„Við gerum ekki samkomulag án þess að ætla okkur að standa við það. Það á eftir að útfæra dagskrá þessara daga sem eru undir en ég geri ráð fyrir að menn hljóti að finna út úr því. Það ætti ekki að vera stórkostlegt vandamál. Það var undirritað samkomulag, reyndar eftir nokkrar tilraunir eins og stundum verður í lok hamaganginum í lok þingstarfa en á endanum náðist að fá undirskrift allra,“ sagði Sigmundur Davíð í samtali við Reykjavík síðdegis fyrr í dag.
Síðasta þing stóð mun lengur en gert var ráð fyrir, ekki síst fyrir tilstilli Miðflokksins sem stóð fyrir málþófi, til þess að koma í veg fyrir að þingsályktunartillaga um að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd hinn þriðja orkupakka. Þann 18. júní náðist samkomulag á milli allra flokka á þingi um að fresta afgreiðslu málsins um að þriðji orkupakkinn verði afgreiddur á stuttu síðsumarþingi í lok ágúst og byrjun september. Alþingi kemur saman þann 28. ágúst næstkomandi.
„Þetta verður afgreitt frá þinginu á einn eða annan hátt, innan þessara tímamarka en auðvitað vonumst við enn þá til þess að menn hafi leyft sér að skoða þetta af opnum hug og við vonumst til þess að þeir sem hafa verið að berjast, til dæmis innan Sjálfstæðisflokksins, þeim verði eitthvað ágeng,“ sagði Sigmundur Davíð og vísaði þar til undirskriftarsöfnunar sem hafin er innan Sjálfstæðisflokksins í von um að knýja fram atkvæðagreiðslu um stefnu flokksins í málinu.

Horfir til forsetans nái málið í gegn
Þá horfir hann einnig til forseta Íslands, verði þingsályktunartillagan samþykkt, en þingmenn hafa viðrað hugmyndir um að forsetinn geti neitað að skrifa undir þingsályktunartillöguna. Prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands hefur bent á slíkt væri þó fordæmalaust.„Málið mun væntanlega fara til forsetans. Mér skilst að það sé þess eðlis, það var nú eitthvað álitamál á sínum tíma en Ólafur Ísleifsson hefur skrifað ágæta grein um það og mér heyrist helstu lögfræðingar, eða þeir sem hafa helst tjáð sig um þetta, taka undir það mat að þetta mál þurfi að fara til forseta til undirritunar, þó að þetta sé þingsályktunartillaga. Þar er þá ein leið,“ sagði Sigmundur Davíð.
Hann sagði þó ljóst ef þingsályktunartillagan yrði samþykkt og stjórnvöld myndu samþykkja innleiðingu þriðja orkupakkans myndi Miðflokkurinn ekki leggja árar í bát vegna málsins, framundan væru fjórði og fimmti orkupakkinn. Núna væri hins vegar tíminn til að einbeita sér að því að stöðva þriðja orkupakkann.
„Þetta er tíminn til að spyrna við fótunum.“