Telja dómara sem dæmdi á skjön við alla hina tengjast bresku auglýsingastofunni Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. maí 2020 11:49 Valgeir Magnússon stjórnarformaður Pipar/TBWA og Guðmundur Pálsson, framkvæmdastjóri Pipar/TBWA. Samsett/Pipar
Stjórnarformaður auglýsingastofunnar Pipars/TBWA telur að einn dómara í nefndinni sem valdi tilboð bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchi í markaðsátakinu „Ísland – saman í sókn“ hafi möguleg tengsl við hina síðarnefndu stofu. Ekkert hefur fengist staðfest í þeim efnum en Vísir hefur sent Ríkiskaupum og Íslandsstofu, sem fara fyrir markaðsátakinu, fyrirspurn vegna málsins. Ákveðið var að ráðast í átakið til landkynningar á Íslandi sem ferðamannastaðar á erlendum mörkuðum í kjölfar faraldurs kórónuveiru. Greint var frá því í morgun að Pipar/TBWA hefði kært Ríkiskaup vegna þeirrar ákvörðunar að velja M&C Saatchi, í samstarfi við íslensku auglýsingastofuna Peel, til að vinna átakið. Alls mun ríkið verja einum og hálfum milljarði króna í verkefnið, þar af 300 milljónum í auglýsingaherferðina sem útboðið sneri að. Tillaga M&C Saatchi hlaut 87,17 stig af hundrað mögulegum. Pipar/TBWA kom næst í röðinni með 86,35 stig. Sáralitlu munaði því á einkunnum stofanna tveggja og lýstu forsvarsmenn Pipars yfir vonbrigðum með það strax í kjölfarið að þetta stóra verkefni skyldi falla í skaut erlendrar stofu. Íslensk auglýsingastofa hefði aldrei komið til greina Valgeir Magnússon stjórnarformaður Pipars/TBWA lagði áherslu á það í viðtali í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun að ekki hafi verið gætt jafnræðis í ýmsum þáttum útboðsins, til að mynda er varðar virðisaukaskatt og þá staðreynd að M&C Saatchi sæti rannsókn breska fjármálaeftirlitsins eftir að stofan viðurkenndi bókhaldsmisferli í lok síðasta árs. Valgeir hélt því fram að íslenskt fyrirtæki með sambærilega sögu hefði aldrei hlotið brautargengi í útboðinu. „Þar sem þau [M&C Saatchi] hafa brotið mjög gróflega af sér með fjársvikum í sínu heimalandi og bókhaldsbroti og alls konar dóti, og markaðsmisnotkun. Enginn í dómnefndinni hafði hugmynd um slíkt þegar þau voru að dæma í þessu máli og við fullyrðum að íslensk auglýsingastofa hefði aldrei átt möguleika í þessu útboði, ekki nokkurn séns, eftir svona stórfelld brot og verið í fjölmiðlum dögum saman vegna slíkra brota,“ sagði Valgeir. „Þarna er líka mismunur á milli þjóðernis þar sem þau njóta þess að engin umfjöllun um þetta mál hefur verið á Íslandi og rannsóknarskylda ríkiskaupa hefði átt að leiða í ljós að þau væru í þessari rannsókn. Og bara samkvæmt lögum um opinber innkaup hefði átt að útiloka þetta fyrirtæki frá þátttöku í útboðinu. Þarna eru hlutirnir ekki í lagi.“ Fara fram á að dómarinn verði rannsakaður Fleiri hlutir við útboðið eru í ólagi að mati Valgeirs. Þrettán manna dómnefnd skipuð fulltrúum ráðherra ferðamála, Samtaka ferðaþjónustunnar, Reykjavíkurborgar, markaðsstofa landshlutanna og Íslandsstofu, fór yfir tilboðin og lagði mat á þau. Ríkiskaup fór með framkvæmd útboðsins. Valgeir setti spurningarmerki við hæfi eins dómaranna. „Og þá er til dæmis að einn dómari af þrettán, hann dæmir algjörlega á skjön við alla dómarana í útboðinu. […] Frá tólf dómurum fáum við toppeinkunn en við fáum þrjá í einkunn í öllum liðum frá einum dómaranum,“ sagði Valgeir. „Við teljum okkur vera með nokkuð skýra vísbendingu um hver þessi aðili er en við getum ekki sagt það með fullri vissu. Við erum að fara fram á að það sé rannsakað. Þessi eini dómari hann gerir það að verkum að við töpum útboðinu. […] Hugsanlega hefur þessi dómari hagsmuni af því að íslenskt fyrirtæki fái ekki þetta verkefni.