Bruninn á Þingvöllum reiðarslag fyrir þjóðina Jakob Bjarnar skrifar 10. júlí 2020 15:02 Mynd sem sjá mátti á forsíðu Tímans fljótlega í kjölfar hins voveiflega atburðar. skjáskot/timarit.is
Í dag er þess minnst að 50 ár eru liðin frá því að forsætisráðherrahjónin og barnabarn þeirra fórust í eldsvoða í sumarbústað þeirra á Þingvöllum. „Dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, frú Sigríður Björnsdóttir, kona hans, og Benedikt Vilmundarson, fjögurra ára, fórust í fyrrinótt, þegar ráðherrabústaðurinn á Þingvöllum brann til kaldra kola. Fréttin um þetta hörmulega slys kom sem reiðarslag yfir íslensku þjóðina og stjórnmálamenn á Norðurlöndum hafa lýst hryggð sinni vegna þessa atburðar.“ Litli drengurinn var sonur Valgerðar Bjarnadóttur og Vilmundar Gylfasonar eiginmanns hennar. Þjóðarsorg var lýst yfir og óhætt að segja að þjóðin öll, hvar í flokki sem menn stóðu, var sleginn harmi vegna þessa atburðar. Svo segir á forsíðu Tímans 11. júlí 1970. Í yfirfyrirsögn segir: „Enn ókunnugt um eldsupptök í ráðherrabústaðnum á Þingvöllum“. Óhugnanleg sjón blasti við Inni í blaðinu er fjallað ítarlega um hinn hörmulega atburð. Þar segir meðal annars að Kristján Eldjárn forseti Íslands hafi fallist á tillögu ríkisstjórnarinnar um að fela Jóhanni Hafstein, ráðherra, að gegna stöðu forsætisráðherra fyrst um sinn. Blaðamaður greinir frá ferð fréttamanna Tímans yfir Mosfellsheiði. Dökk var yfir og skýjað. Snjóföl hafði verið á veginum um nóttina sem enn mátti greina utan vegar. Fjölmiðlar fjölluðu ítarlega um brunann. En hér má sjá forsíðu Tímans þar sem greint er frá brunanum.skjáskot timarit.is „Er komið var/á veginn heim að Valhöll, blasti óhugnanleg sjón við, þar sem voru rústir sumarhúss forsætisráðherrans, og skorsteinninn skagaði nakinn upp í loftið. Reyk lagði upp af rústunum, og bárujárnið, sem klætt hafði bústaðinn að utan, var allt sunnan við bústaðinn, og þar hafði jörðin sviðnað. Í grunni bústaðarins var salli og einn og einn hlutur úr járni kolsvartur og úr lagði genginn eftir hitann í brunanum. Baðkerið, ísskápurinn, þvottavélin, rúmgrindur og fleiri hlutir úr járni lágu hér og hvar í rústunum skakkir og skældir og hálf bráðnaðir sumir hverjir.“ Fræði- og framkvæmdamaður í senn Um Bjarna segir á sérstakri vefsíðu sem helguð er minningu hans: „Bjarni Benediktsson var í fremstu röð stjórnmálaforingja Íslendinga á 20. öld. Hann ólst upp í Reykjavík á öðrum áratug 19. aldar og lærði mikið af foreldrum sínum sem voru mikils metin í íslensku samfélagi. Faðir hans Benedikt Sveinsson var alþingismaður og bókavörður og hefur án efa verið þess valdandi að Bjarni hefur haldið sérstaklega vel utan um öll sín gögn síðan hann var í barnaskóla, og erum við þakklát því í dag. Móðir hans var Guðrún Pétursdóttir en var hún kvenskörungur mikill og lét sig mikið varða jafnræði og kvenréttindi sem var ekki á allra máli á þessum tíma. Dr. Bjarni Benediktsson var góðum gáfum gæddur. Hann var stúdent liðlega 18 ára gamall og einungis 22 ára lauk hann lögfræðiprófi með hæstu einkunn við Háskóla Íslands. Bjarni var í senn fræðimaður, framkvæmdamaður og stjórnmálamaður. Hann útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík aðeins 18 ára og fór þá beint að nema lögfræði. 24 ára varð hann prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands, síðar borgarfulltrúi og borgarstjóri, sat á þingi og gegndi mörgum ráðherraembættum og var varaformaður og formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann lést sviplega á hátindi ferils síns.