Lífið

„Ég sá rosalega eftir að hafa spurt“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vilborg Arna Gissurardóttir og Sirrý Ágústsdóttir
Vilborg Arna Gissurardóttir og Sirrý Ágústsdóttir Vísir/Vilhelm

„Ég er ekki ennþá komin með þá tilfinningu að ég sé búin að ná hámarki í mínu hreysti, ég held að ég eigi ennþá alveg helling inni,“ segir Sirrý Ágústsdóttir sem lauk á dögunum áheitagöngunni LífsKraftur þegar hún þveraði Vatnajökul með góðum hópi kvenna.

„Ég er alveg sannfærð um það. Ég kom sjálfri mér á óvart og nú er ég bara full af áhuga á að sjá hversu langt ég kemst þegar ég verð ennþá sterkari.“

Sirrý var gestur í hlaðvarpinu Fokk ég er með krabbamein, sem kom inn á Vísi og allar helstu efnisveitur í dag. Með henni var Vilborg Arna Gissurardóttir Everest- og pólfari en hún var annar leiðangursstjóra ferðarinnar.

Sirrý greindist fyrst með krabbamein árið 2010 og svo aftur árið 2015. Síðan þá hefur hún verið að kynnast líkama sínum upp á nýtt eftir veikindin.

„Að læra að lifa með þeim vanköntum sem maður kannski losnar ekki við því það er svo margt sem breytist í likamanum. Maður þarf að lifa með alls konar verkjum og það eru alls konar hlutir sem þú getur aldrei gert aftur.“

Sjálf hefði hún viljað sleppa því að spyrja lækninn hvað hún ætti mikið eftir ólifað eftir seinni greininguna.

„Eitt til þrjú ár, var sagt í mínu tilfelli. Ég heyrði rosalega lítið eftir það. Ég hef reyndar oft sagt að maður á ekki að spyrja svona og enginn læknir á heldur endilega að svara því, því það er enginn sem veit allt. En ég held að það sé eðlilegt að maður spurði og ég held að það sé líka eðlilegt fyrir lækni að vilja gefa einhver svör. En hann horfir auðvitað bara á einhverjar tölur og líkindareikninga og eitthvað svoleiðis. En ég sá rosalega eftir að hafa spurt.“

Sirrý er búin að vera heilbrigð í nokkur ár og segir að það sé mikil valdefling í því að finna að maður getur barist á móti. Nú veitir hún öðrum innblástur með sinni sögu og áskorununum sem hún tekst á við. Þessi hópur 11 kvenna sem þveraði jökulinn saman hefur safnað yfir fimm milljónum fyrir félögin Kraft og Líf, sem hjálpuðu Sirrý mikið í veikindunum.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan en þar ræða þær Sirrý og Vilborg um krabbamein, fjallgöngur, leiðangurinn, jökulinn og margt fleira. Hlaðvarpið er unnið af Krafti en með þáttastjórn fer Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir.

Klippa: Fokk ég er með krabbamein - Sirrý og Vilborg Arna

Tengdar fréttir

Svaf úti í garði í rauðri viðvörun í tíu daga í Covid

Hólmfríður Vala Svavarsdóttir safnar fyrir Kraft og Líf með því að þvera Vatnajökul ásamt góðum hópi kvenna. Vala er búsett á Ísafirði og náði því ekki að æfa mikið með hópnum, en hún dó ekki ráðalaus.

Stóðu saman í þessu frá upphafi

Sóli Hólm og Viktoría Hermannsdóttir höfðu aðeins verið saman í níu mánuði þegar hann greindist með krabbamein, sumarið 2017. Sóli hefur talað mjög opinskátt um þessi veikindi en hann íhugaði þó að halda krabbameinsgreiningunni leyndri frá öllum nema sínum nánustu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.