“ Inntur eftir því hvort umræddur dómari tengdist e.t.v. M&C Saatchi sagði Valgeir að svo gæti verið, þó að hann vildi ekkert fullyrða í þeim efnum. „Ef þetta er sá sem við höldum að þetta sé þá eru til tengsl, já. En svo skiptir það máli fyrir okkur, að við verðum að vita að það sé nákvæmlega sá sem við teljum að þetta sé áður en við förum að koma með slíkt fram.“ Nettó núll krónur fyrir ríkið Guðmundur Pálsson, framkvæmdastjóri Pipar/TBWA, segir í yfirlýsingu að ef málið falli Pipar í vil geti fyrirtækið tekið fjörutíu starfsmenn af hlutabótaleiðinni svokölluðu. „[…] og það ásamt skattgreiðslum sem yrði af þessu verkefni á Íslandi mun að öllum líkindum gera það að verkum að verkefnið kostar nettó 0 krónur fyrir ríkið ef við vinnum verkið. En ef það fer til Bretlands þá kostar það 300 milljónir.“ Þá dregur Guðmundur hæfi umrædds dómara einnig í efa. „Einn dómari dæmir á skjön við alla dómnefndina og gefur okkur 3 í einkunn í öllum liðum á sama tíma og allir aðrir dómarar gefa okkur topp einkunn. Bara þessi dómari einn og sér veldur því að verkefnið endar í Bretlandi en ekki á Íslandi,“ segir Guðmundur. „Það er undarlegt að við skulum vera að senda verkefni sem þetta til Bretlands á sama tíma og breska ríkið hefur ákveðið að sniðganga EES í öllum útboðum þetta árið. Slíkt hlýtur að eiga að virka í tvær áttir.“
Auglýsinga- og markaðsmál Ferðamennska á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Pipar kærir Ríkiskaup og krefst þess að eigin tillaga verði valin Auglýsingastofan Pipar/TBWA hefur kært Ríkiskaup vegna þeirrar ákvörðunar að velja tilboð bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchi í markaðsátakinu „Ísland – saman í sókn“. 20. maí 2020 09:01 300 milljónirnar verði ekki algjörlega sendar úr landi Þrjú hundruð milljón krónurnar sem Íslandsstofa hyggst verja í nýja auglýsingaherferð, sem féll í skaut bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchio og hinnar íslensku Peel, hverfa ekki með öllu úr hagkerfinu að sögn fulltrúa auglýsingastofanna. 13. maí 2020 16:35 Leiðinlegt að stærsta verkefnið á markaðnum fari til Bretlands í ójafnri keppni Valgeir Magnússon, stjórnarformaður íslensku auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segir það leiðinlegt, og skjóta skökku við, að stærsta verkefni á Íslandsmarkaði hafi fallið í skaut breskrar auglýsingastofu, einkum í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi á íslenskum vinnumarkaði. 13. maí 2020 11:22 Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira
Pipar kærir Ríkiskaup og krefst þess að eigin tillaga verði valin Auglýsingastofan Pipar/TBWA hefur kært Ríkiskaup vegna þeirrar ákvörðunar að velja tilboð bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchi í markaðsátakinu „Ísland – saman í sókn“. 20. maí 2020 09:01
300 milljónirnar verði ekki algjörlega sendar úr landi Þrjú hundruð milljón krónurnar sem Íslandsstofa hyggst verja í nýja auglýsingaherferð, sem féll í skaut bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchio og hinnar íslensku Peel, hverfa ekki með öllu úr hagkerfinu að sögn fulltrúa auglýsingastofanna. 13. maí 2020 16:35
Leiðinlegt að stærsta verkefnið á markaðnum fari til Bretlands í ójafnri keppni Valgeir Magnússon, stjórnarformaður íslensku auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segir það leiðinlegt, og skjóta skökku við, að stærsta verkefni á Íslandsmarkaði hafi fallið í skaut breskrar auglýsingastofu, einkum í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi á íslenskum vinnumarkaði. 13. maí 2020 11:22