Gaf upp nafn og kennitölu systur sinnar eftir að hafa verið tekin fyrir fíkniefnaakstur Atli Ísleifsson skrifar 18. nóvember 2019 14:47 Lögregla á Suðurnesjum um helgina ökumann sem hafði ekið á miklum hraða fram úr lögreglubíl í eftirlitsferð á Reykjanesbrautinni. Vísir/vilhelm
Lögregla á Suðurnesjum stöðvaði um helgina ökumann sem hafði ekið á miklum hraða fram úr lögreglubíl í eftirlitsferð á Reykjanesbrautinni. Í tilkynningu frá lögreglu segir að um hafi verið að ræða erlendan ferðamann sem hafi ekið á 122 kílómetra hraða, en hámarkshraði á Reykjanesbraut er 90. „Blástur í áfengismæli renndi stoðum undir að viðkomandi hefði neytt áfengis og var hún því handtekin og færð á lögreglustöð. Þá voru nokkrir ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefnaakstur. Tveir þeirra reyndust sviptir ökuréttindum ævilangt. Annar þeirra, kona á fertugsaldri, reyndi að villa á sér heimildir með því að gefa upp kennitölu og nafn annars einstaklings en viðurkenndi svo á endanum að þær upplýsingar tilheyrðu systur hennar. Enn fremur voru höfð afskipti af ökumanni sem svaf ölvunarsvefni undir stýri í bifreið sinni. Í farþegasæti við hlið hans fundu lögreglumenn tveggja lítra gosflösku með landa en lítið var eftir í henni. Viðkomandi var færður á lögreglustöð þar sem sýnatökur bentu til þess að hann hefði neytt kannabisefnis. Skráningarnúmer voru svo fjarlægð af nokkrum bifreiðum sem voru ótryggðar eða óskoðaðar,“ segir í tilkynningunni.
Lögreglumál Reykjanesbær Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Eldur í Árbænum Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Sjá meira