Skoðun

Grafarvogur tilraunahverfi skólasameininga

Marta Guðjónsdóttir skrifar
Ekki eru ýkja mörg ár liðin frá því ráðist var í miklar sameiningar skóla í hverfinu sem ollu miklu miklu fjaðrafoki en það var árið 2012.  

Mikil óvissa og ringulreið skapaðist í skólastarfinu í aðdraganda þeirra róttæku breytinga sem áttu sér stað þá. Þær skólasameiningarnar voru keyrðar  í gegn þrátt fyrir mikla andstöðu og varnaðarorð skólasamfélagsins alls, starfsmanna skólanna, fræðimanna í menntamálum, samtökum foreldra og skóla og síðast en ekki síst þeirra 12.000 foreldra sem skrifuðu undir mótmæli við þeim á einungis örfáum dögum. 

Úttekt fékk falleinkunn

Gerð var ítarleg óháð úttekt á þessum sameiningum af ráðgjafafyrirtækinu Intellecta sem staðfesti svo ekki verði um villst að varnaðarorð og gagnrýni á sameiningarnar áttu fullan rétt á sér.  

Í skemmstu máli fékk sameiningarferlið, undirbúningur og framkvæmd verksins  falleinkunn í úttektinni. Viðhorf starfsmanna skólanna til samráðs í þessu ferli lýsti sér best í því að mikill meirihluti þeirra taldi að búið hafi verið að taka ákvarðanir um sameiningarnar áður en samráðsferlið hófst og því hafi ekki verið um raunverulegt samráð að ræða heldur sýndarsamráð.

 

Gömul saga og ný

Því miður er sama sagan að endurtaka sig nú. Enginn lærdómur hefur verið dreginn af fyrri sameiningum. Nú aðeins örfáum árum eftir misheppnaðar fyrri skólasameiningar á að keyra í gegn breytingar á skólastarfi í norðanverðum Grafarvogi, þrátt fyrir hávær mótmæli foreldra, nemenda og starfsfólks.

Sama samráðsleysið er nú  uppi á teningnum og  um sama sýndarsamráðið er að ræða enn og aftur. Ekkert raunverulegt samráð hefur átt sér stað sem staðfestist í athugasemdum foreldrafélaga og öllum þeim tölvupóstum sem okkur kjörnum fulltrúum hefur borist.

Nemendur hafa auk þess bent á að lýðræðisleg aðkoma þeirra að málinu sé ekki virt enda sá einn nemandi sig knúinn til að stíga fram í fjölmiðlum og tjá sín sjónarmið þar.

Ekki hefur heldur verið hlustað  á þær lausnir sem minnihlutinn í borgarstjórn hefur lagt fram til að koma í veg fyrir lokun Korpuskóla.

Við höfum lagt fram ýmsar tillögur í þeim efnum s.s. samrekstur leik- og grunnskóla, fjölgun árganga í skólanum og síðast en ekki síst að þétta byggð í Staðahverfi til að fjölga íbúum hverfisins þannig að þeir innviðir sem til staðar eru nýtist betur og hægt verði að tryggja stöðugleika í skólahaldi í hverfinu til framtíðar. Til samanburðar var Úlfarsárdalur stækkaður til að tryggja sjálfbærni og nauðsynlegan nemendafjölda í skólanum, það sama hefði auðvitað  átt gilda um Staðahverfið.

 

Staðarhverfi ekki lengur sjálfbært

Ein af megináherslum aðalskipulagsins er sjálfbærni hverfa, einn stærsti þátturinn í því er að þar sé öll nauðsynleg þjónusta til staðar. Skólar og leikskólar spila þar eitt stærsta hlutverkið. Ljóst er að með lokun Korpuskóla er farið gegn meginmarkmiðum aðalskipulagsins um sjálfbærni hverfa og þar af leiðandi getur Staðahverfi ekki talist lengur sjálfbært hverfi. 

 

Raddir íbúa skipta meirihlutann engu máli

Enn og aftur neitar borgarstjórnarmeirihlutinn að hlusta á raddir íbúa með því að fella tillögu okkar, allra minnihlutaflokkanna í borgarstjórn, um að fresta tillögu að breytingum á skólastarfi í norðanverðum Grafarvogi og fara í víðtækt alvöru samráð við íbúa allra þeirra hverfa Grafarvogs sem ákvörðunin snertir og gefa nemendum  tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri áður en endanleg ákvörðun var tekin.

Hér sannast það til að meirihlutinn hefur endanlega undirstrikað að hann hefur engan lærdóm dregið af fyrri sameiningum og hefur engan áhuga á alvöru samráði heldur bara sýndarsamráði.

Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×