Sádar og Rússar deila enn Samúel Karl Ólason skrifar 4. apríl 2020 11:21 Verðstríð Sáda og Rússa hefur komið verulega niður á olíuframleiðendum í Bandaríkjunum. AP/Eli Hartman
Ekki er útlit fyrir að deilu Sádi-Arabíu og Rússlands fari að ljúka. Háttsettir embættismenn í Sádi-Arabíu hafa gagnrýnt Rússa harðlega í dag og sakað embættismenn í Rússlandi um ósannindi. Þykir það til marks um að samkomulag á milli þeirra sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti á dögunum, sé í ekki klárt og er óljóst hvort viðræður hafi átt sér stað. Sádar segja rússneska embættismenn fara með ósannindi þegar þeir segja að Sádar hafi valdið verðstríðinu og gífurlegum lækkunum á olíumörkuðum. Tvær tilkynningar voru sendar út frá yfirvöldum Sádi-Arabíu í dag. Önnur frá Faisal bin Farhan, utanríkisráðherra landsins, og ber hún titilinn: Yfirlýsingar í fjölmiðli forseta Rússlands eru alfarið rangar. Í yfirlýsingunni segir að það hafi verið Rússar sem neituðu að vinna með Samtökum olíuútflutningslanda, eða OPEC, sem Sádar svo gott sem stýra, um að draga úr framleiðslu og halda olíuverði uppi í ljósi mikils samdráttar í eftirspurn vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Þegar Rússar neituðu byrjuðu Sádar að auka framleiðslu olíu með því markmiði að refsa Rússum. Síðan þá hefur olíuverð um heim allan lækkað verulega. Sjá eining: Olíuiðnaðurinn aldrei upplifað annað eins áfall og nú Farhan sagði líka að ekkert væri til í því að Sádar væru að reyna að skaða olíuframleiðendur í Bandaríkjunum. Reyna að forðast deilur við Bandaríkin Hin tilkynningin kom frá Abdulaziz bin Salman, orkumálaráðherra og einum af sonum konungsins. Hann nefndi Alexander Novak, orkumálaráðherra Rússlands, sérstaklega og sagði ummæli hans um að Sádar væru að reyna að klekja á olíuframleiðendum í Bandaríkjunum ekki rétt. Sagðist hann hissa á tilraunum Rússa til að skapa deilur á milli olíuframleiðenda í Sádi-Arabíu og í Bandaríkjunum. Í frétt AP fréttaveitunnar segir líklegt að Sádar séu með þessu að reyna að koma í veg fyrir deilur við Trump vegna slæmrar stöðu olíuvinnslu í Bandaríkjunum. Dýr framleiðsla í Bandaríkjunum Olíuvinnsla í Bandaríkjunum er að meðaltali mun dýrari en hefðbundin olíuvinnsla. Í Bandaríkjunum er að mestu notast við Bergbrot og leirsteinavinnslu og breytti það Bandaríkjunum á einum áratug úr innflytjenda olíu í stærsta olíuframleiðanda heims. Þar að auki eru bandarísk olíufyrirtæki tiltölulega skuldsett og ekki vel í stakk búin til að takast á við tekjulækkun og þá sérstaklega ekki til langs tíma. Sjá einnig: Í verðstríði Sáda og Rússa, tapa Bandaríkin Trump sagði í tísti á fimmtudaginn að hann hefði rætt við Mohammed bin Salmann, krónprins Sádi-Arabíu, sem hefði rætt við Vladimir Pútín, forseta Rússlands, og að bæði Rússar og Sádar myndu draga töluvert úr framleiðslu. Ekkert hefur þó orðið úr því. Olíuverð hækkaði verulega í kjölfar tísts Trump en féll aftur þegar óljóst varð hvort hann hafi verið að segja satt frá. Hvorki Sádar né Rússar hafa staðfest orð Trump. Áframhaldandi deilur þeirra þykja frekari vísbendingar um að ekkert samkomulag sé til staðar.
Bensín og olía Sádi-Arabía Rússland Bandaríkin Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Himneskt ei meir Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira