Ágúst Elí Björgvinsson varði ellefu skot þegar Sävehof vann Sporting, 29-24, í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sænsku meistararnir hafa unnið alla þrjá leiki sína í riðlinum.
Ágúst Elí stóð allan tímann milli stanganna hjá Sävehof og varði 31% þeirra skota sem hann fékk á sig. Hann varði tvö af þeim þremur vítaköstum sem hann fékk á sig.
Björgvin Páll Gústavsson átti frábæra innkomu hjá Skjern gegn Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni.
Björgvin kom inn á um miðjan seinni hálfleik, þegar Skjern var sex mörkum undir, og varði átta af þeim 13 skotum sem hann fékk á sig (62%). Það dugði þó ekki til sigurs því Skjern tapaði, 28-25. Elvar Örn Jónsson lék ekki með Skjern í kvöld.
Patrekur Jóhannesson er þjálfari Skjern sem er í 6. sæti deildarinnar með fimm stig eftir fimm leiki.
Strákarnir hans Kristjáns Andréssonar í Rhein-Neckar Löwen töpuðu með fimm marka mun fyrir Melsungen, 31-26, í þýsku úrvalsdeildinni.
Alexander Petersson skoraði tvö mörk fyrir Löwen sem er í 2. sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Hannover-Burgdorf sem vann meistara síðustu tveggja ára, Flensburg, í kvöld, 23-22.
Leipzig hafði betur gegn Bergischer í Íslendingaslag, 35-32. Viggó Kristjánsson var ekki á meðal markaskorara hjá Leipzig sem er í 3. sæti deildarinnar. Bergischer er í því tólfta.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði fimm mörk fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson komst ekki á blað.
Þá steinlá Kristianstad fyrir Malmö, 20-30, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni. Teitur Örn Einarsson skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad en þurfti til þess níu skot. Ólafur Guðmundsson skoraði eitt mark.
Þetta var fyrsta tap Kristianstad á tímabilinu en liðið vann fyrstu fjóra leiki sína í sænsku deildinni.
Handbolti