“ Greindur, íhugull og alvörugefinn Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins ritar grein sem birtist meðal annars á vefsíðu flokksins. Þar segir Bjarni um nafna sinn og forvera: „Á Þingvöllum stendur steinn sem reistur var í minningu þeirra þriggja sem létust svo voveiflega fyrir fimmtíu árum. Þar verður þeirra minnst við athöfn í dag. En bautasteinn dr. Bjarna Benediktssonar er miklu stærri og hann mun standa jafnlengi og Ísland er byggt. Sá bautasteinn er lýðveldið okkar, byggt á lögum og rétti; lýðveldi frjálsrar og fullvalda þjóðar, sem ekki hikar við að skipa sér í fylkingu vestræns lýðræðis og vill verja, varðveita og byggja upp það sem okkur kom í arf og ber að skila til komandi kynslóða.“ Í grein sinni rekur Bjarni feril Bjarna Benediktssonar, hann hafi fæðst hinn 30. apríl 1908 í Reykjavík, sonur hjónanna Benedikts Sveinssonar þingforseta og Guðrúnar Pétursdóttur frá Engey, alinn upp á stóru og fjörlegu menningarheimili við Skólavörðustíginn. „Hann var einstaklega góðum gáfum gæddur; greindur, íhugull og alvörugefinn. Hann varð stúdent liðlega 18 ára gamall og einungis 22 ára lauk hann lögfræðiprófi með hæstu einkunn við Háskóla Íslands. Eftir framhaldsnám í stjórnlagafræði, aðallega í Berlín, varð hann prófessor í lögum við Háskóla Íslands árið 1930, aðeins 24 ára að aldri og þótti skjótt fremsti stjórnlagafræðingur þjóðarinnar, snjall og afkastamikill fræðimaður. Hann gegndi því starfi til hausts 1940, þegar hann varð borgarstjóri. Árið 1947 var hann skipaður utanríkis- og dómsmálaráðherra og lét þá af borgarstjórastörfum,“ skrifar Bjarni vorra tíma. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ritar grein um alnafna sinn en tilefnið er að nú er hálf öld frá hinum skelfilega atburði, brunanum á Þingvöllum.visir/vilhelm Dr. Bjarni Benediktsson átti síðan sæti í ríkisstjórn til æviloka, lengst allra íslenskra ráðherra, fyrir utan tímabilið frá 1956 til 1959, en þá var hann ritstjóri Morgunblaðsins meðfram þingstörfum og rak einhverja hörðustu stjórnarandstöðu lýðveldissögunnar, að sögn formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann varð fyrst forsætisráðherra í Viðreisnarstjórninni svo kölluðu (1959 – 1971) árið 1961 í forföllum Ólafs Thors og síðan frá 1963 til dauðadags. Gerðist kirkjurækinn í kjölfar fráfalls eiginkonu Þá segir formaður Sjálfstæðisflokksins frá því að Bjarni hafi kvænst Valgerði Tómasdóttur 26 ára gamall, en hún lést úr fóstureitrun innan við hálfu ári síðar. „Hann syrgði hana mjög og sótti sér styrk í kristinni trú og varð mjög kirkjurækinn upp frá því. Síðar gekk hann að eiga Sigríði Björnsdóttur og varð þeim fjögurra barna auðið; Björns, Guðrúnar, Valgerðar og Önnu.“ Bjarni segir alnafna sinn og forvera í starfi hafa upplifað mikla umbrotatíma í starfi, hann hafi verið borgarstjóri í hernáminu og staðið fyrir einum mestu framfaraframkvæmdum í sögu landsins með hitaveitunni í Reykjavík. „Hann lét sig þjóðmálin þó ekki minna máli skipta og ég fullyrði að enginn Íslendingur hafi þá verið duglegri baráttumaður fyrir því að Ísland ætti og yrði að verða lýðveldi, líkt og sambandssáttmálinn frá 1918 heimilaði. Það náði ekki einvörðungu til hinnar lagalegu hliðar, sem þó var honum sérstaklega hugleikin, heldur einnig til efnahagslegs styrks og menningarlegrar reisnar, stjórnmálalegs stöðugleika, mannlegrar fjölbreytni og frelsis hvers og eins, sem hann vissi að landi og þjóð væru nauðsynleg til þess að öðlast sjálfstæði og varðveita það.