytandi að þurfa að sitja löngum stundum á bekknum og fá stundum tækifæri en þurfa svo aftur að setjast á bekkinn,“ sagði Jones í leikslok. „Ég hef beðið eftir þessu tækifæri og vonandi tókst mér að nýta það til fulls með þessu góða marki.“ Liverpool stillti upp algjöru varaliði í leiknum og þrátt fyrir að vilja meiri spilatíma virðist ungstirnið gera sér fyllilega grein fyrir því hve sterkt Liverpool liðið er um þessar mundir. „Ég get ekki lýst tilfinningum mínum. Fyrir mig er risastórt að fá að vera í kringum þetta lið daglega og fá að læra af þessum hópi. Það eru heimsklassa leikmenn í öllum stöðum en ég held að ég hafi sýnt í dag hvað ég get fært liðinu,“ sagði Jones.
Enski boltinn Tengdar fréttir Varalið Liverpool fleygði nágrönnunum úr bikarnum Jurgen Klopp komst upp með að stilla upp algjöru varaliði í borgarslagnum í Liverpool. 5. janúar 2020 18:00 Mest lesið „Hún á að leyfa manni að koma sér almennilega inn á völlinn“ Fótbolti Skráði óvart 51 árs gamla konu í landsliðið og nýliðinn mátti ekki spila Fótbolti Alþjóða skíðasambandið tekur upp gult og rautt spjald Sport Hinn eftirsótti Gyökeres dregur sig út úr sænska landsliðinu Fótbolti Lamine Yamal segir leikinn geta ráðið úrslitum í baráttunni um Gullknöttinn Fótbolti Enska landsliðið æfir í upphituðum tjöldum til að undirbúa sig fyrir HM Enski boltinn Völdu þann leikmann í Bestu deildinni sem er líkastur þeim sjálfum Íslenski boltinn „Rangstaða og hefði ekki staðið með VAR“ Fótbolti Dagskráin: Undanúrslitaleikur í Þjóðadeild karla Sport Sjónvarpsútsending yfir þjóðsöngnum: „Pínlegt fyrir okkur“ Fótbolti Fleiri fréttir Enska landsliðið æfir í upphituðum tjöldum til að undirbúa sig fyrir HM Sancho samdi ekki við Chelsea sem þarf að borga sekt Bruno ætlar ekki að sækja seðlana í Sádi-Arabíu Mbuemo sagður vilja fara til Manchester United Hóta Abramovich lögsókn og vilja láta Úkraínu fá Chelsea peninginn Leikmenn ensku stórliðanna kvarta við leikmannasamtökin Gætu hent Crystal Palace út úr Evrópudeildinni Man. City vill fá bakvörð frá Úlfunum Beckham óánægður með hegðun leikmanna Manchester United Hákon mun slást við Kelleher um stöðuna Rauðu djöflarnir staðfesta kaup á Cunha Hispurslaus Amorim mun reynast Man United vel Arsenal í viðræðum við Leipzig vegna Šeško Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City Tottenham lætur fimm fara og festir fyrstu kaup sumarsins Fyrrum aðstoðarmaður Klopp aðstoðar Guardiola á næsta tímabili Ungu strákarnir björguðu andliti Man United í Hong Kong „Auðveld ákvörðun“ þegar hann heyrði af áhuga Liverpool Enn hærra metboð frá Liverpool Trent með á HM og Liverpool fær væna summu Skrifar undir fimm ára samning við Liverpool Fyrirliði Man. Utd íhugar alvarlega risatilboð frá Sádi-Arabíu Kaupa Delap og eru í viðræðum við Sancho Enginn labbaði meira en verðandi leikmaður Man United Arsenal að sækja miðjumann þó það sárvanti framherja Henry segir að Arsenal hafi ekki staðið undir væntingum United niðurlægt í Malasíu Leita til Liverpool að nýjum kollega Hákonar Stuðningsmenn Chelsea köstuðu glösum og stólum í Póllandi „Án Meistaradeildarinnar þurfum við ekki stóran leikmannahóp“ Sjá meira
Varalið Liverpool fleygði nágrönnunum úr bikarnum Jurgen Klopp komst upp með að stilla upp algjöru varaliði í borgarslagnum í Liverpool. 5. janúar 2020 18:00