“ Hin umdeilda ákvörðun um inngöngu í NATO Að sögn formanns Sjálfstæðisflokksins blasti við nýtt ríki að lokinni síðari heimstyrjöld og að Bjarni Benediktsson hafi aldrei efaðist um að þar yrðu Íslendingar að skipa sér í sveit með vestrænum lýðræðisríkjum. Ráðuneyti Bjarna Benediktssonar 1963-1970. Frá vinstri: Jóhann Hafstein, Gunnar Thoroddsen, Bjarni Benediktsson, Birgir Thorlacius ríkisráðsritari, Ásgeir Ásgeirsson forseti, Guðmundur Í. Guðmundsson, Emil Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason og Magnús Jónsson.Skjáskot af minningarsíðu um Dr. Bjarna Benediktsson „Hann beitti sér fyrir þeirri erfiðu og umdeildu ákvörðun að Íslendingar skyldu ganga í Atlantshafsbandalagið og þá var sjálfsagt harðast að honum sótt. Bjarni lét engan bilbug á sér finna, sótti fram af þeirri rökfestu og þunga, sem honum var í blóð borin, og hafði sigur. Bæði á Alþingi og í þeim kosningum, sem á eftir fylgdu.“ Dr. Bjarni Benediktsson stóð þannig fyrir afar umdeildum málum og til þess má ef til vill rekja viðvarandi sögusagnir um að ekki hafi allt verið sem sýndist varðandi brunann. En rannsóknir leiddu aldrei í ljós hvað hafði orsakað hann. Samsæriskenningar um brunann Fjölmargar kenningar hafa verið viðraðar í gegnum tíðina um hvað gæti hafa búið að baki brunanum. Til dæmis var greint frá því fljótlega eftir brunann að tveir menn hefðu sést á Þingvöllum þessa nótt sem aldrei tókst að hafa uppá. Mánudagsblaðið fjallaði um brunann tíu árum eftir að atburðinn (05.02.1979) en þar eru viðraðar samsæriskenningar; að bruninn hafi ef til vill verið af mannavöldum? Frá yfirstandandi minningarathöfn á Þingvöllum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.visir/Berghildur „Hér var ekki um venjulegan mann, heldur afar umdeildan þjóðarleiðtoga að ræða, mann sem stóð í pólitískum stórvirkjum og var jafnframt leiðtogi annarrar fylkingarinnar í umdeildu hitamáli, sem varðaði alla þjóðina. […]Þess gengur enginn dulinn að dr. Bjarni, sem og aðrir meiriháttar framámenn, urðu fyrir allskyns hótunum og aðkasti,“ segir í Mánudagsblaðinu. Og áfram: „Nóttina sem bruninn varð á Þingvöllum var veður hvasst og ákaflega ósumarlegt. Að venju var mannmargt á Valhöll, því hestamannamót var í Skógarhólum, auk venjulegra ferðamanna. Flestir voru gegnir til náða þegar eldurinn gaus upp. Var hann með þeim fádæmum, að á skammri stundu varð húsið alelda og brann allt sem brunnið gat. Slökkviðliðið úr Reykjavík gat ekkert aðhafst enda ekki von …“ Hinn dularfulli válegi atburður Þá víkur höfundur greinar að einstökum efnisatriðum í sambandi við þennan bruna: „Presturinn á Þingvöllum hafði um nóttina gengið að bústað ráðherra og var þá allt eðlilegt. Tuttugu mínútum síðar kom hann að embættisbústað sínum, Þingvallabænum, var þá litið að bústað ráðherra og sá þá að hann stóð í björtu báli. Á bókstaflega engri stundu brann forsætisráðherra Íslands inni ásamt konu og barnabarni. Á rétt um viku var búið að þurrka burt öll ummerki brunans, tyrfa yfir rústirnar og reisa minnisvarða um þennan válega atburð.“ Ýmis atriði eru týnd til sem mega heita grunsamleg. En hvað sem því líður hefur aldrei neitt komið fram sem varpar ljósi á tildrög brunans sem var, sem fyrr segir, reiðarslag fyrir þjóðina. Nú hefst sérstök minningarathöfn um þennan atburð sem sannarlega skók þjóðina. Vísir sendir beint frá athöfninni.
Einu sinni var... Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tímamót Alþingi Tengdar fréttir Bein útsending: Minningarathöfn um brunann á Þingvöllum Minningarathöfn verður haldin á Þingvöllum í dag til minnast þess að hálf öld er liðin frá því að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra Íslands, Sigríður Björnsdóttir eiginkona hans og fjögurra ára dóttursonur þeirra fórust í eldsvoða í ráðherrabústaðnum. 10. júlí 2020 14:30 Hálf öld frá brunanum á Þingvöllum Minningarathöfn verður haldin á Þingvöllum í dag til minnast þess að hálf öld er liðin frá brunanum sem var mikið reiðarslag fyrir þjóðina. Forsætisráðherrahjónin, ásamt dóttursyni þeirra, höfðu farið 9. júlí 1970 í ráðherrabústaðinn á Þingvöllum til að dvelja þar yfir nótt. 10. júlí 2020 13:00 Mest lesið Lofar látum og vísar gagnrýni Samtaka atvinnulífsins á bug Innlent „Fyrst og fremst erum við að biðja um að fá að vera skráð í okkar hús“ Innlent Flugumferðarstjórar aflýsa vinnustöðvunum á morgun og laugardag Innlent Brunaði austur til að finna litla frænda Innlent Starfsmenn Kubbs og Terra grunaðir um samráð Innlent Þriggja ára fangelsi eftir flug frá Berlín Innlent Pallborðið: Dómgreindarbrestur hjá CoolBet Innlent Allt að áttatíu þúsund mæti í miðbæinn og götulokanir í gildi Innlent Fann aldagamlan mun, brást hárrétt við og langar að gerast fornleifafræðingur Innlent Klórar sér í kollinum yfir kvennaverkfallinu Innlent Fleiri fréttir Allt að áttatíu þúsund mæti í miðbæinn og götulokanir í gildi Flugumferðarstjórar aflýsa vinnustöðvunum á morgun og laugardag Lofar látum og vísar gagnrýni Samtaka atvinnulífsins á bug „Fyrst og fremst erum við að biðja um að fá að vera skráð í okkar hús“ Þriggja ára fangelsi eftir flug frá Berlín Fann aldagamlan mun, brást hárrétt við og langar að gerast fornleifafræðingur Brunaði austur til að finna litla frænda „Þá erum við að tala um 60 milljarða í töpuðum útflutningstekjum“ Kvíðið starfsfólk, handtökur og fornminjafundur Starfsmenn Kubbs og Terra grunaðir um samráð Lúkas Geir áfrýjar eins og hinir tveir Kvenleiðtogar á kvennafrídegi: Kristrún með fjölskyldunni, Inga vill kíkja á Arnarhól og Þorgerður með í baráttuanda Landsnet fagnar sigri í baráttu við landeigendur Falsað myndband af kennara og nemanda fór í dreifingu Nýr lögreglustjóri á Austurlandi verði skipaður á allra næstu dögum Gagnrýna lítinn fyrirvara á skipulagi kvennafrídagsins „Við finnum fyrir mikilli spennu frá heimsbyggðinni“ Verktakar hafi greinilega nóg því þeir kjósi frekar að bíða en lækka Pallborðið: Dómgreindarbrestur hjá CoolBet Guðmundur til ráðherra og framkvæmdastjóri HK tekur við Sjaldan eins erfitt að kaupa fasteign og konur undirbúa verkfall Titringur í hreppnum vegna lögheimilisflutninga Sigmundur seinn: „Er þingmaðurinn í salnum?“ Halla tekur sér frí og vill að karlmenn axli ábyrgð Embættismenn sitji að hámarki í fjórtán ár og aðstoðarmenn hætti fyrir kosningar Engin lausn og ákveðin sjálfsblekking að banna börnum að nota tölvuleiki Stöðugleiki norðlægrar hringrásar skammgóður vermir fyrir Ísland Kröfur kvennaárs komnar í innheimtu og gjalddaginn fallinn Segir tilvalin íbúðasvæði opnast með Sundabraut Niðurrif hafið á gamla Morgunblaðshúsinu Sjá meira
Bein útsending: Minningarathöfn um brunann á Þingvöllum Minningarathöfn verður haldin á Þingvöllum í dag til minnast þess að hálf öld er liðin frá því að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra Íslands, Sigríður Björnsdóttir eiginkona hans og fjögurra ára dóttursonur þeirra fórust í eldsvoða í ráðherrabústaðnum. 10. júlí 2020 14:30
Hálf öld frá brunanum á Þingvöllum Minningarathöfn verður haldin á Þingvöllum í dag til minnast þess að hálf öld er liðin frá brunanum sem var mikið reiðarslag fyrir þjóðina. Forsætisráðherrahjónin, ásamt dóttursyni þeirra, höfðu farið 9. júlí 1970 í ráðherrabústaðinn á Þingvöllum til að dvelja þar yfir nótt. 10. júlí 2020 13:00
Kvenleiðtogar á kvennafrídegi: Kristrún með fjölskyldunni, Inga vill kíkja á Arnarhól og Þorgerður með í baráttuanda